Skessuhorn - 03.01.2018, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201822
Gerðu öðrum það sem þú vilt að
aðrir gjöri þér sagði Jesús fyrir
tveimur árþúsundum, eins gott að
hann sagði okkur ekki að koma eins
fram við aðra og við komum fram
við okkur sjálf því það gæti verið
talsvert verri framkoma. Mörg okk-
ar hafa tilhneigingu til að gera aðr-
ar og meiri kröfur til okkar sjálfra en
annarra og bregðast að sama skapi
harkalegar við eigin mistökum en
annarra. „Ég ert alger hálfviti“ „Allt-
af klúðra ég öllu.“ Sjálfsvinsemd (e.
self compassion) felst í því að koma
fram við sjálfa/n sig af sömu kurt-
eisi og virðingu og þú kemur fram
við aðra, beita gullnu reglunni á þig
líka. Hann sagði víst líka að við ætt-
um að elska aðra eins og okkur sjálf,
mig grunar að þá hafi hann reikn-
að með því að fólk almennt elski
sig sjálft, sem er allur gangur á hér í
Vesturheimi. Mér skilst að það þyki
sjálfsagðara í austrænni menningu.
Sjálfsvinsemd er að gera það sem
er gott fyrir þig, en ekki að „gera
vel við sig.“ Það er til að mynda
ekki gott fyrir okkur að borða mik-
ið af kökum og sofa út í eitt, heldur
frekar að næra sig vel og fara út að
ganga. Sjálfsvinsemd er ekkert endi-
lega notaleg. Hún getur falist í erf-
iðum hlutum eins
og að losa sig úr
eitruðu sambandi
eða horfast í augu
við eigin geðvonsku
og reyna að sleppa
henni. Fíflunum
er kannski ekkert
að fjölga í kringum
þig?
Þrjár undirstöð-
ur sjálfsvinsemdar
eru almenn mann-
úð, núvitund og
sjálfsgóðvild (self kindness). Almenn
mannúð er einfaldlega að átta sig
á og vera meðvituð um að þú ert
mannleg eins og allir aðrir, það er
mannlegt að gera mistök og þú þarft
ekki að brjóta þig niður fyrir þau.
Þú þarft að horfast í augu við þau,
bæta fyrir mistökin ef það er hægt,
fyrirgefa þér svo og halda áfram.
Rétt eins og við gerum við annað
fólk í lífinu. Almenn mannúð felur
líka í sér að þú ert aldrei sá eini sem
ert að kljást við eitthvert vandamál.
Alveg sama hvað það er, þá er alltaf
einhver annar að fást við það sama,
hvort það er að læra fyrir próf eða
takast á við sorg eða erfið veikindi.
Það að koma sér í samband við fólk
í sömu sporum eða sem hefur áður
staðið í sömu sporum er oft gríðar-
lega hjálplegt. Ef það hentar ekki er
líka gott að einfaldlega hugsa til allra
hinna í sömu sporum og óska þeim
góðs, ekki síst einmitt þegar erfið-
leikarnir banka upp á. Þegar þú situr
á biðstofunni hjá lækninum gætirðu
sent hinum sem bíða þöglar bata-
óskir, það læknar þá kannski ekki,
en allar líkur eru á að þér líði aðeins
betur.
núvitund er hugleiðsluaðferð
sem felst í að einbeita sér að núinu,
oftast með því að beina athygli að
líkamanum, sérstaklega önduninni.
Þannig þjálfast einbeiting og þú
nýtur lífins betur á ögn yfirvegaðri
hátt. núvitund á tímum erfiðleika
og neikvæðra tilfinninga, gefur þér
smá fjarlægð á tilfinningarnar. Þú
ERT ekki reiður heldur finnur fyr-
ir reiðinni, þú ert ekki tilfinningin
heldur upplifir hana. Þetta hljómar
kannski eins og hártogun en það er
grundvallarmunur á því að láta til-
finningarnar yfirtaka sig eða upplifa
þær sem það tímabundna ástand sem
þær eru. Þessi munur gefur þér jafn-
vel tækifæri til að bregðast á yfirveg-
aðri hátt við ögrun sem getur kom-
ið í veg fyrir átök eða orðaskak sem
yrðu engum til góðs. Þá eru meiri
möguleikar á að nýta reiðina til góðs,
til að koma á breytingum eða stöðva
óréttlæti ef það er orsökin. Sjálfs-
góðmennska er síðan það að annast
sjálfa/n sig, og sýna sér umhyggju
einkum á erfiðum tímum. Hugsa
um hvað það er sem þú þarft til að
næra þig og láta þér líða betur. Er
það að hætta aðeins fyrr í vinnunni
til að eyða stund með barninu á leik-
skólanum, eiga kyrrláta stund eða er
það að tala vingjarnlega við þig þeg-
ar þú hefur klúðrað stóra samningn-
um í vinnunni, í stað þess að rakka
þig niður innvortis.
Það að leggja stund á sjálfsvin-
semd er hluti af geðrækt, jafn mik-
ilvægt fyrir andlega heilsu eins og
hreyfing og næring er fyrir líkam-
ann. Reyndar er hvorutveggja líka
mjög gott fyrir geðheilsuna. Þetta
er í rauninni allt líkaminn, ekki satt?
Elskaðu hann og komdu vel fram
við hann því hann ert þú.
Steinunn Eva Þórðardóttir.
Eftirmáli:
Hægt er að finna sjálfsvinsemda-núvit-
undaræfingar á netinu bæði á íslensku
og ensku, sláðu inn leitarorði (“sjálfs-
vinsemd”, ”núvitund” /“hugleiðsla” eða
ensku orðin: “self-compassion”, ”mind-
fulness”). Ég hvet þig til að hlusta, helst
daglega, á slíka æfingu.
Myndin að ofan (life is way too
short…) er af twitter reikning Action for
Happiness@actionhappiness
Heilsupistill Steinunnar Evu
Sjálfsvinsemd og sjálfsumönnun:
Gerðu sjálfri þér það sem þú gerir öðrum…
Myndlistarsýning Guðrúnar Helgu
Andrésdóttur verður opnuð í Safna-
húsi Borgarfjarðar kl. 13.00 laugar-
daginn 6. janúar nk. Guðrún Helga
býr í Borgarnesi og á ættir að rekja í
uppsveitir Borgarfjarðar og til Suð-
ur-Þingeyjarsýslu; dóttir Þorgerð-
ar Kolbeinsdóttur frá Stóra-Ási og
Andrésar Kristjánssonar ritstjóra.
Guðrún hefur lagt stund á mynd-
list um margra ára skeið og sótt sér
margvíslega menntun á því sviði
gegnum árin.
Á sýningunni eru bæði vatnslita-
og olíumyndir, flestar málaðar á
árinu 2017. Eru þær flestar af stöð-
um sem Guðrún tengist á einhvern
hátt eða hefur komið á. Með það í
huga nefnir hún sýninguna „Staðir
allt um kring.“
Meðal myndefna eru átta bæir
í Hálsasveit sem voru í Stóra-Ás
kirkjusókn áður en hún var lögð
niður og færð til Reykholts. Kveikj-
an að því er setning í bókinni Engja-
fang (útg. 2005) eftir móðurbróð-
ur Guðrúnar, Magnús Kolbeinsson
bónda í Stóra-Ási:
„Frá bernsku er mér minnisstætt
þegar ég horfði á kirkjufólkið koma
til kirkju úr þremur höfuðáttum,
framan frá Hraunsási og Húsafelli,
sunnan frá Augastöðum og Giljum
og utan frá Kollslæk, Sigmundar-
stöðum og Refsstöðum.“ Auk bæja-
myndanna sýnir Guðrún Helga
myndir af Hafnarfjalli og Skarðs-
heiði, Borgarnesi, Fagraskógarfjalli
og Hítardal auk Aðalvíkur og fleiri
staða.
Sýningin er eins og áður sagði
í Hallsteinssal í Safnahúsinu að
Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi. Hún
stendur til 2. mars. Opið er til kl.
16.00 á opnunardaginn og eftir það
13.00 - 18.00 virka daga. Aðgangur
er ókeypis.
-fréttatilkynning
„Staðir allt um kring“ - sýning opnuð í Safnahúsi
„Syngjum jólin inn,“ var yfirskrift
árlegra aðventutónleika sem fóru
fram í Reykholtskirkju fimmtu-
dagskvöldið fyrir jól. Þar komu
saman þrír kórar úr Borgarfirði;
Freyjukórinn, Reykholtskórinn
og Karlakórinn Söngbræður. Er
skemmst frá því að segja að tónleik-
arnir tókust með miklum ágætum
og flutningur kóranna, ekki í síst
í samsöngnum, var fyllilega sam-
bærilegur við það besta sem gerist í
kórsöng hérlendis. Stjórnandi allra
kóranna er Viðar Guðmundsson en
meðleikarar voru Jón Bjarnason,
Heimir Klemenzson og Atli Guð-
laugsson.
Það var Karlakórinn Söngbræð-
ur sem fyrstur hóf upp raust sína og
söng þrjú lög. Í kjölfarið fylgdi síðan
Freyjukórinn, einnig með þrjú lög.
Síðasta atriðið fyrir hlé var flutn-
ingur kvartetts á laginu „Það aldin
út er sprungið“ en kvartettinn skip-
uðu Lára Kristín Gísladóttir, Bar-
bara Guðbjartsdóttir, Halldór Sig-
urðsson og Viðar Guðmundsson.
Var það listavel gert. Eftir hlé, þar
sem boðið var upp á kaffi og heima-
bakaðar smákökur, söng Reykholt-
skórinn einnig þrjú lög. Allir kór-
arnir sungu sín lög óaðfinnan-
lega en hápunktur tónleikanna
var engu að síður samsöngur kór-
anna í fjórum lögum. Samhljóm-
ur kóranna var frábær og mynd-
aði órofna heild og sjaldan hefur
lagið „Kirkjan ómar öll,“ hljómað
betur en á þessum tónleikum. Jól-
in voru sannarlega sungin inn á Að-
ventutónleikum í Reykholtskirkju.
Birna G Konráðsdóttir
Ljósm. Gunnlaugur A Júlíusson.
Fjölmenni á árlegum jólatónleikum
Á nýjársdag sneri lestrarátak Ævars
vísindamanns aftur í fjórða skipt-
ið. Að sögn Ævars Þórs hafa síð-
ustu þrjú ár samanlagt verið lesnar
rúmlega 177 þúsund bækur í átakinu
og segir hann því spennandi að sjá
hvernig til tekst í þetta skiptið. Sú
nýlunda verður höfð á í ár að krakk-
ar í unglingadeild mega taka þátt og
þess vegna geta nú allir í 1.-10. bekk
verið með.
„Fyrir hverjar þrjár bækur sem
krakkarnir lesa fylla þau út miða sem
má finna á næsta skólabókasafni og
skilja eftir þar. Því fleiri bækur sem
þú lest, því fleiri miða áttu í pott-
inum. Þann 1. mars, þegar átakinu
lýkur, verða allir miðarnir sendir til
Ævars, sem mun af handahófi draga
fimm miða úr lestrarátakspottinum.
Þessir fimm krakkar verða gerðir að
persónum í ævintýralegri ofurhetju-
bók sem kemur út í vor, sem er um
leið fjórða bókin í Bernskubrekum
Ævars vísindamanns. Athygli er vak-
in á því að íslenskir krakkar í útlönd-
um geta líka tekið þátt, en hægt er
að nálgast lestrarmiðana og prenta
þá út í gegnum www.visindamadur.
is.“ mm
Lestrarátak
Ævars
vísindamanns
snýr aftur
Hér má sjá veggspjald sem sent
var í alla grunnskóla landsins nú í
desember, en þau voru meistaralega
hönnuð af Brandenburg auglýsinga-
stofu. Veggspjöldin virka þannig að
þegar þú gengur framhjá þeim breytist
myndin.
Borgfirska listakonan Ingibjörg
Huld Halldórsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Bókasafni
Kópavogs laugardaginn 6. janúar
klukkan 15. Ingibjörg Huld lærði
arkitektúr í Kaupmannahöfn og í
Lyon í Frakklandi og hefur starf-
að sem bæði arkitekt og hönnuð-
ur. Í tilkynningu frá henni segir að
viðfangsefni sýningarinnar sé leik-
ur listamannsins á milli hins hlut-
bundna og óhlutbundna, á milli
hversdagleikans og dagdraums.
„Þrátt fyrir einfalda umgjörð eru
verkin margslungin og leitast við
að bjóða ímyndunarafli áhorfand-
ans í dans,“ segir í tilkynningunni.
Sýningin inniheldur krosssaums-
verk og blekteikningar á pappír auk
þess sem hægt verður að bera aug-
um gifsafsteypur á opnunardaginn
en aðeins þann eina dag. Sýningin
stendur til laugardagsins 3. febrú-
ar.
arg
Opnar sýningu á
Bókasafni Kópavogs
Eitt verka listakonunnar.