Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Qupperneq 19

Skessuhorn - 20.09.2017, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2017 19 „Það er ekki eftir sem af er,“ skrif- aði Sveinbjörn Eyjólfsson kartöflu- ræktandi í Þingnesi í Borgarfirði á Facebook síðu sína á sunnudag- inn þegar fjölskyldan hafði lokið við að taka upp síðustu kartöflurnar. Á meðfylgjandi mynd eru eiginkon- an Inga Vildís, tvær dætra þeirra og ein dótturdóttir. Það er ástæða til að gleðjast yfir svona góðri uppskeru því litlu sigrarnir eru oft þeir sem mesta gleði vekja. mm/ Ljósm. se. Kartöfluuppskeran í hús Nýnemadagur var haldinn í Fjöl- brautaskóla Snæfellinga í Grundar- firði síðastliðinn fimmtudag. Þá eru nýnemar boðnir velkomnir í skól- ann með ýmsu sprelli. Byrjað var á að merkja nýnemana í matsal áður en allir fóru upp í íþróttahús. Þar var tekist á í skotbolta. Eftir það var farið niður í Torfabót þar sem keppt var í sápubolta. Að lokum var öllum boðið í köku og mjólk í mötuneyti skólans. Það var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér prýðilega þennan fallega fimmtudag. tfk Nýnemadagur FSN Sápuboltinn stendur alltaf fyrir sínu. Gleðin var allsráðandi jafnt hjá nýnemum sem þeim eldri. Eldri nemendur fylgjast með að allt fari fram eftir kúnstarinnar reglum. nemendur sem útskrifast úr FVA skori hátt í skuldbindingu til náms og þrautseigju þegar í háskóla- eða annað framhaldsnám er komið. Mikilvægi iðn- og nýsköpunargreina Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir ráðherra og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akra- nesi, sem bæði luku stúdentsprófi frá FVA, færðu skólanum góðar kveðjur og fjölluðu um mikilvægi iðn- og tæknigreina í bland við bóknám í nútímasamfélagi. Þór- dís Kolbrún sagði sóknarfæri fyr- ir FVA felast í því að skortur er á iðn- og tæknimenntuðu fólki á Ís- landi og benti á í því sambandi að árið 2016 hafi um tíma fleiri verið í forsetaframboði en múraranámi á Íslandi! Hún sagði mikilvægt að flétta saman bók- og verknám þar sem það væri besta leiðin til þess að efla nýsköpun og þá færni sem nútímasamfélög kalla á. Sævar Freyr Þráinsson tók í sama streng og fjallaði um mikil- vægi skólans í því að tryggja nem- endum á Vesturlandi þá hæfni sem samfélagið og atvinnulífið kallar eftir og auka þannig samkeppnis- hæfni landshlutans. Í því sambandi nefndi hann sérstaklega mikilvægi þess að leggja áherslu á forritun, tækni- og iðnnám. Sævar sagði það vera hlutverk samfélagsins alls að hlúa að Fjölbrautaskóla Vestur- lands og að bæjarstjórn Akraness vildi leggja sitt að mörkum með því að færa skólanum fimmhundr- uð þúsund króna peningagjöf til þess að efla og bæta tölvukost skól- ans. Það var Ágústa Elín Ingþórs- dóttir sem tók við gjöfinni. Skólinn sem samfélag Lilja og Daníel Þór, sem fluttu ávörp fyrir hönd útskrifaðra nem- enda veltu því fyrir sér hvern- ig framhaldsskólaárin bjuggu þau undir líf og starf og hvernig dvölin í FVA mótaði framtíðarsýn þeirra. Þau voru sammála um að kennarar og skólabragurinn hefði þar mik- ið að segja, en Lilja sagði að kenn- arar væru mikilvægur hlekkur milli náms og kennslu. Bæði minntust skólans, kennara og samnemenda með hlýhug og þakklæti. Stórtónleikar á sal Að ávörpum loknum var boðið upp á veitingar og afmælisgestum gafst kostur á að ganga um skólann og skoða myndir og annað efni úr fjörutíu ára sögu hans. Tónlistar- líf hefur jafnan verið með mikl- um blóma í FVA og í afmælisfögn- uðinum stigu á stokk fjölmargir tónlistarmenn sem eiga það sam- merkt að vera núverandi eða fyrr- verandi nemendur í FVA. Klukk- an 14.30 hófust órafmagnaðir tón- leikar á Gamla sal þar sem fram komu Halla Margrét Jónsdóttir, Valgerður Jónsdóttir og Heiðmar Eyjólfsson. Klukkan 16 hófust svo stórtón- leikar á sal. Umsjón með tónlist- arflutningi var í höndum Eiríks Guðmundssonar en fram komu hljómsveitirnar Tíbrá, Abbababb, Bland og Slitnir strengir undir stjórn Ragnars Skúlasonar. Hús- bandið skipuðu Eiríkur Guð- mundsson, Ingi Björn Róbertsson, Jakob Garðarsson, Eðvarð Lárus- son, Flosi Einarsson, Arnar Sigur- geirsson og Sigurþór Þorgilsson og með þeim komu fram Halli Melló, Hrund Snorradóttir, Sveinbjörn Hafsteinsson, Heiðmar Eyjólfsson, Ylfa Flosadóttir, Orri Sveinn Jóns- son, Hjördís Tinna Pálmadóttir, Helga Ingbjörg Gujónsdóttir og Rósa Guðrún Sveinsdóttir. als Hátíðargestir á öllum aldri skemmtu sér vel. Á sviðinu err húsbandið og Halli Melló. Nína Áslaug Stefánsdóttir, Helga Dís Daníelsdóttir og Heimir Jónasson. Jóhanna Nína Karlsdóttir og Jana Sif Sigurðardóttir voru kampakátar og voru strax farnar að glugga í veglegt afmælisblaðið. Halla Margrét Jónsdóttir og Heiðmar Eyjólfsson komu fram á Gamla sal. Ragnar Skúlason, Stephen Gaughan og Dröfn Guðmundsdóttir.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.