Skessuhorn - 10.01.2018, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201826
Kjöri Íþróttamanns Akraness 2017
var lýst að kvöldi Þrettándans eftir
að brennu og flugeldasýningu lauk
á Jaðarsbökkum. Það skyldi engum
koma á óvart að Valdís Þóra Jóns-
dóttir, kylfingur úr Leyni, hlýtur
þetta sæmdarheiti að þessu sinni.
Hún náði á nýliðnu ári besta ár-
angri íslenskra kylfinga þegar hún
komst á verðlaunapall á tveimur
stórmótum erlendis. Var þetta ann-
að árið í röð sem hún hlýtur titil-
inn Íþróttamaður Akraness, en alls
hefur hún tekið við bikarnum sex
sinnum. Í öðru sæti varð Einar Örn
Guðnason kraftlyftingamaður og
hestaíþróttamaðurinn Jakob Svavar
Sigurðarson varð þriðji.
Valdís Þóra Jónsdóttir varð Ís-
landsmeistari í höggleik í golfi
2017, er margfaldur klúbbmeist-
ari Golfklúbbsins Leynis og einn
fremsti kylfingur meðal kvenna til
margra ára og nú atvinnukona í
golfi. Hún tryggði sér keppnisrétt á
mótaröð þeirra bestu í Evrópu í lok
árs 2016 og með góðum árangri þar
tryggði hún áframhaldandi keppn-
isrétt í Evrópu LET mótaröðinni
keppnistímabilið 2018. Valdís end-
aði keppnistímablið á því að verða í
2. sæti á LET móti á Spáni og í 3.
sæti á LET móti í Kína. Valdís Þóra
keppti á US Open og varð þar með
fyrstu Íslendingum til að keppa á
risamóti í kvennagolfi.
mm/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
„Hvað borðar þú
venjulega í morgunmat?“
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Sandrine Deneuvillers
Súkkulaðimjólk og kex.
Rachel Chapelle
Súkkulaðimjólk og kex.
Geirlaug Jóna Rafnsdóttir
Ab-mjólk og/eða ab-mjólk með
hunangs Cheerios.
Brynhildur Benediktsdóttir
Kínóa graut með chia fræjum,
möndlumjólk og hreinum kanil
frá Kaju.
Elías Jóhannesson
Hafragraut og stundum Cheer-
ios til tilbreytingar
Stjórn Knattspyrnu-
sambands Íslands
hefur endurskoð-
að fyrirkomulag á
árangurstengdum
greiðslum (stigabónusum) til leik-
manna A landsliðanna vegna leikja í
undankeppnum stórmóta. Upphæð-
ir sem greiddar eru til leikmanna fyr-
ir áunnin stig í undankeppnum stór-
móta verða nú þær sömu óháð því
hvort lið er um að ræða. Hingað til
hefur fyrirkomulagið milli A lands-
liða karla og kvenna verið gerólíkt
en eftir breytinguna er fyrirkomu-
lagið orðið eins hjá báðum A lands-
liðum. „Um er að ræða umtalsverða
hækkun á stigabónus til leikmanna
A landsliðs kvenna. Því má svo bæta
við að dagpeningagreiðslur KSÍ til
leikmanna vegna þátttöku í verkefn-
um A landsliða karla og kvenna hafa
verið jafn háar í báðum liðum um
árabil,“ segir í tilkynningu frá KSÍ.
mm
Sami stigabónus
til beggja kynja
Birta Björnsdóttir blakþjálfari
heimsótti grundfirska blakara um
síðustu helgi og var með æfing-
ar fyrir alla aldurshópa. Góð mæt-
ing var á æfingarnar og létu krakk-
arnir vel að þjálfun Birtu. Þjálfar-
ar UMFG nýttu sér einnig reynslu
gestaþjálfarans til að læra meira í
blakfræðum. Kjörbúðin bauð upp á
ávexti á milli æfinga enda veitti ekki
af hollri næringu í átökunum.
tfk
Birta heimsækir Grundfirska blakara
Fyrsti leikur nýja ársins í 1. deild
karla í körfuknattleik fór fram í
Borgarnesi á fimmtudagskvöld-
ið. Þar tóku heimamenn í Skalla-
grími á móti Gnúpverjum og sigr-
uðu, 101-80.
Skallagrímsmenn höfðu held-
ur yfirhöndina í upphafi leiksins
og leiddu með þremur stigum um
miðjan fyrsta leikhluta, 16-13. Þá
náðu Gnúpverjar smá rispu og kom-
ust tveimur stigum yfir, 18-20 áður
en Skallagrímur jafnaði. Staðan var
26-26 að loknum upphafsfjórðungn-
um. Heimamenn mættu ákveðnir til
annars leikhluta og létu finna fyr-
ir sér. Þeir bættu stigum á töfluna
jafnt og þétt og gestirnir náðu ekki
að halda í við þá. Fyrir vikið hafði
Skallagrímur þægilega forystu þegar
flautað var til hálfleiks, 54-42.
Síðari hálfleikur fór hægt af stað
og þegar þriðji leikhluti var hálfnað-
ur hafði Skallagrímur að eins skorað
sex stig gegn fimm stigum Gnúp-
verja. Gestirnir voru heillum horfn-
ir í þriðja og skoruðu aðeins tólf
stig allan leikhlutann. Heimamenn
náðu aftur á móti tveimur góðum
rispum áður en leikhlutinn var úti,
juku forskot sitt fyrst í 21 stig og
síðan í 32 stig fyrir lokafjórðunginn,
76-54. Gestirnir kroppuðu nokkur
stig af forystu Skallagríms það sem
eftir lifði en sigur heimamanna var
aldrei í hættu. Fór svo að lokum að
Skallagrímur sigraði með 21 stigi,
101-80.
Eyjólfur Ásberg Halldórsson átti
stórleik og setti upp myndarlega
þrennu í liði Skallagríms. Hann
skoraði 18 stig, reif niður 20 fráköst
og gaf ellefu stoðsendingar. Aar-
on Parks var hins vegar stigahæstur
með 20 stig, Kristófer Gíslason var
með 19 stig og sex fráköst og Bjarni
Guðmann Jónsson var með ellefu
stig.
Skallagrímur trónir á toppi deild-
arinnar með 22 stig eftir 13 spilaða
leiki, tveimur stigum á undan næsta
liði. Næst leikur Skallagrímur
mánudaginn 15. janúar, þegar lið-
ið mætir Snæfelli í Vesturlandsslag
í Stykkishólmi.
kgk
Skallagrímur sigraði í fyrsta leik ársins
Eyjólfur Ásberg Halldórsson setti upp myndarlega þrennu í sigri Skallagríms.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Valdís Þóra Jónsdóttir er Íþróttamaður Akraness 2017
Þrjú efstu í kjörinu ásamt forystufólki ÍA. Sigurður Guðni Sigurðsson tók við
verðlaunum fyrir hönd Jakobs Svavars sonar síns.
Valdís Þóra Jónsdóttir tók í sjötta skipti við bikarnum sem Íþróttmaður
Akraness varðveitir í ár.
Alls voru 17 íþróttmenn í kjöri, en þeir eru tilnefndir af aðildarfélögum ÍA.