Skessuhorn - 20.09.2017, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 201726
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig líst þér á að
verslun Samkaupa verði
breytt í Kjörbúðina?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Búðardal)
Kristján Elvar Meldal Sverr-
isson.
„Mér líst vel á að vöruverð
lækki.“
Óskar Páll Hilmarsson.
„Ég veit það ekki. Líst frekar illa
á þetta allt saman.“
Rosemary Lilja Ríkharðsdóttir.
„Mér líst rosalega vel á það.
Fagna ódýrari vöru og meira
vöruúrvali.“
Þuríður Sigurðardóttir.
„Mér líst bara vel á það. Verður
vonandi betra vöruverð. Þó er
verra ef þjónustan minnkar við
ferðamennina hvað varðar opn-
unartíma og lokun á grilli.“
Norðurlandamót unglinga
í kraftlyftingum var haldið í
Molde í Noregi um síðustu
helgi. Kraftlyftingafélag Akra-
ness átti einn fulltrúa í hópnum
sem keppti fyrir Íslands hönd,
Skagamanninn Svavar Örn Sig-
urðsson. Hann keppti í klass-
ískum kraftlyftingum þar sem
hann lyfti 200 kg í hnébeygju,
135 kg í bekkpressu og 230 kg
í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti
hann því 565 kg og skilaði það
honum silfurverðlaunum í -74
kg flokki. „Við gætum ekki ver-
ið stoltari af honum og verður
gaman að sjá hvað hann gerir
í framtíðinni,“ segir í tilkynn-
ingu á Facebook-síðu Kraft-
lyftingafélags Akraness. kgk
Svavar Örn fékk
silfurá NM unglinga
Svavar Örn Sigurðsson lyfti 230 kg í rétt-
stöðulyftu í mótinu.
Ljósm. Kraftlyftingafélag Akraness.
Stúlkurnar í 2. flokki kvenna hjá ÍA
kepptu í Íslandsmóti B liða í sum-
ar. Fengu þær 20 stig úr tíu leikj-
um í riðlinum og höfnuðu í öðru
sæti, tveimur stigum á undan Þrótti
R. í sætinu fyrir neðan. Fyrir vikið
komst 2. flokkur ÍA upp um deild
og leikur í A deild að ári ásamt öll-
um bestu liðum landsins.
Stúlkurnar fengu silfurverðlaunin
afhent í hálfleik á leik ÍA og Stjörn-
unnar í Pepsi deild karla síðastlið-
inn sunnudag og hlutu þær mikið
lófaklapp fyrir.
Margar stúlknanna sem skipa 2.
flokk kvenna léku einnig með bæði
3. flokki og meistaraflokki kvenna í
sumar og höfðu því í nógu að snú-
ast á nýliðnu keppnistímabili.
kgk
Stúlkurnar í 2. flokki ÍA upp um deild
Stúlkurnar í 2. flokki ÍA sem tryggðu sér sæti í A deild að ári. Ljósm. gbh.
Á samkomu í Smáralind í gær afhenti
Team Rynkeby Ísland hjólreiðalið-
ið Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna afrakstur söfnunar sinnar á
síðasta ári. Nam upphæðin tæplega
9,5 milljónum króna. Team Rynkeby
verkefnið hefur vaxið og dafnað og
í júlí síðastliðnum hjóluðu um 1.400
manns frá öllum Norðurlöndunum
til Parísar. Meðal þeirra voru um
fjórir tugir Íslendinga og var þetta í
fyrsta sinn sem íslenskt lið tekur þátt.
Síðasta árið hefur íslenska liðið safn-
að fé samhliða því að æfa stíft fyrir
ferðina en á einni viku voru hjólaðir
um 1.300 km. Markmið verkefnisins
í öllum þessum löndum er að safna
fé fyrir krabbameinssjúk börn, hafa
gaman og koma sér í gott form.
„Framlagið verður notað til rann-
sókna á heilsufari og líðan þeirra
sem greinst hafa með krabbamein
á barnsaldri frá árinu 1981. Rann-
sóknin er gerð á sérstakri mið-
stöð síðbúinna afleiðinga krabba-
meins sem starfrækt er á Barnaspít-
ala Hringsins,“ sagði Gréta Ingþórs-
dóttir, framkvæmdastjóri Styrktar-
félags krabbameinssjúkra barna, við
þetta tilefni. mm
Team Rynkeby afhenti
um 9,5 milljónir króna
Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA
hefur ákveðið að setja á laggirn-
ar sérstakt meistaraflokksráð karla.
Hlutverk ráðsins er að eiga reglu-
bundin samskipti við þjálfara meist-
araflokks karla og 2. flokks karla um
markmið og árangur. „Gengi meist-
araflokks karla hefur ekki verið sam-
kvæmt væntingum í sumar og staða
félagsins í Pepsi-deildinni er erf-
ið. Á sama tíma erum við með ungt
og efnilegt lið sem hefur gríðarlega
mikinn metnað til að gera góða hluti
á komandi árum. Til að styrkja bak-
land meistaraflokks karla hefur aðal-
stjórn knattspyrnufélags ÍA (KFÍA)
ákveðið setja á laggirnar meistara-
flokksráð karla,“ segir í tilkynningu
frá KFÍA.
Ráðið munu skipa þeir Viktor
Elvar Viktorsson, sem jafnframt
situr í aðalstjórn KFÍA, Haraldur
Ingólfsson, Sigurður Sigursteins-
son, Stefán Þór Þórðarson og Þórð-
ur Guðjónsson. Allir eiga þeir það
sammerkt að vera fyrrum leikmenn
meistaraflokks karla og eiga mikla
knattspyrnureynslu að baki, meðal
annars sem atvinnumenn.
Meistaraflokksráði er ætlað að hafa
ráðgefandi hlutverk í leikmanna- og
þjálfaramálum og styðja við þjálfara-
teymi og leikmenn meistaraflokks
karla. „Vonandi er þetta fyrsta skref-
ið í að KFÍA standi að nýju undir því
heiti að vera stórveldi í íslenskum
fótbolta,“ segir í tilkynningu KFÍA.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Koma á fót
meistaraflokksráði