Skessuhorn - 03.01.2018, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 20182
Þrettándi dagur jóla er á laugardaginn, 6.
janúar. Á þrettándanum er víða hefð fyrir
því að kveðja jólasveinana sem halda þá
til fjalla og jafnvel sjást álfar og tröll í þeim
hópi einnig. Haldnar eru brennur og von-
andi verður síðustu flugeldarnir brennd-
ir upp. Viðkvæmir hundar, kettir og hross
yrðu til dæmis afskaplega þakklát ef allir
skoteldar og púðurkerlingar verða klár-
aðar þetta kvöld.
Á morgun, fimmtudag, er spáð austanátt
8-15 m/sek, en 15-23 syðst á landinu og
við Öræfajökul. Él um landið austanvert,
en bjartviðri vestantil. Frost 0 til 7 stig, en
rétt ofan frostmarks við suðurströndina.
Á föstudag verður minnkandi norðaust-
anátt og él austanlands í fyrstu, en hæg
breytileg átt og léttskýjað víða um land
þegar líður á daginn. Harðnandi frost. Á
laugardag verður vestlæg eða breytileg
átt og snjókoma með köflum en þurrt
austanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast í
innsveitum norðaustantil. Suðlægari um
kvöldið og hlánar við suðvestur- og vest-
urströndina. Á sunnudag og mánudag er
útlit fyrir nokkuð hvassa sunnanátt með
rigningu og slyddu.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
hvernig nýhafið ár leggst í landann. Al-
mennt eru menn bjartsýnir. 32,4% sögðu
árið örugglega verða betra en það sem
liðið er. 30,34% telja líklegt að það verði
betra, en 23,3% finnst líklegast að það
verði á pari. 14% spá því að byrjað ár
verði lakara en það síðasta.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig fannst þér Skaupið?
Að þessu sinni eru Vestlendingar vikunn-
ar þeir sem sendu inn tilnefningar um
Vestlending ársins. Fjölmargir tóku þátt
og nefndu alls 32 einstaklinga. Takk fyr-
ir það.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
FJARNÁM
Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til
5. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Skráning á vorönn stendur til 10. janúar
l .
Voru fastir í
eldfjalli
VESTURLAND: Verkefni
lögreglunnar voru margvís-
leg í umdæminu yfir jól og
áramót. Tveir ökumenn voru
handteknir grunaðir um að aka
undir áhrifum fíkniefna. Annar
þeirra var tekinn á aðfangadegi
og hinn 30. desember og fund-
ust þá einnig fíkniefni í bifreið-
inni og fékk ökumaðurinn að
gista í fangageymslu í kjölfar-
ið. Töluvert var um ferðamenn
sem hringdu í lögregluna
vegna vandræða í umferðinni.
Sem dæmi voru ferðamenn
fastir í snjó við Uxahryggi á
jóladag og á milli jóla og nýárs
festu ferðamenn sig í Haukadal
í Dölum. Höfðu einnig ferða-
menn samband við lögreglu og
sögðust vera fastir á leið sinni
frá Keflavík til Ólafsvíkur en
vissu ekki um nánari staðsetn-
ingu. Þeir sögðust ætla að hafa
samband aftur ef þeir þyrftu
hjálp, sem þeir gerðu ekki. Þá
var einnig tilkynnt um ferða-
menn sem sögðust vera fast-
ir í eldfjalli og lögreglan beðin
um að hafa samband við bíla-
leiguna Lotus. Ekki er vitað í
hvaða eldfjalli ferðamennirnir
töldu sig vera fasta í. -arg
Góð aðsókn í
nám á vorönn
BIFRÖST: Mjög góð aðsókn
er í nám á vorönn 2018 við
Háskólann á Bifröst en ríflega
hundrað umsóknir höfðu bor-
ist fyrir jólin. Formlegum um-
sóknarfresti lauk 10. desember
en umsóknir voru enn að ber-
ast skólanum og verður far-
ið yfir þær allar. Mest aukning
er á umsóknum í meistaranám
en búast má við töluvert fleiri
innritunum nú á vorönn en á
sama tíma fyrir ári síðan. „Há-
skólinn á Bifröst hefur verið í
góðri sókn síðustu árin og er í
fararbroddi í fjarnámi á Íslandi.
Allt meistaranám hjá okkur
er kennt í fjarnámi og hent-
ar því mjög vel fyrir einstak-
linga á vinnumarkaðnum sem
hafa hug á því að stunda nám
samhliða vinnu. Við erum með
fjölbreyttar námslínur sem
höfða til margra og ánægju-
legt að sjá hve góð viðbrögð
við erum að fá,“ segir Sigrún
Jónsdóttir framkvæmdastýra
kennslu og þjónustu við Há-
skólann á Bifröst.
-mm
Fjárhagsáætlun Reykhólahrepps
var lögð fram til síðari umræðu á
fundi sveitarstjórnar 14. desem-
ber síðastliðinn. Skemmst er frá
því að segja að gert er ráð fyrir 16
milljóna króna rekstrarafgangi af
samstæðu A og B hluta árið 2018.
Tekjur sveitarfélagsins á árinu eru
áætlaðar 558 milljónir kóna, þar af
127 milljóna útsvarstekjum og 176
milljónir frá Jöfnunarsjóði. Áætl-
að er að samanlögð gjöld A og B
hluta verði 543 milljónir á árinu
2018, þar af 352 milljóna launa-
gjöld og 15 milljóna króna afskrift-
ir. Við síðari umræðu fjárhagsáætl-
unar samþykkti sveitarstjórn að
auka framlag til gatnagerðar um
tíu milljónir króna í áætlun ársins
2018 og fjármagnast það með lán-
töku.
Þegar hafði verið samþykkt
álagning gjalda fyrir árið 2018,
það var gert þegar fjárhagsáætlun
var lögð fram til fyrri umræðu. Þar
gerir ráð fyrir að útsvarsprósenta
verði óbreytt frá fyrra ári, sem og
fasteignaskattsprósenta. Viðmið
árstekna vegna afsláttar elli- og líf-
eyrisþega af fasteignaskatti hækkar
sem nemur breytingu á launavísi-
tölu milli ára og verður 3,7 millj-
ónir króna fyrir einstaklinga og 5,3
milljónir króna fyrir hjón.
kgk/ Ljósm. úr safni/sm
Búast við afgangi af rekstri
Reykhólahrepps
Ástríður Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin leikskólastjóri Anda-
bæjar á Hvanneyri. Frá ráðning-
unni var greint á vef Borgarbyggð-
ar skömmu fyrir jól. Tveir umsækj-
endur voru um stöðuna. Ástríður
er leikskólakennari að mennt. Hún
er Hvanneyringur að uppruna og
hefur um áratugaskeið starfað sem
deildarstjóri við Andabæ, leyst
af sem aðstoðarleikskólastjóri og
leikskólastjóri. „Hún hefur verið
farsæl í starfi bæði sem leikskóla-
kennari og stjórnandi, komið að
mótun skólanámskrár leikskólans
og tekið þátt í fjölmörgum þróun-
arverkefnum innan skólans. Hún
hefur sótt ýmis námskeið í leið-
togafærni og mannauðsstjórnun.“
Ástríður tók við starfinu um nýlið-
in áramót.
mm
Ástríður ráðin leikskóla-
stjóri Andabæjar
Fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í
Grundarfirði og verktakafyrirtækið Ístak skrifuðu
undir samning föstudaginn 22. desember sl. um
byggingu á nýju fiskvinnsluhúsi fyrirtækisins. Haf-
ist verður handa við byggingu hússins fljótlega eft-
ir áramótin. Skrifað var undir samning um bygg-
inguna við ilmandi skötulykt í matsal fyrirtækisins.
Þegar menn höfðu lokið sér af með vel kæsta sköt-
una var skrifað undir í góðu yfirlæti. tfk
Skrifað undir samning um byggingu fiskvinnsluhúss
Runólfur Guðmundsson stjórnarformaður GRun, Hermann Sigurðsson yfirverk-
fræðingur, Karl Andreassen framkvæmdastjóri Ístaks og Guðmundur Smári Guð-
mundsson framkvæmdastjóri GRun. Á bakvið þá félaga eru málverk af foreldrum
þeirra bræðra. Fyrstu skóflustungurnar að húsinu voru teknar á sjómannadagshelginni.