Skessuhorn - 31.01.2018, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 31. jANúAR 2018 9
FRÆÐSLUFUNDUR
Á AKRANESI
F I M M T U D A G I N N 8 . F E B R Ú A R
K L . 1 7 : 0 0 - 1 8 : 3 0
G a r ð a k a f f i
Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.alzheimer.is I alzheimer@alzheimer.is
Fræðslustjóri Alzheimersamtakanna Sirrý Sif Sigurlaugardóttir
félagsráðgjafi kynnir starfsemi þeirra og nýjustu þekkingu í málefnum fólks
með heilabilunarsjúkdóma. Laufey Jónsdóttir & Heiðrún Janusardóttir,
tenglar samtakanna á Akranesi segja frá hlutverki sínu. Heitt á könnunni.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Lýsing fyrir breytingu á aðal-
skipulagi Akraness 2005-2017
-Akraneshöfn-
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum
þann 23. janúar 2018 að auglýsa lýsingu á fyrirhugaðri
breytingu aðal- og deiliskipulags Akraneshafnar, skv.
1. mgr. 36 gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst m.a. í eftirfarandi:
Nýjum hafnarbakka
Lengingu á brimvarnargarði
Öldudeyfingu milli Aðalhafnargarðs og Bátabryggju
Lýsingin verður til kynningar í þjónustuveri
kaupstaðarins að Stillholti 16-18 og á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is. Ábendingum
og athugasemdum við lýsinguna þarf að skila
skriflega eigi síðar en 15. febrúar 2018 í
þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á
netfangið skipulag@akranes.is.
Vinnueftirlitið eftir óskar að ráða
eftirlitsmann til starfa við tækja-
og vélaeftirlit á Vesturlandi
Vinnueftirlitið óskar eftir að ráða eftirlitsmann til starfa við véla- og
tækjaeftirlit á Vesturlandi með aðsetur á Akranesi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnuvéla- og tækjaeftirlit, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
Fræðsla á námskeiðum
Hæfnikröfur
Iðnmenntun, t.d. bifvélavirkjun, vélvirkjun eða vélfræðimenntun
Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu, s.s vinna við stjórn
og/eða viðgerðir vinnuvéla
Skipulagshæfni, sjálfstæði, nákvæmni og frumkvæði í starfi
Sveigjanleiki og mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta og þjálfun í framsetningu ritaðs máls
Kunnátta í ensku og/eða Norðurlandamálum er æskileg
Tölvufærni
Reynsla af fræðslu- og kynningarstarfi kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og
Stéttarfélag Vesturlands hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun
fer fram við upphaf starfs.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Vinsamlegast sækið um á vef Vinnueftirlits ríkisins eða á Starfatorgi.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2017.
Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu og byggir starf sitt á samþættingu eftirlits,
fræðslu og rannsókna. Vinnueftirlitið starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu www.vinnueftirlit.is.
Frumkvæði - Forvarnir - Fagmennska
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Ungmennaráð Snæfellsbæjar
stóð fyrir bingói fyrir síðustu jól.
Heppnaðist það vel og var fullt út
úr dyrum á sal Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar þegar bingóið var hald-
ið. Ágóðann af bingóinu sem var
tæpar 60 þúsund krónur afhenti
Isabella Una Halldórsdóttir fyr-
ir hönd ungmennaráðs Snæfells-
bæjar félagsmiðstöðinni Afdrepi
síðastliðinn fimmtudag. Það voru
þær Sigurbjörg jóhannesdóttir
og Berglind Magnúsdóttir, starfs-
menn félagsmiðstöðvarinnar, sem
veittu gjöfinni viðtöku.
þa
Gáfu Afdrepi ágóða jólabingós
Eins og Skessuhorn hefur greint frá
var gengið frá formlegri sameiningu
hestamannafélaganna Skugga og
Faxa þriðjudaginn 16. janúar. Fékk
hið nýja sameinaða félag nafnið
Hestamannafélagið Borgfirðingur.
Þórdís Arnardóttir var kosin fyrsti
formaður félagsins en hún hefur ver-
ið virkur félagi í Faxa í fjölmörg ár,
auk þess sem hún var í stjórn samn-
ingarnefndar og í framkvæmda-
nefndinni sem tók við eftir að sam-
eining var samþykkt. „Ný stjórn
Borgfirðings er mynduð af átta
meðlimum, fjórum úr hvoru félagi.
Þetta eru allt miklir reynsluboltar
og flott fólk. Við erum samheldinn
hópur og ég hef fulla trú á að okk-
ur takist að gera Hestamannafélag-
ið Borgfirðing að stóru og flottu fé-
lagi strax frá upphafi. Nýtt félag tel-
ur rúmlega 500 meðlimi sem setur
okkur í hóp tíu fjölmennustu félaga
innan Landssambands hestamanna-
félaga. Það er því ekkert því til fyrir-
stöðu að þetta verði gríðarlega öfl-
ugt félag,“ segir Þórdís.
Að sögn Þórdísar eru næstu skref
að koma öllu starfi innan félags-
ins í gang áður en keppnistímabilið
hefst nú í febrúar. „Við erum á fullu
að hnýta alla lausa enda, ganga frá
pappírum, koma upp heimasíðu og
koma öllu starfinu af stað. Æsku-
lýðsstarfið er nú þegar farið á fullt
og erum við um þessar mundir að
klára að skipuleggja námskeið og
annað æskulýðsstarf,“ segir Þórdís.
„Það er margt skemmtilegt fram-
undan, vetrarmótin eru að hefjast og
svo undirbúningur fyrir Landsmót,
en þar verður gríðarlega skemmti-
legt að koma sameinuð fram,“ bæt-
ir hún við. Sameiningaferlið hefur
staðið yfir í rúmlega ár og að sögn
Þórdísar var þetta örlítið erfið fæðing
en hún segist fullviss um að fólk sjái
fljótt að Hestamannafélagið Borg-
firðingur geti orðið mun öflugra en
gömlu félögin voru sitt í hvoru lagi.
„Hestamannafélögin Skuggi og Faxi
hafa unnið mikið saman undanfarin
ár svo breytingin ætti ekki að verða
mjög mikil. Ég er viss um að það
muni fljótt myndast sátt og að fólk
sjái að þegar upp er staðið er mun
betra að koma fram sem eitt stórt fé-
lag heldur en tvö minni.“
arg
Þórdís Arnardóttir er fyrsti formaður
Hestamannafélagsins Borgfirðings
Fyrsta stjórn Hestamannafélagsins Borgfirðings. Frá vinstri: Guðrún Fjeldsted, Þórdís Arnardóttir, Kristján Gíslason, Reynir
Magnússon, Marteinn Valdimarsson og Haukur Bjarnason. Á myndina vantar Björgu Maríu Þórsdóttur og Sigurþór Ágústs-
son. Ljósm. Björg María Þórsdóttir.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is