Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2018, Side 14

Skessuhorn - 03.01.2018, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201814 Eins og Skessuhorn greindi frá fyr- ir jól kom forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson í opinbera heim- sókn í Dalabyggð dagana 6. og 7. desember ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid, og föruneyti. Í kjölfar heimsóknarinnar sendi fréttaritari Skessuhorns forsetahjónunum fá- einar spurningar sem þau gáfu sér tíma til að svara. Aðspurð hvort þau hjónin hafi verið kunnug Dölunum áður en að heimsókninni kom segja þau bæði svo vera. „Ég vissi af sögu- lega arfinum öllum saman, Laxdælu og atburðum í öðrum Íslendinga- sögum sem gerast þar, Sturlung- um, Árna Magnússyni og þar fram eftir götunum,“ segir Guðni. „Við vorum einu sinni á leið á Erpsstaði að fá ís með alla krakkana en vorum sein fyrir í bíltúrnum og náðum því ekki í það skiptið,“ bætir Eliza við. Þau segja ekkert hafa komið sér á óvart í heimsókninni. „Alls staðar var tekið vel á móti okkur og land- ið var fagurt hvar sem við fórum,“ segir Eliza. Þótti ferðin heppnast vel „Okkur þótti ferðin öll heppnast vel en mér er kannski helst minnis- stætt hvað börn og unglingar tóku mikinn þátt í fjölskylduhátíðinni í Dalabúð. Þau stóðu sig öll svo vel og gáfu öllu svo skemmtilegan blæ,“ segir Eliza aðspurð hvað hafi stað- ið upp úr í heimsókninni. Þau telja heimsóknina hafa gefið þeim góða mynd af samfélaginu í Dölum, „að því marki sem hægt er á tveimur dögum,“ segir Guðni. „Við heim- sóttum sögufræga staði og sáum sóknarfæri í menningar- og sögu- tengdri ferðaþjónustu. Arnar Freyr og Fjóla, ungir bændur í Kringlu í Miðdölum, tóku á móti okkur með börnum sínum. Þar og víðar gátum við rætt um vanda sauðfjárbænda og leiðir til lausna. Okkur fannst Dalamenn horfa björtum augum fram á veg en vera um leið raunsæ- ir,“ bætir Guðni við. Létu kuldann ekki á sig fá Mörgum finnst langt að fara vest- ur í Dali úr höfuðborginni en Dala- mönnum þykir flestum stutt að keyra til höfuðborgarinnar. For- setahjónin voru spurð hvað þeim þætti um þessar ólíku fullyrðing- ar og hvor þeirra ætti betur við að þeirra mati. „Ég held að fyrir ferðaþjónustuna sé mjög mikilvægt að benda á þau augljósu sannindi að það tekur um eða innan við tvo tíma að fara af höfuðborgarsvæðinu í Dalina. Það er vel hægt að skipu- leggja góða dagsferð þangað fyrir útlendu ferðamennina, eða sunnu- dagsbíltúr fyrir okkur heimafólk- ið,“ svara Guðni. Var þetta fyrsta opinbera heimsókn forseta í des- embermánuði og vetur konungur tók vel á móti gestunum. Aðspurð hvort skammdegi og kuldi hafi eitt- hvað haft að segja um upplifun og gæði heimsóknarinnar svarar Eliza því til að hún sé vön meira frosti í Kanada svo þetta var ekkert mál frá henni séð, „bara gaman,“ segir hún. „Seinni daginn var heiðskírt og það var einstaklega fallegt að sjá sólina skríða yfir fjöllin, og kuldinn var ekkert til að gera veður út af,“ seg- ir Guðni. Að endingu spurðum við þau hvort þau hefðu einhver sérstök skilaboð sem þau vildu koma á framfæri eftir heimsóknin. „Fyrst og fremst þakkir fyrir mikla gest- risni og hlýhug. Við hlökkum til að koma aftur í Dalina, og þá vonandi með börnin líka,“ segja þau bæði. sm/arg Forsetahjónin ánægð með heimsóknina í Dalina Forsetahjónin heimsóttu meðal annars þau Arnar Freyr Þorbjarnarson og Fjólu Mikaelsdóttur í Kringlu. Ljósm. sm. Hestamenn á Akranesi hafa það sem fastan lið að sækja stóð- ið í Akraflóa og koma á hús áður en flugeldaskothríðin hefst á gamlárskvöld. Smalað var ríflega hundrað hrossum úr flóanum á laugardaginn. Hver og einn tók svo hrossin sín á hús og urðu fagnaðarfundir hjá hrossaeigendum á öllum aldri. mm Stóðið rekið úr flóanum

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.