Skessuhorn - 03.01.2018, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201818
Pennagrein Pennagrein
Kæru lesendur, íbúar Vesturlands
og landsmenn allir. Gleðilegt ár!
Þessi grein er bjartsýnisgrein.
Það eru til lausnir og þegar mað-
ur liggur flatur á botninum þá er
lag að fóta sig og spyrna sér upp.
Ástandið í fiskveiðum og sjósókn
Skagamanna hef ég dregið upp í
skrifum mínum undanfarið. Það
liggjum við flöt og skaðinn er orð-
inn. Svona er staðan: Við Skaga-
menn erum fallnir í neðstu deild
og liggjum á botninum. Líkja má
þessu við að búið sé að selja alla
leikmenn og Akranesvöllur not-
aður sem ruslahaugur, enginn man
lengur hvernig bolta er sparkað.
Erum utan deildar! En þá er sókn-
in besta vörnin.
Ég hef farið yfir skaðsemi kvóta-
kerfis í sjávarútvegi sem hefur
brugðist á allan hátt. Algjörlega
unnið gegn því sem það var stofn-
að til. Að auka fiskveiðar og tryggja
byggðafestu. Að sýna meðvirkni
með stórgölluðu kvótakerfi er eins
og að klappa alkóhólista á bakið og
gefa honum brennivín. Það verður
að viðurkenna vandann. nú liggur
það fyrir að útgerð er að leggjast af
á Akranesi. Hér kemur varla sporð-
ur að landi. Því þarf að spyrna við
fótum og treysta á þá vonarneista
sem þó leynast hér innanbæjar. Vil
ég þar nefna nýstofnað fyrirtæki
norðusýn og komu Ísfisks svo
eitthvað sé nefnt. Fyrirtæki sem
TREYSTA á aðgang að markaði.
En mikilvægasta verkefni bæjar-
fulltrúa og þingmanna Vesturlands
er að koma fiskmarkaði á laggirnar
aftur sem allra allra fyrst.
nú er lag að taka saman höndum
við Fiskistofu og taka vigtarmál til
rækilegar endurskoðunar. Hvernig
væri að sækja fram og byrja endur-
reisn fiskveiða við Ísland (án ölm-
usukerfis skortveiði og sérhags-
muna) hér á Akranesi. Kjarkur og
þor er allt sem þarf. Ég skora á
þingmenn Vesturlands að láta mál-
ið til sín taka. Sérstaklega skora ég
á ráðherra nýsköpunar og atvinnu-
mála að taka málin föstum tökum.
Ekki falla í þá gryfju að þvæla um
þá smjörklípu sem umræðan um
veiðigjöld er orðin. Við þurftum
ekki veiðigjöld þegar samfélagið
var byggt upp fyrir daga kvóta-
kerfisins. Samningar sjómanna eru
líka til ævarandi skammar og þarf
að laga tafarlaust. Þar ræður kúgun
og niðurlæging ríkjum.
Án tafar er hægt að opna fisk-
markaðinn hér. Veita nýjum mark-
aði ívilnanir og sporgöngu. Hlúa
að og hvetja fyrirtæki til að gera
út hér og fá aðstöðu. Endurreisa
Akranes sem útgerðarstað og fiski-
höfn. Það er kominn tími til að
stjórn Faxaflóahafna komi orðum
til athafna og geri Akraneshöfn
að fiskihöfn, lof-
orð sem var skjal-
fest og skráð fyrir
löngu. nóg er komið af blaðri og
exelskjölum. Bæjarfulltrúar Akra-
ness hvar í flokki sem þeir standa
hafa sofið á verðinum um áratuga
skeið. Flotið sofandi að feigðarósi
og látið hirða af sér atvinnutæki-
færi og menningu sem ekki fæst
keypt. Þingmenn Vestulands hafa
allir brugðist. Kjörnir fulltrúar
eiga að láta miklu meira í sér heyra
með skaðsemi kvótakerfisins og
þann hrylling sem það hefur gert
fyrir bæinn okkar.
Með samstilltu átaki og trú á
frelsi einstaklingsins getum við
snúið vörn í sókn og byggt upp
fiskveiðar, fiskvinnslu og gríðarlega
nýsköpun sem fjórða iðnbyltingin
mun gefa okkur. Hér á Akranesi
sárvantar vinnu innabæjar. Allt eru
þetta mannanna verk sem auðvelt
er að breyta. Okkur hefur stórlega
mistekist og nú er að stokka spilin
og gefa upp á nýtt. Komum Akra-
nesi aftur í efstu deild fiskveiða og
vinnslu og njótum þeirra gæða að
vera sjávarþorp. Vilji, kjarkur og
þor er allt sem þarf. Við getum
breytt þessu saman.
Stefán Skafti Steinólfsson,
verkamaður.
Vaxandi eftirspurn er eftir ósnortn-
um útivistasvæðum eins og Ein-
kunnum, þar sem fólk getur sótt á
vit nátturunnar, til afslöppunar og
afþreyingar, fjarri skarskala þétt-
ibýlisins. Friðlönd eins og Ein-
kunnir eru einnig þeir staðir sem
erlendir ferðamenn eru að leita
eftir þegar þeir heimsækja Ísland.
Það er alveg með ólíkindum að
sveitarstjórn Borgarbyggðar skuli
láta sér detta í hug að ætla að troða
skotæfingarsvæði við Einkunnir
og yfir svæði sem hestamenn nota
nú til beitar og útreiða.
Með þessum áformum er ver-
ið að eyðileggja hluta af þeirri
upplifun sem fólk er að sækja í í
Einkunnum og nágrenni þeirra,
kyrrðin verður rofin með skot-
hvellum. Þannig er verið að skerða
og skaða Einkunnir sem friðland
og sem friðsælt útivistarsvæði.
Í kafla 5 um Áhrif breytingar
á samfélag og umhverfi í tillögu
sveitarstjórnar Borgarbyggðar
kveður skýrt á um að; „helstu um-
hverfisáhrif eru vegna hljóðmeng-
unar frá leirdúfuskotvelli“.
Auk þess er afar ólíklegt, hvað
sem sveitarstjórn segir, að áhrif frá
riffisskotum verði óveruleg.
Það er einnig til umhugsunar
að sveitarstjórn Borgarbyggðar
telji þetta rétta aðgerð í skipulags-
málum og samþykki á sama fundi
og hún bókar lof-
ræðu um kosti
þess að staðsetja
yfirstjórn Hálendisþjóðgarðs í
sveitarfélaginu. Með ákvörðun
sinni um að troða skotæfingasvæði
við friðlýst svæði Einkunna og yfir
og á beitarsvæði hestamanna sýnir
sveitarstjórn Borgarbyggðar mjög
svo neikvætt viðhorf sitt til frið-
lýstra svæða og þjóðgarða, þeim
megi fórna til hagsbótar fyrir fá-
menna sérhagsmunahópa.
Verum þess minnug að Ein-
kunnir eru náttúruperla sem verð-
ur verðmætari og verðmætari eft-
ir því sem árin líða. Látum ekki
skammsýna og/eða þröngsýna
stjórnmálamenn eyðileggja svæð-
ið og nágrenni þessi fyrir skamm-
tíma pólitíska hagsmuni.
Mótmælum þessum afglöpum
sveitarstjórnar Borgarbyggðar og
sendum viðeigandi athugasemdir
innan þess frests sem skilgreindur
var í auglýsingunni.
Skotæfingarsvæðið á ekkert er-
indi yfir og á það landsvæði sem
boðað er, það á miklu frekar að út-
víkka friðlandið og útvistarsvæðið
fyrir allan almenning.
„Skjótum“ þessa dellu strax nið-
ur!
Borgarnesi, 1. janúar 2018.
Guðsteinn Einarsson.
Friðurinn úti?Úr vörn í sókn
Flugeldasala gekk vel á Akranesi
fyrir áramótin. Að sögn Birnu
Björnsdóttur formanns Björgun-
arfélags Akraness voru þau ánægð
með söluna í ár. „Við erum mjög
þakklát bæjarbúum fyrir stuðning-
inn og verður fénu vel varið í störf
innan félagsins,“ segir Birna. „Við
finnum samt fyrir samkeppninni
af höfuðborgarsvæðinu, þó svo við
séum ein að selja hér á Akranesi. Ég
hef ekki nákvæmar tölur um söluna
fyrir þessi áramót en hún var örlít-
ið meiri en fyrir ári,“ bætir hún við.
Fyrir þá sem vilja skjóta upp flug-
eldum á þrettándanum verður flug-
eldasalan opin hjá Björgunarfélagi
Akraness föstudaginn 5. janúar frá
kl. 17-20 og laugardaginn 6. janúar
frá kl. 13-20. arg
Ánægð með flug-
eldasöluna í ár
Þau stóðu fyrstu vaktina hjá Björgunarfélagi Akraness á fyrsta degi sölunnar. F.v. Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir, Selma Dís
Hauksdóttir, Sigurður Axel Axelsson og Þórður Guðnason.
Milli hátíða var Slökkvilið Stykk-
ishólms kallað út að gömlu ösku-
haugunum við bæinn. Í fyrstu var
grunur um íkveikju af mannavöld-
um en í ljós kom að sjálfsíkveikja
hafði orðið í moltuhaug sem þar
er. Það var því verk fyrir gröfu að
komast fyrir glóðina.
sá
Sjálfs-
íkveikja í
safnhaug