Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Qupperneq 15

Skessuhorn - 10.01.2018, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 15 Áningastaður við Kirkjufellsfoss Kirkjufellsfoss hefur orðið til sem sjálfsprottinn ferðamannastaður og hefur fjöldi gesta aukist gífurlega hratt. Staðurinn er orðinn einn vinsælasti áfangastaður og mest myndaðasti ferðamannastaður á Snæfells- nesi. Á síðustu árum hefur aðstaða við fossinn verið bætt, s.s. bílastæði og göngustígar, en sú aðstaða annar ekki þeim fjölda gesta sem kemur á svæðið. Vegna aukinnar umferðar ferðamanna að fossinum er mikilvægt að byggja betri umgjörð um þennan ferðamannastað til framtíðar; umgjörð sem tryggir öryggi vegfarenda, stýrir umferð gesta um svæðið, dregur úr álagi og lágmarkar sjónræn áhrif umhverfis fossinn. Grundarfjarðar- bær áformar því að vinna deiliskipulag fyrir áfangastaðinn við Kirkjufellsfoss og nánasta umhverfi, í samvinnu við landeigendur. Í verkefnislýsingu sem nú er kynnt óskar bæjarstjórn eftir viðbrögðum vegna mótunar og þróunar áningarstaðarins. Bæjarstjórn hvetur því íbúa og aðra áhugasama til að kynna sér þá vinnu sem er að hefjast og koma á framfæri hugmyndum og ábendingum sem nýst gætu við skipulagsvinnuna og síðar frekari þróun og kynningu staðarins. Verkefnislýsinguna má nálgast á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar og á vef bæjarins www.grundarfjordur.is Í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkti bæjarstjórn á fundi þann 14. desember. 2017, að auglýsa lýsingu vegna deiliskipulags við Kirkjufellsfoss. Athugasemdir og ábendingar berist skriflega á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða með pósti merkt: Grundarfjarðarbær, Deiliskipulag, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður fyrir 1. febrúar 2018. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar Grundarfjarðarbær SK ES SU H O R N 2 01 8 Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar auglýsir lausar stöður leikskólakennara/ leiðbeinenda og við ræstingu Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu; Heiðarskóli við Leirá við Skarðs- heiði og Skýjaborg í íbúðarhverfinu Melahverfi. Laus er 100% og 50% staða leikskólakennara/leiðbeinenda í leikskólanum Skýjaborg. Laus er staða við ræstingu í Heiðarskóla. Vinnutími eftir sam- komulagi utan skólatíma samkvæmt uppmælingu. Um er að ræða ca. 6 klst. vinnu við ræstingu fimm daga vikunnar. Gæti hentað tveimur til þremur aðilum að vinna saman. Umskóknarfrestur um störfin er til 22. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð, hæfniskröfur og umsóknarfyrirkomulag um störfin er að finna á www.skoli.hvalfjardarsveit.is. SK ES SU H O R N 2 01 8 Kór Akraneskirkju blés til nýárstón- leika í Bíóhöllinni á Akranesi síðast- liðinn laugardag. Uppselt var á tón- leikana, fullt út úr dyrum og mjög ánægjulegt að sjá hversu vel var mætt. Mér finnst alltaf mjög gam- an að fara á tónleika í Bíóhöllinni því það myndar svo skemmtilega stemningu að ganga inn í sínu fín- asta pússi og fara svo að velja sér sæti í þessarri frábæru tónleikahúsi sem við Skagamenn eigum. Eftir að tónlistin tók að óma var greinilegt að prógrammið var mjög vel æft og allt til fyrirmyndar; hljóm- urinn var góður, einsöngurinn upp á tíu og Kammersveitin alveg frábær. Lagavalið var líka mjög skemmti- legt. Fyrir hlé voru leikin falleg ís- lensk dægurlög sem flestir kann- ast við, en eftir hlé tók við frum- flutningur á útsetningum John Rut- ter af lagaflokknum Feel the Spirit. Heppnaðist það mjög vel. Stjórnandi var Guðmundur Óli Gunnarsson, Auður Guðjohnsen söng einsöng á meðan Sveinn Arnar Sæmundsson, stjórnandi Kórs Akra- neskirkju, söng sjálfur með kórnum. Það mætti segja að allir ættu hér eftir að byrja árið á að fara á Nýár- stónleika Kórs Akranesskirkju. Fyr- ir mig var afar skemmtilegt að hefja árið á þessum tónleikum, sem var mikið lagt í og allt heppnaðist eins og í sögu. Allavega mun ég gera þetta að árlegum viðburði hjá mér og mæli eindregið með að aðrir geri slíkt hið sama. Takk kærlega fyrir mig! Hrafnhildur Harðardóttir Kór Akraneskirkju vann hug og hjörtu áhorfenda á tónleikunum. Ljósm. Skagafréttir. Söngkonan Auður Guðjohnsen söng einsöng á tónleikunum. Ljósm. Skagafréttir. Magnaðir nýárstónleikar Kórs Akraneskirkju Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds var spilað á Hesti í Borgar- firði um liðna helgi. Sex sveitir voru skráðar til leiks. Fimm þeirra höfðu keppnisrétt til að spila um þrjú sæti Vesturlands í undankeppni Íslands- mótsins í bridds. Hart var barist um þessi sæti og rafmögnuð spenna í síðustu setunni þegar úrlit loks réðust. Spennan um fyrsta sætið var reyndar aldrei mikil því fádæma yfirburðir einkenndu sveitina frá Bridgefélagi Akraness undir forystu Guðmundar Ólafssonar. Með hon- um spiluðu Hallgrímur Rögnvalds- son, Karl Alfreðsson og Tryggvi Bjarnason. Langefstir í Butler urðu þeir Karl og Tryggvi. Þegar síðasta setan hófst voru þrjár sveitir allt að því jafnar að stigum. Þar af var sveit Jens Sigur- björnssonar sem spilaði með Stef- áni Arngrímssyni, Gísla Þórðarsyni og Ólafi Sigvaldasyni. Þeir höfðu vermt annað sætið allt frá byrjun móts. En í síðasta leik brast þeim úthaldið, enda höfðu tveir sveitar- meðlima þurft að dúsa hálfa nótt- ina í bíl sínum fastir í snjóskafli á Vatnaleið. Meðan gátu aðrir spil- arar á mótinu undirbúið sig í fasta svefni. Lokasetan gaf því Snæfell- ingum ekkert stig sem hafði mik- il áhrif á úrslitin. Annað sætið hrepptu unga fólkið úr Borgar- firði, sveit Önnu Heiðu Baldurs- dóttur. Með henni spiluðu Ingi- mundur Jónsson, Logi Sigurðsson, Heiðar Árni Baldursson og Eyj- ólfur Kristinn Örnólfsson. Á allra síðustu metrunum skaust svo sveit Jóns Eyjólfssonar ásamt Baldri Björnssyni, Lárusi Péturssyni og Sveinbirni Eyjólfssyni upp í þriðja sætið. mm/ Ljósm. se Úrslit urðu þessi: Guðmundur Ólafsson 80,131. Anna Heiða Baldursdóttir 2. 52,54 Jón Eyjólfsson 52,193. Sigurður Már Einarsson 48,504. Jens Sigurbjörnsson 47,165. Sveinn Hallgrímsson 19,486. Skagamenn Vesturlandsmeistarar í bridds Meðalaldur sveitarinnar sem hafnaði í öðru sæti var á að giska helmingi lægri en á mótinu. F.v. Anna Heiða, Eyjólfur Kristinn, Ingimundur og Heiðar Árni. Auk þeirra spilaði Logi Sigurðsson í sveitinni. Tryggvi, Karl, Hallgrímur og Guðmundur, Vesturlandsmeist- arar. Þeir Karl og Tryggvi áttu sæti í sigursveitinni og áttu besta Butler mótsins. Hér berja þeir á þeim Sveini Hallgrímssyni og Flemming Jessen. Guðmundur og Hallgrímur taka hér tvo Péturssyni úr Kjósinni í bakaríið.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.