Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 201724 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Í vor stóð Símenntunarmiðstöð Vesturlands, í samvinnu við Fisk- tækniskóla Íslands, fyrir raunfærni- mati í fiskvinnslu. Sjö einstaklingar frá Grundarfirði og Snæfellsbæ luku mati að þessu sinni. Í síðustu viku var svo formleg útskrift. Enn eru nokkr- ir í raunfærnimatsferli og pláss fyr- ir einhverja til viðbótar samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Einn- ig er hópur að fara í raunfærnimat í félagsgreinum. Raunfærnimat er skipulagt ferli þar sem lagt er formlegt mat á al- hliða þekkingu og færni einstaklings sem viðkomandi hefur aflað sér með t.d. starfsreynslu, námi, félagsstörf- um og lífsreynslu. Raunfærnimat er mat og staðfesting á þekkingu og reynslu. Markmiðið er að einstak- lingur fái viðurkennda þá raunfærni sem hann býr yfir á ákveðnum tíma. Algengast er að raunfærnimat fari fram á móti námsskrá. þa Snæfellingar luku raunfærnimati í fiskvinnslu Pennagrein „Það er erfitt að eiga peninga á Ís- landi,“ var eitt sinn sagt og eflaust er það veruleiki duglegu strák- anna. Sigurvegaranna. Þeirra sem gengu beinu brautina; fóru í góð- an menntaskóla, beint í háskóla og lönduðu svo vel launuðum störf- um. Á frjálshyggjueyjunni uppskera hin duglegu ríkulega. Af hverju ættu þau ekki að gera það? Þau gerðu allt rétt - en hunsa reyndar algjörlega þá stökkpalla sem gerðu þeim kleift að komast í þá stöðu sem þau eru í; efnahagslegan stuðning, fjölskyldu- tengsl, aðgengi að góðri menntun o.s.frv. Þau sannfæra sig um að þau eigi allan sinn auð skilinn. Vegna þessara foréttinda spretta svo upp ranghugmyndir um að öryrkjar séu upp til hópa latir, að hærri bætur séu letjandi, að félagsleg vandamál séu blásin upp í fjölmiðlum, að hin- ir lötu kennarar þurfi árangurstengd laun - að það sem letingjarnir þurfi sé duglegt spark í rassinn. Mennta sig. Vinna meira. Almenningi er talin trú um að yfir- burðum sé hægt að ná í samfélaginu ef fólki takist aðeins að rífa sig upp úr volæði og sjálfsvorkunn. Stöðug- leikinn er talinn mikilvægari en að hlúa að fólki af holdi og blóði. Hag- vöxtur eina vítamínsprautan sem hin harðduglega þjóð þarf. Allar tilraunir til þess að temja markaðinn og setja á reglugerðir eru álitnar skerðing á frelsi - en frelsi hverra? Þeirra duglegu. Sigurvegar- anna. Þeirra sem vilja geta selt vín í verslunum sínum, sem vilja geta selt þér tóbak og boðið þér síðan krabba- meinsmeðferð á klíník sinni síðar meir. Þetta er land nýfrjálshyggj- unnar. Þar sem verkalýðshreyfingin er ekkert annað en bákn og byrði á launþegum. Þar sem venjulegt fjöl- skyldufólk þarf að skrimta. Ímyndum okkur nú aðra stefnu, annað hugarfar. Samfélag þar sem fólk, um allt land, fær gjaldfrjálsa geðheilbrigðisþjónustu og þarf ekki að bíða milli heims og helju eftir að- stoð. Samfélag þar sem þú getur leigt af sanngjörnum leigufélögum sem hafa ekki það markmið eitt að skila arði, þar sem þú bíður ekki vikum saman eftir læknisþjónustu búir þú úti á landi. Samfélag þar sem mennt- un er gjaldfrjáls og hlúð er að barna- fjölskyldum, þar sem greiðfærir og öruggir vegir liggja til allra átta. Svona samfélag er hægt að skapa — en ekki á meðan duglegu strák- arnir ráða för. Inga Björk Bjarnadóttir Höfundur er varaþingmaður Sam- fylkingarinnar — jafnaðarmanna- flokks Íslands. Vítamínsprauta hinnar duglegu þjóðar „Endanlegrar ákvörðunar er að vænta um áramótin,“ er haft eftir sveitar- stjóra Reykhólahrepps á vef bb.is 12. september sl. Ákvörðunar um hvað? Hún virðist ekki hafa lesið niður- stöðu umhverfismats Vegagerðarinn- ar þar sem ákvörðun um val á leið er mjög vel rökstudd, af fimm leiðum er Teigsskógur talin besta leiðin. Hún virðist vilja halda á lofti fullyrðingum andstæðinga vegarins um að Hæsti- réttur hafi staðfest neitun Skipulags- stofnunar á veglínu. Umverfisráð- herra samþykkti skipulagið en dóm- ur Hæstaréttar felldi einungis úr gildi ákvörðun Jónínu Bjartmarz með fá- ránlegum rökum. Ég skora á Alþingi að skera nú á hnútinn en legg til eft- irfarandi sem almennur borgari með rétt til að fá upplýsingar og ekki síð- ur að löggjafinn, Alþingi, læri hvern- ig stjórnsýslan á ekki að vinna. Nauðsynlegt er að fram fari rann- sókn á samskiptum sveitarstjóra Reykhólahrepps og forstjóra Skipu- lagsstofnunar undanfarna mánuði og ár. Rannsóknin fari fram á grundvelli upplýsingalaga. Rannsakendur væru t.d. fréttamenn RÚV og niðurstöð- ur ætti að birta í Kastljósi. Báðir að- ilar eru stjórnvald sem á að vinna fyr- ir opnum tjöldum en ekki með stofn- anaofbeldi. Es. Okkur bræður, Finn og mig, langar mikið að vera við borðaklipp- ingu að loknu verki. Kristinn Bergsveinssson frá Gufudal Pennagrein Þurfum rannsókn á sam- starfi sveitarstjóra og Skipulagsstofnunar Kostir dróna, eða flygilda, til myndatöku eru sífellt að koma betur í ljós. Með góðum tækj- um og leiknum „flugmanni“ er hægt að nálgast myndefnið frá nýju sjónarhorni og nánast hægt að hleypa þriðju víddinni inn í myndina. Skessuhorn hefur af og til að undanförnu birt slík- ar myndir með fréttum. Þessa mynd tók Tómas Freyr Kristjáns- son fréttaritari Skessuhorns fyrr í vikunni af Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga í Grundarfirði. Að sjálf- sögðu er Kirkjufellið og fjörður- inn einng með á mynd og rammar fegurðina inn. mm Fjölbrautaskóli með augum drónans

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.