Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 23 Borið hefur á auglýsingum um svarta atvinnustarfsemi á vef- og samfélagsmiðlum að undanförnu. Umhverfisstofnun biður neytendur að vera á varðbergi gagnvart slíku. „Ef þjónusta er sótt til snyrtistofu, til dæmis naglaásetning, er ekki unnt að tryggja að kröfur um að- búnað, hreinlæti og sóttvarnir séu uppfylltar ef ekki hefur verið sótt um starfsleyfi. Samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng- unarvarnir, með síðari breytingum, falla m.a. rakarastofur, hárgreiðslu- stofur, nuddstofur og aðrar snyrti- stofur s.s. naglaásetningarstof- ur, einnig stofur þar sem fram fer húðgötun, húðflúr og húðrof, und- ir ákvæði laganna. Allur atvinnu- rekstur sem fellur undir starfsemi snyrtistofa skal hafa gilt starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd. Er með öllu óheimilt að hefja starfsleyfisskyld- an rekstur áður en starfsleyfi hef- ur verið gefið út. Brot gegn ákvæð- um þessara laga varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi,“ segir í tilkynn- ingu frá Umhverfisstofnun. mm Löngu er tímabært að fella nið- ur gjaldheimtuna um Hvalfjarðar- göng og að þau verði hluti af al- mennu þjóðvegakerfi landsins. Gjaldheimtan hefur reynst ein mesta töf fyrir umferð á álags- tímum og takmarkað umferðaraf- köst ganganna. Fráleitt er að fela einkaaðilum að maka áfram krók- inn á rekstri ganganna eða öðrum hliðstæðum samgöngumannvirkj- um. Ríkið hefur innheimt virðis- aukaskatt af veggjöldunum án þess að bera nokkurn kostnað af rekstri ganganna. Þar eru nokkrir millj- arðar sem gætu þegar nýst í að tvö- falda veginn um Kjalarnes eins og lofað var fyrir síðustu kosningar af öllum stjórnmálaflokkum. Eða fara milljarða ríkistekjurnar af vegfarendum Hvalfjarðarganga til að greiða óráðssíuna við gerð Vaðlaheiðarganga sem ekki sér fyrir endann á, göng sem aldrei voru á samgönguáætl- un? Ekki er hægt að bera við fjár- skorti til að standa ekki við loforð- in sem allir flokkar gáfu á sl. ári í samgöngumálum, því að síðan þá hafa tekjur ríkissjóðs aukist um tugi milljarða. Ferðaþjónustan, sem m.a. nýtir þessa vegi, skilar 535 milljörðum króna í gjaldeyristekjur til þjóðar- búsins á sl. ári. Það er bein veruleikafirring og alvarleg svik af hálfu Alþingis og þerra sem þar ráða ferð að standa ekki við gefin loforð í vegamálum. Jón Bjarnason, fv. ráðherra. Svik að standa ekki við gefin loforð í vegamálum Pennagrein Talsvert fros var á landinu fyrstu viku ársins og reyndar meira og minna síðustu tvo mánuði. Víða hefur því ís náð að myndast á ám og vötnum. Ekki er algengt að ís nái að mynd- ast í höfnum þó vissulega gerist það. Meðfylgjandi miðsvetrarmynd tók Alfons Finnsson í Rifshöfn í liðinni viku. Nú er að verða breyting í veðr- inu og útlit fyrir suðlægar áttir, úr- komu og lægðagang næstu dagana að minnsta kosti. mm Ísilögð Rifshöfn Síðar í þessum mánuði er væntan- leg skýrsla starfshóps sem Illugi Gunnarsson, þáverandi mennta- málaráðherra, skipaði til að fjalla um bætt rekstrarumhverfi einka- rekinna fjölmiðla. Skýrslan hefur verið lengi í smíðum, átti upphaf- lega að koma út fyrir vorið 2017, þá fyrir jól, en nú hefur frétta- vefurinn mbl.is það eftir Björgvin Guðmundssyni, formanni nefnd- arinnar, að skýrslan sé nú kom- in í prófarkalestur í menntamála- ráðuneytinu og verði afgreidd úr nefndinni fyrir mánaðamót. mm Nokkur af þeim héraðsfréttablöðum sem enn eru gefin út hér á landi. Skýrsla væntanleg um einkarekna fjölmiðla Varað við svartri starfsemi Á fimmtudaginn hófst formlega söfnun í minningarsjóð Skaga- mannsins Arnars Dórs Hlynsson- ar, sem lést langt fyrir aldur fram 14. september síðastliðinn. Það var Þórður Már Gylfason hjá fyrirtækinu Sansa sem hratt söfnuninni af stað, en sjóðurinn er stofnaður af Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og Íþróttabanda- lagi Akraness. Mun Sansa láta 750 krónur af hverjum matarpakka sem pantaður er fyrir miðnætti í dag, miðvikudaginn 10. janúar, renna í minningarsjóðinn. Nýtti Þórð- ur tækifærið til að skora á fleiri að leggja söfnuninni lið og hafa margir svarað kallinu. Félagar úr ´79 árgangnum munu hafa umsjón með og sjá um úthlutun úr sjóðn- um ásamt starfsmanni ÍA. Verður úthlutað árlega til þeirra aðildar- félaga ÍA sem Arnar Dór tengdist; knattspyrnufélagsins, kraftlyft- ingafélagsins og golfklúbbsins. „Arnar Dór var maður fólks- ins, það líkaði öllum vel við hann. Hann var alltaf í góðu skapi, nægjusamur, hlédrægur og kvart- aði aldrei. En hann hafði auðvi- tað fullt af göllum líka. Hann var dálítið ferkantaður, sem við vinir hans höfðum gaman af. En hann hafði húmor fyrir sjálfum sér og tók alltaf vel í það ef við félagar hans vorum eitthvað að stríða honum,“ segir Þórður í samtali við Skessuhorn. Mikil samstaða meðal Skagamanna Að sögn Þórðar hafa viðbrögðin við stofnun sjóðsins verið afar góð og fleiri viðburðir í undirbúningi til að halda minningu hans á lofti. „Það er til dæmis í bígerð minn- ingarmót í golfi og við hjá Sansa ætlum að gera þetta að árlegum viðburði. En viðtökurnar nú hafa verið afar góðar. Þetta stefnir í að verða langstærsta vikan hjá okkur í Sansa til þessa. Nú þegar, á mánu- degi, er búið að panta helming af því sem var pantað í síðustu viku, sem var einmitt metvika. Lang- flestar pantanir berast venjulega síðasta sólarhringinn þannig að ef fer sem horfir verður þetta einhver sprengja. Félagar Arnars hafa haft samband og boðist til að vinna um helgina við pökkun og að keyra út til að gera þetta hreinlega mögu- legt. Það er því ekki hægt að segja annað en að fólk hafi tekið vel í söfnunina,“ segir Þórður ánægður. „Enda er alveg sama hvert maður fer, alls staðar er mikil ánægja með framtakið og mikil samstaða með- al Skagamanna um að halda minn- ingu Arnars Dórs á lofti,“ segir Þórður Már Gylfason að endingu. kgk Halda minningu Arnars Dórs á lofti Hafin söfnun í minningarsjóð Skagamaðurinn Arnar Dór Hlynsson lést í september síðastliðnum eftir alvarleg veikindi, aðeins 38 ára að aldri. Þórður Már Gylfason í Sansa er einn af stofnendum minningarsjóðs Arnars Dórs. Þórður hefur sett upp minningarhorn um vin sinn í Sansahöllinni með mynd af Arnari Dóri og persónulegum munum úr hans eigu. Von er á fleiri gripum í safnið að sögn Þórðar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.