Skessuhorn - 03.01.2018, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 2018 5
SÉRHÆFT NÁM
Hagnýtt eins árs nám hjá Fisktækniskóla Íslands
í samstarfi við Matvælaskóla Sýnis, Marel, Hólaskóla
og starfandi fyrirtæki í greininni.
Boðið er upp á þrjár námsbrautir:
• Fiskeldi
• Gæðastjórnun
• Marel-vinnslutækni
Náminu er skipt upp í tvær annir. Kennt er í dreifinámi
og staðarlotum sem hentar starfandi fólki í greininni.
Inntökuskilyrði
Hafa lokið námi í fisktækni eða sambærilegu námi.
Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarútvegi getur einnig
gilt til að uppfylla inntökuskilyrði.
Nánari upplýsingar
Fisktækniskóli Íslands • Víkurbraut 56 • 240 Grindavík
Sími 412 5966 • info@fiskt.is • www.fiskt.is og á Facebook
Vorönn 2018
Á tólfta tímanum að kvöldi að-
fangadags jóla var björgunarsveit-
in Lífsbjörg í Snæfellsbæ boðuð
út vegna fólks í vanda á Fróðár-
heiði. Þrír bílar sátu fastir á heið-
inni og hélt fólk til í neyðarskýli.
Fóru tveir hópar frá Rifi, annar fór
yfir heiðina, en hinn ók fyrir jök-
ulinn og hafði meðferðis lyf sem
þurfti að koma áleiðis til Arnar-
stapa. Ekki hafði tekist að koma
lyfjunum þangað sökum ófærð-
ar og veðurs og því var óskað eftir
aðstoð björgunarsveitarfólks til að
leysa það verkefni.
Björgunarsveitarfólk frá Rifi var
komið upp á Fróðárheiði um mið-
nætti til þess að athuga með fólkið
sem var þar í góðu yfirlæti. Hópur-
inn hélt svo áfram yfir heiðina, en
sunnan megin við hana var óöku-
fær bíll með fjóra farþega innan-
borðs. Vonskuveður var á sunn-
anverðu Snæfellsnesi og til fjalla
þegar þetta var. Mikill vindur og
úrkoma, eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd sem Ægir Þór Þórsson
tók á Fróðárheiði. mm
Ferðalöngum komið til
bjargar á aðfangadagskvöld
Björgunarsveitir af Kjalarnesi, höf-
uðborgarsvæðinu og Akranesi voru
kallaðar út á gamlársdag til leitar
á Hvalfirði. Leitað var bæði af sjó
og landi en vegfarandi um fjörðinn
taldi sig hafa séð ljósmerki innarlega
í firðinum. Auk björgunarsveita var
þyrla Landhelgisgæslunnar köll-
uð út. Upplýsingar stjórnstöðvar
Landhelgisgæslunnar bentu ekki
til að bátur eða skip væru á ferð á
þessum slóðum og hugsanlega væri
því um dufl að ræða en engu að síð-
ar þótti vissara að leita á svæðinu.
Lögregla og björgunarsveitir Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar hófu
fyrstu eftirgrennslan og laust upp
úr klukkan tvö var TF-LIF send
á vettvang til að fá heildaryfirsýn.
Eftir að hafa flogið yfir svæðið lenti
þyrlan hjá lögreglumönnum á vett-
vangi til skrafs og ráðagerða. Var
það mat áhafnar þyrlunnar og lög-
reglu að þar sem ekkert var að sjá á
vettvangi sem gæti bent til þess að
slys hefði átt sér stað, og einskis var
saknað, að óhætt væri að afturkalla
aðgerðir. mm
Leituðu á Hvalfirði
á gamlársdag
Drónahópar björgunarsveitafólks tóku þátt í leitinni. Ljósm. Landsbjörg.
Hér eru félagar í sjóbjörgunarflokki Björgunarfélags Akraness að sjósetja gúmmí-
bát sveitarinnar. Sigldu þeir inn á Hvalfjörð en hópur björgunarsveitarfólks fór
auk þess akandi á leitarsvæðið. Ljósm. mm.