Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Page 21

Skessuhorn - 10.01.2018, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 21 Eins og glöggir lesendur Skessuhorns muna prýddi forsíðu Skessuhorns síðla í fyrrasumar mynd af Helga Fannari Þor- bjarnarsyni sem þá var ásamt öðru heimilisfólki í baggaahey- skap á Harrastöðum í Miðdölum. „Það var mikið hlegið að því að myndin af mér léttklæddum á fjórhjólinu skildi enda á forsíðu. Ég fékk ansi mikla athygli hér í sveitinni þegar blað- ið kom út, maður var blikkaður hvert sem maður fór enda fékk bændabrúnkan að njóta sín á þessari mynd,“ segir Helgi Fannar og brosir. En Skessuhorns-gamanið hélt áfram um jólin þegar ákveð- ið var að setja mynd af Helga Fannari með blaðið umrædda í jólakort frá fjölskyldunni. „Fyrir jólin fékk mamma þá hug- mynd að láta taka mynd af mér að lesa Skessuhorn og setja í jólakortin. Svo fór allt úr böndunum þegar mætt var í stúdíó og ég endaði hálf nakinn ofan í þvottabala, svona í takt við það sem var á forsíðumyndinni. Það voru nú reyndar líka teknar venjulegar myndir af mér. Ég sagði mömmu að það hefði ver- ið svo mikil fyrirhöfn að fara úr fötunum að við hefðum átt að setja svoleiðis mynd í jólakortið en hún hefur ekki þorað því og sendi mynd sem var tekin áður en balinn kom til sögunn- ar,“ segir Helgi Fannar. Í jólakorti fjölskyldunnar birtist því brosmildur sveitastrák- ur að lesa Skessuhorn þar sem hann sjálfur prýddi forsíð- una. En balamyndirnar af Helga Fannari voru ekki notaðar. „Mamma átti afmæli um daginn, ég ætti kannski að prenta eina stóra mynd af mér í þvottabalanum og gefa henni í af- mælisgjöf,“ segir Helgi Fannar og hlær. sm Þegar bændabrúnkan sló í gegn Í janúarlok á síðasta ári var Föstu- dagurinn DIMMI haldinn í fyrsta sinn í Borgarbyggð. Þennan dag voru íbúar hvattir til þess að taka sér hvíld frá raftækjum í einn dag. Draga fram kerti og vasaljós, spila- stokka og borðspil og skemmta sér við að segja draugasögur og spjalla saman. „Þessi áskorun um að hvíla síma, netið og kaffivélar eftir bestu getu og finna skemmtilegar lausn- ir, t.d. draga fram prímusa og gas- grill, reynist áskorun fyrir marga og ekki síst ungu kynslóðina sem þekkir ekkert annað en að hafa allt- af rafmagn,“ segir í tilkynningu frá þeim Evu Hlín og Heiði Hörn sem standa öðru sinni fyrir þessu átaki næstkomandi föstudag, 12. janúar. „Næstkomandi föstudag höld- um við í annað sinn Föstudaginn DIMMA og svo skemmtilega vill til að árið 2018 eru 100 ár frá því að rafmagn barst fyrst í hús í Borgar- nesi frá rafstöð Borgarneshrepps,“ segja þær stöllur í tilkynningu. Meðal dagskráratriða á föstudag- inn má nefna að Geir Konráð seg- ir draugasögur klukkan 17 í skóg- ræktinni við Bjarg og órafmagn- aðir tónleikar með Soffíu Björgu verða á HI Hostel við Borgarbraut klukkan 20. Vasaljósaganga verður um skóginn hjá Bjargi frá föstu- degi til sunnudags. Klukkan 12 á föstudaginn mun Jóhanna Skúla- dóttir halda há- deg i s f y r i r l e s t - ur í Hallsteins- sal Safnahússins sem hún kallar Um lífið í ljós- leysinu. Fimmtu- daginn 11. janúar verður ungling- um í 7.-10. bekk grunnskólanna í sveitarfélaginu boðið upp á fyrir- lestur um tölvu- fíkn. Þangað eru foreldrar þeirra jafnframt vel- komnir. Nánari upp- lýsingar um dag- inn má finna á fa- cebooksíðu föstu- dagsins dimma. mm Föstudagurinn DIMMI í Borgarbyggð „Það ætti að mínu áliti að vera mark- mið sveitarfélagsins að sem flestir eldri borgarar mæti reglulega og oft í íþóttir, sund og annað sem í boði er í íþróttamannvirkjunum sveitarfélags- ins. Fólk hefur gott af hreyfingunni, ekki síst á efri árum. Þess vegna finnst mér ámælisvert af Borgarbyggð að hækka árskort fyrir eldri borgara í sund og þreksal um rúm 42% á einu bretti. Nú kosta þau 5.900 krónur en kostuðu í fyrra 4.140 krónur,“ seg- ir Konráð Andrésson í Borgarnesi, fastagestur í sundlaug bæjarins síð- astliðin þrjátíu ár. „Mér finnst þessi hækkun alltof mikil og skora á for- svarsmenn sveitarfélagsins að breyta þessu snarlega. Menn eiga að sýna eldri borgurum þá virðingu að láta ekkert kosta fyrir þá að stunda íþrótt- ir í mannvirkjum sveitarfélagsins. Það hafa sveitarfélög víða annars- staðar gert. Slíkt sparar samfélaginu auk þess kostnað við umönnun og hjúkrun eldra fólks,“ segir Konráð. Sjálfur kveðst hann vel hafa efni á að borga fyrir að komast í sund en seg- ir engu að síður marga eldri borgara hafa minna á milli handanna og þá muni um fjárútlát af þessu tagi. Ingunn Jóhannesdóttir, forstöðu- maður Íþróttamannvirkja Borgar- byggðar, staðfestir að þessi hækkun fyrir árskort til öryrkja og eldri borg- ara hafi orðið um áramótin. Hún tekur fram að árskortin gildi í þrek- sal, sund og vatnsleikfimi allt árið. „Þessi hækkun skýrist að hluta til af því að nú er búið að samræma verð árskorta fyrir aldraða og öryrkja sem og fyrir börn niður í tíu ára aldur sem geta sömuleiðis keypt árskort. Nú er sama verðið fyrir alla þessa hópa,“ segir Ingunn. mm Finnst að eldri borgarar ættu að fá frítt í sund

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.