Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Page 9

Skessuhorn - 20.09.2017, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2017 9 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 7 1260. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar- þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 26. september kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn 25. september • kl. 20.00. Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, • laugardaginn 23. september kl. 11.00. Frjálsir með Framsókn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, • mánudaginn 25. september kl. 20.00. Bæjarstjórnarfundur BÚIÐ AÐ REDDA MATNU M FYRIR NÆSTU VIKU 1 2 3 GSM: 865-2580 SMIÐJUVÖLLUM 17 300 AKRANES SÍMI: 431-2580 Matarskammtar allt frá einum til sex einstaklinga. Hvernig sem matarlistinn eða matarlystin er, Sansa reddar hvoru tveggja, og meira til. - Þú veist, við sönsum og þú eldar. Akranes, Borgarnes og nærsveitungar. Kíktu inná SANSA.IS Hágæða hráefni úr vottuðu eldhúsi. Vel hefur fiskast að undanförnu hjá þeim snurvoðarbátum sem far- ið hafa til veiða út af Vestfjörðum. Hefur aðallega veiðst yfir ljósaskipt- in og yfir nóttina, en minna á dag- inn. Steinunn SH landaði 65 tonn- um í fjórum löndunum, Esjar SH landaði tæpum 60 tonnum í þremur löndunum en bæði skipin lönduðu á Bolungarvík. Matthías SH land- aði 44 tonnum í þremur löndunum, einni á Tálknafirði, en hinar tvær landanirnar voru í Rifi. Saxham- ar SH landaði 37 tonnum í þrem- ur löndunum; tvisvar sinnum í Bol- ungarvík og einu sinni í Rifi. Gunn- ar Bjarnason SH landaði 34 tonnum í tveimur löndunum í bæði skiptin í Ólafsvík. Egill SH landaði 22 tonn- um í tveimur löndunum; einu sinni á Tálknafirði og einu sinni í Ólafs- vík. þa Gott á snurvoðinni úti af Vestfjörðum Verið að landa úr Gunnari Bjarnasyni SH í Ólafsvík síðastliðinn fimmtudag. Aflinn var bolta þorskur. Sterkur orðrómur var í síðustu viku uppi um að til stæði að loka útibúi Fiskmarkaðs Íslands á Akra- nesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjar- stjóri segir að þótt vissulega hafi staðið tæpt með framtíð markað- arins síðan í ágúst, þá sjái hann nú fram á farsæla lausn og að áfram verði rekinn markaður við Fax- abraut, en með breyttu verkfyrir- komulagi. Það megi þakka frum- kvæði Gísla Gíslasonar hafnar- stjóra hjá Faxaflóahöfnum að lausn er að fást í málið. „Mér sýn- ist við vera með aðstoð fleiri góðra manna að tryggja að áframhald verði á starfsemi Fiskmarkaðs Ís- lands á Akranesi enda er starfsemi sem þessi afar þýðingarmikil fyr- ir þá útgerð sem hér er stunduð og verður stunduð í framtíðinni,“ segir Sævar í samtali við Skessu- horn. Hann segir þó ljóst að tölu- verð breyting verði á fyrirkomu- lagi starfseminnar. „Við erum einkum að vinna að lausn mála sem snertir t.d. fyrir- komulag löndunar, móttöku og geymslu á fiski og flutningstíma á markað í Reykjavík. Það skiptir okkur t.d. máli hvort fiskurinn er fluttur suður að kvöldi eða morg- uninn eftir. Ég er í það minnsta bjartsýnn á að með samstarfi for- svarsmanna Fiskmarkaðar Íslands, Faxaflóahafna og heimamanna að lausn sé að finnast sem allir ættu að geta sætt sig við,“ segir Sævar Freyr. mm/ Ljósm. eo. Verið að tryggja áframhald fiskmarkaðar á Akranesi Árleg bólusetning gegn inflúensu er að hefjast á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Sóttvarnarlæknir mælir með inflúensubólusetningu fyrir: Alla einstaklinga 60 ára og eldri. • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, • lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Þungaðar konur.• Ofangreindum forgangshópum stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð. Vinsamlegast bókið tíma á ykkar heilsugæslustöð milli kl. 08.00 – 16.00. Influensubólusetning er hafin. Einnig viljum við vekja athygli á bólusetningu gegn lungnabólgubakteríum fyrir 60 ára og eldri. Starfsfólk heilsugæslustöðva HVE. Bólusetning gegn inflúensu SK ES SU H O R N 2 01 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.