Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2017 11
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru
jákvæðni, metnaður og víðsýni.
Vilt þú
hafa áhrif?
Íbúaþing um
farsæl efri ár
á Akranesi
Íbúaþing um farsæl efri ár á Akranesi verður
haldið þann 27. september næstkomandi frá
klukkan 17:00-21:00 í Grundaskóla.
Nánari upplýsingar og skráning er á
heimasíðu Akraneskaupstaðar og á facebook.
Hlökkum til að sjá sem esta!
Skaginn 3X og Búlandstindur á
Djúpavogi skrifuðu á Íslensku sjáv-
arútvegssýningunni undir samning
um sölu á undirkælikerfi fyrir lax-
vinnslu. Þetta er fimmta ofurkæli-
kerfið sem Skaginn 3X selur á þessu
ári en fyrirtækið skrifaði einnig ný-
verið undir samning við Íslands-
bleikju í Grindavík. Kerfið fyr-
ir Búlandstind mun afkasta allt að
13 tonnum á klukkustund og ger-
ir fyrirtækinu kleift að pakka öllum
sínum laxi við -1°C, allt árið um
kring.
Elís Grétarsson, framkvæm-
dastjóri Búlandstinds, segir að ek-
kert annað hafi komið til greina þe-
gar kom að vali á kæliaðferð fyrir
laxavinnslu fyrirtækjanna. „Við
slátrum laxi fyrir fiskeldi Austfjarða
og með kælikerfinu frá Skaganum
3X tryggjum við bestu mögule-
gu gæði á afurðum okkar, aukum
geymsluþol og almennt gæði sem
hjálpar okkur í markaðssetningu,“
segir Elís. mm
Selja Búlandstindi
kælikerfi fyrir lax
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin
voru veitt sjöunda sinni að kvöldi
síðasta fimmtudags. Verðlaunaaf-
hendingin fór fram í Gerðarsafni í
Kópavogi að viðstaddri Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, Ár-
manni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra
Kópavogs, verðlaunahöfum og öðr-
um hátíðargestum. Var verðlaunaaf-
hendingin hluti af dagskrá Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar.
Skaginn 3X á Akranesi hlaut Ís-
lensku sjávarútvegsverðlaunin fyr-
ir verðmætasköpun í fiskvinnslu í
flokki stórra fyrirtækja með yfir 50
starfsmenn. „Skaginn 3X er í farar-
broddi í þróun margvíslegra kerfa
sem snúa að fiskvinnslu og fiskmeð-
höndlun á sjó og landi. Meðal nýj-
unga má nefna varðveislu fisks í lest-
um ferskfisktogara þar sem ekki er
lengur þörf fyrir ís sem kælimiðil,“
segir um fyrirtækið í rökstuðningi
dómnefndar.
Verðlaunahafar í heild sinni eru
eftirfarandi:
Sýningarverðlaun:
Besta nýjungin á sýningunni:
Fiskevegn AS fyrir beitningarvélina
VestTek
Besti sýningarbásinn, að 50 fm:
Camre Shipyard
Besti sýningarbásinn, yfir 50 fm:
Egersund Islands
Besti lands-, svæðis- eða hóp-
básinn:
Danish Fish Tech Group
Starfsgreinaverðlaun:
Framúrskarandi íslenskur
skipstjóri:
Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á
Vilhelm Þorsteinssyni EA
Framúrskarandi íslensk útgerð:
Rammi ehf.
Framúrskarandi íslensk
fiskvinnsla:
Samherji ehf.
Framúrskarandi framlag til
íslensks sjávarútvegs:
Arthur Bogason, hvatamaður að
stofnun Landsambands smábáta-
eigenda
Alþjóðleg verðlaun:
Atorka á sjó - stórfyrirtæki með
fleiri en 50 starfsmenn:
Thyborøn Trawldoor
Skaginn 3X handhafi Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna
Verðlaun fyrir verðmætasköpun í fiskvinnslu
Atorka á sjó - Lítið fyrirtæki með
innan við 50 starfsmenn:
Skipasýn ehf.
Fiskvinnsla - verðmætasköpun
Stórt fyrirtæki með yfir 50 starfs-
menn:
Skaginn 3X
Lítið fyrirtæki með yfir 50 starfs-
menn:
Curio ehf.
Snjall-verðlaun:
Vónin
Framlag til þróunar flotans:
Skipatækni ehf.
Framúrskarandi framlag á heild-
ina séð (valið úr hópi ofangreindra
verðlaunahafa):
Skipatækni ehf.
kgk
Verðlaunahafar Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, er þriðji frá vinstri.
Glösum lyft í tilefni þess að búið var að skrifa undir samninginn.