Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 20186 Smáóhöpp og verkefni VESTURLAND: Slys varð á Borgarfjarðarbraut miðvikudaginn 27. des- ember þegar bíll lenti ofan í skurði. Ökumaður og farþegi fundu fyrir smá eymslum en enginn slas- aðist alvarlega. Sama dag strandaði bátur við Skor- eyjar á Breiðafirði, en allt fór vel og er málið í skoð- un. Fimmtudaginn 28. des- ember var tilkynnt um vél- arvana bát út við Rif. Land- helgisgæslan sá um björg- un ásamt björgunarsveit- inni og náðist báturinn í tog og var bjargað. Föstu- daginn 29. desember varð lítill sinubruni við Innnes- veg í Hvalfjarðarsveit þeg- ar kveikt var í flugeldi. Um er að ræða lítið óhapp og ekkert alvarlegt slys varð. Þá kviknaði eldur í rusla- gámi við Bíóhöllina á Akra- nesi á gamlársdag, slökkvi- lið sá um að slökkva eld- inn. Á gamlársdag var til- kynnt um ljósmerki frá sjó í Hvalfirði. Talið var að um SOS merki væri að ræða svo björgunarsveit, þyrla og allt tiltækt lið var ræst út. Ekki fannst neinn í hættu og var leit hætt. Gæti verið að um sé að ræða ljós frá bauju en það er ekki vit- að. Áramótin sem slík fóru að sögn lögreglu vel fram í öllu umdæminu. -arg Lýstu eftir bíl vegna innbrots BORGARNES: Skömmu fyrir jól lýsti Lögreglan á Vesturlandi eftir bifreið- inni LR-538 sem er blá sendibifreið af gerðinni Volkswagen Transporter árgerð 1998. Lýst er eftir bifreiðinni í tengslum við stórfelldan þjófnað á tölvu- búnaði sem átti sér stað í Borgarnesi aðfararnótt 15. desember síðastliðinn. Bíll- inn kom í leitirnar skömmu eftir að tilkynning var send út. Lögregla verst hins veg- ar nánari frétta af téðu inn- broti. -mm Ráðinn bygg- ingafulltrúi BORGARBYGGÐ: Á fundi sveitarstjórnar Borg- arbyggðar 14. desember sl. var kynnt ráðning nýs byggingarfulltrúa í stað Gunnars S. Ragnarsson- ar, sem hverfur til annarra starfa í janúar. nýráðinn byggingafulltrúi er Þórólf- ur Óskarsson, fæddur árið 1955. Hann er menntað- ur sem byggingafræðingur, trésmiður, byggingastjóri og löggiltur eignaskiptalýs- andi. Hann hefur að und- anförnu starfað sem bygg- ingafulltrúi í Grundarfirði í veikindaforföllum bygg- ingarfulltrúa þar. Þórólfur stefnir að því að koma til starfa strax upp úr áramót- um og er í tilkynningu á vef Borgarbyggðar boðinn vel- kominn til starfa. -mm Hjartaorm- ur greindist í innfluttum hundi LANDIÐ: Hjartaormur- inn Angiostrongylus va- sorum greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins í desember og dvelur í einangrun. Um er að ræða sníkjuþráðorm. Ormasýkingin var greind af sníkjudýrafræðing- um á Tilraunastöð Há- skóla Íslands í meinafræði að Keldum. Hjartaorm- urinn hefur ekki greinst áður á Íslandi. Hundur- inn hafði ekki sýnt ein- kenni sýkingar en með- höndlun hófst um leið og niðurstaða greining- ar lá fyrir. Hjartaormur- inn finnst víða í Evrópu, Ameríku og Afríku og svo virðist sem útbreiðsla hans sé að aukast en sú aukning er talin tengj- ast hlýnandi loftslagi og auknum ferðalögum fólks með hunda. Hjartaorm- urinn sýkir refi og hunda en millihýslar ormsins eru ýmsar sniglategundir. Ormurinn er ekki sértæk- ur á sniglategurndir og hugsanlegt er að íslensk- ar sniglategundar gætu hentað sem millihýslar. Talið er að smit berist í hunda þega þeir éta smit- aða snigla (sem t.d. halda sig í grasi) en smit getur ekki borist beint frá hundi til hunds. Fólki stafar ekki hætta af hjartaorminum. -mm Laugardaginn 30. desember var gerð tilraun til að fella fjögur samliggjandi efnissíló á lóð Sem- entsverksmiðjunnar á Akranesi. Það er fyrirtækið Work north ehf. sem er verktaki við niðurrif mannvirkja Sementsverksmiðj- unnar en verkkaupi er Akranes- kaupstaður. Sprengiefni var kom- ið fyrir og umferð lokað um Fax- abraut til að gæta fyllsta örygg- is. Skemmst er frá því að segja að magn sprengiefnis reyndist of lít- ið því byggingarnar féllu til hliðar en ekki til jarðar. Hanga þær því enn uppi eins og sést á meðfylgj- andi mynd. Þorsteinn Auðunn Pétursson er framkvæmdastjóri Work north ehf. Hann segir í samtali við Skessuhorn að færustu sprengju- sérfræðingar hafi stýrt verk- inu en svona lagað geti einfald- lega gerst. „Þegar svona mann- virki eru sprengd þarf að bregða upp nokkrum sviðsmyndum um hvað geti mögulega gerst. Vissu- lega vorum við meðvitaðir fyrir- fram um þann möguleika að síló- in myndu ekki falla alla leið til jarðar. Þessi gömlu leðjusíló eru einfaldlega ofboðslega efnismikil og margir tugir tonna af steypu og járni í botni þeirra sem held- ur þeim uppi,“ sagði Þorsteinn Auðunn. Aðspurður reiknar Þor- steinn með að sprengja þurfi síló- in að nýju til að ljúka verkinu. „Þá munum við láta vita og senda út tilkynningu. Við fengum ábend- ingar um að við hefðum þurft að láta fleiri vita en þá sem búa í hús- unum næst lóð verksmiðjunnar.“ Þorsteinn bætir því jafnframt við að efnissílóin séu einu mannvirkin í þessum áfanga niðurrifsins þar sem beita þarf sprengiefni. Á öðr- um húsum og mannvirkjum verð- ur unnið með stórvirkum vinnu- vélum. Því má við þetta bæta að með frétt á vef Skessuhorns 30. des- ember sl. má sjá myndband af sprengingunni. mm Sprengihleðsla reyndist of lítil Eftir sprenginguna síðastliðinn laugardag halla sílóin fjögur í suðurátt, ekki með ósvipuðum halla og skakki turninn í Písa. Innan við lokað hlið að porti við austurenda efnisgeymslu Sementsverk- smiðjunnar má nú sjá hauga af flokkuðu efni. Annars vegar má sjá járnahaug sem bíður pressu og geymslu til flutnings með flutningaskipi og hins vegar efnishauga þar sem búið er að mala og flokka steypu eftir grófleika.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.