Skessuhorn - 10.01.2018, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201818
Rétt fyrir jólin var tilkynnt af
Akstursíþróttasambandi Íslands,
AKÍS, að tveir Íslendingar hefðu
verið skipaðir í nefndir á vegum
Alþjóðasamtaka akstursíþrótta-
manna. Er þetta í fyrsta sinn sem
Íslendingar fá sæti í slíkri nefnd og
er annar þeirra Guðný Jóna Guð-
marsdóttir sem búsett er í Borg-
arnesi. Hún fékk sæti í nefnd-
inni FIA Women in Motorsport
Commission, sem hefur það hlut-
verk að vekja athygli á og styrkja
konur í akstursíþróttum. „Konur
hafa alltaf tekið þátt á öllum svið-
um þessarar íþróttar en hafa ekki
fengið sama vægi og karlar. Þessi
nefnd varð til árið 2009 og hefur
það hlutverk að vera nokkurskonar
jafnréttisnefnd. Karlar hafa lengi
notið meiri virðingar en konur í
akstursíþróttum en þeir eru í mikl-
um meirihluta meðal ökumanna,
akstursíþróttir snúast þó ekki ein-
göngu um ökumanninn. Það eru
fjölmörg hlutverk sem skipta öll
miklu máli og konur sinna mörg-
um þeirra alveg eins og karlar, auk
þess sem konur sitja líka undir
stýri. Tilgangur þessarar nefndar
er að snúa þessu við og sýna fram á
að kyn þátttakenda á ekki að skipta
neinu máli heldur aðeins hæfileik-
ar. Markmið verkefnisins í heild
er að vekja athygli á þeim konum
sem virkar eru í dag, gera þær að
fyrirmyndum fyrir komandi kyn-
slóðir,“ segir Guðný. „Stór hluti af
þessari íþrótt er undirbúningurinn
fyrir keppnir. Það þarf að hugsa
um bílana, skipuleggja keppnirn-
ar og að lokum eru ýmis störf sem
þarf að sinna í keppninni sjálfri. Í
öllum þessum störfum eru gjarn-
an margar konur,“ bætir hún við,
en sjálf hefur Guðný mest verið
í hlutverki ljósmyndara og tíma-
varðar en hefur þó líka keppt sem
aðstoðarökumaður og tekið þátt í
ýmsum öðrum störfum sem tengj-
ast keppnum. Í Skessuhorni hafa
til að mynda birst margar fréttir
frá henni og ljósmyndir úr rallý-
keppnum hérlendis.
Var óviss um hvort hún
ætti að gefa kost á sér
Að fá sæti í nefndinni er mikill
heiður, en innan FIA eru 138 að-
ildarlönd en einungis 30 sæti í
þessari tilteknu nefnd og því ekki
öll lönd sem eiga þar fulltrúa. Að-
spurð hvernig hafi komið til að
hún var valin segist Guðný reynslu
hennar og þekkingu á aksturs-
íþróttum sjálfsagt spila stóran
þátt. „Ég held að enginn hafi bú-
ist við þessu, enda voru aðildar-
löndin flest að tilnefna fólk sem er
mjög þekkt innan íþróttarinnar og
gegnir jafnvel formennsku í sínu
félagi. Ég verð þó að segja að fer-
ilskrá mín er nokkuð góð og vænt-
anlega ástæðan fyrir því að ég fékk
þetta sæti,“ svarar hún brosandi
og bætir því við að hún hafi sjálf
ekki verið alveg viss hvort hún ætti
yfir höfuð að gefa kost á sér. „Þeg-
ar ég var beðin um að gefa kost á
mér voru fyrstu viðbrögðin að af-
þakka það. Ég gaf mér þó tíma til
að hugsa málið aðeins og fór í al-
veg 300 hringi með þetta. Það var
svo formaður AKÍS sem hringdi
í mig í september síðastliðnum
og seldi mér hugmyndina,“ seg-
ir Guðný. „Ég hugsaði svo ekkert
um þetta meir, alveg þar til ég fékk
skilaboð í miðri prófatörn núna
fyrir jólin þar sem mér var óskað
til hamingju með nefndarsætið.“
Guðný hefur því í nógu að snúast
þessa dagana en hún er með BA-
gráðu í sálfræði og er að ljúka dip-
lómanámi um fjölmenningu og
flóttafólk næsta vor og stefnir á
nám í klínískri sálfræði í haust, auk
þess sem hún vinnur hlutastarf á
Landnámssetrinu í Borgarnesi og
á tvo unglinga. „Mig vantaði ekk-
ert meira að gera, sem var ástæð-
an fyrir því að ég var svona óviss
með að gefa kost á mér. En þetta
er einstakt tækifæri fyrir mig og ég
gat ekki látið það framhjá mér fara.
Með góðu skipulagi get ég alveg
púslað þessu öllu saman, eða það
vona ég,“ segir hún og hlær.
Upphafið af
áhugamálinu
„Þetta var nú eiginlega algjör til-
viljun,“ svarar Guðný aðspurð
hvernig áhuginn kviknaði á akst-
ursíþróttum. „Þetta byrjaði árið
2009 en þá hafði ég litla þekkingu
á rallý eða öðrum akstursíþróttum.
Ég hafði aðeins fylgst með bróður
mínum sem hefur verið að keppa
í torfærunni í mörg ár en það var
allt og sumt. Á þessum tíma bjó ég
í Skagafirðinum og það hafði sam-
band við mig kona í leit að fólki í
tímavörslu á keppni þar. Ég ákvað
að slá til og fannst þetta svona
líka skemmtilegt. Ég varð því ekki
lengi að samþykkja þegar haft var
samband við mig og ég beðin um
að taka þetta aftur að mér. Þá var
ég beðin um að vera tímavörður
í tveggja daga keppni á Snæfells-
nesi,“ segir Guðný. „Þar hitti ég
einmitt einn afskaplega myndar-
legan aðstoðarökumann sem í dag
er maðurinn minn. Það má því
eiginlega segja að okkar ástarsaga
eigi upphaf undir jökli,“ bætir hún
við og hlær, en hún er gift Aðal-
steini Símonarsyni sem m.a. hef-
ur í tvígang orðið Íslandsmeistari
í rallý og deilir þeim áhuga með
ýmsum úr hans fjölskyldu. „Líf-
ið okkar snýst eiginlega um rallý
og eru sumrin til að mynda mik-
ið mótuð af keppnum. Við reynum
alltaf að mæta á allar keppnir, jafn-
vel þó við séum ekki að taka bein-
an þátt,“ segir Guðný.
Finnur fyrir því að vera
kona í akstursíþrótt
„Sem kona í rallý hef ég alveg fund-
ið fyrir að fá ekki sömu virðingu og
karlarnir,“ segir Guðný og bæt-
ir því við að það eigi þó alls ekki
við um alla. „Þetta eru bara örfá-
ir menn innan íþróttarinnar. Sem
dæmi er ég einn reynslumesti tíma-
vörður á Íslandi í dag en samt kem-
ur fyrir að það er hringt í manninn
minn til að spyrja hvort ég sé til í að
taka að mér tímavörslu, í stað þess
að hringja bara beint í mig! Það er
eins og sumir haldi að hann tali fyr-
ir mig,“ segir Guðný. „Langflest-
ir láta kyn þó ekki hafa nein áhrif
og eru sem betur fer fæstir sem láta
svona. Enda er alveg nokkuð stór
hópur kvenna á Íslandi sem tekur
þátt í rallý og standa þær sig mjög
vel. Ég tók að mér að skipuleggja
rallýkeppni hér í Borgarfirði árið
2012 og ákvað strax að reyna að fá
sem flestar konur til að taka þátt.
Ég stefndi á að hafa hina fullkomnu
keppni þar sem allt myndi ganga
upp, sem það gerði. Mér gekk vel
að fá konur í flest störf og tóku all-
ir karlarnir líka mjög vel í að hafa
konur í sem flestum hlutverkum.
Við þurfum bara að gera meira af
þessu og sýna fólki að konur eiga
alveg jafn mikið heima í aksturs-
íþróttum og karlar.“
Guðný Jóna Guðmarsdóttir í Borgarnesi:
Tekur sæti í alþjóðlegri
nefnd sem auka á vægi
kvenna í akstursíþróttum
Guðný tók þessa skemmtilegu mynd á torfærukeppni.
Guðný Jóna Guðmarsdóttir var kjörin í nefnd á vegum Alþjóðasamtaka aksturs-
íþrótta.
Guðný tekur myndir á keppnum og hafa ljósmyndir hennar ratað víða og má m.a. finna þær á veggspjöldum og í mynd-
böndum. Hún segist sjálf hafa mjög gaman að því að taka myndir þegar bílarnir keyra yfir vatn.
Ljósm. Guðný Jóna Guðmarsdóttir.