Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2018, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 31.01.2018, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. jANúAR 2018 11 Á miðvikudagskvöld var haldinn opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi þar sem kallað var eft- ir vegabótum á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Að loknum erindum frummælenda var opnað fyrir fyr- irspurnir úr sal og umræður. Einn þeirra sem kvað sér hljóðs var Kar- vel L. Karvelsson, framkvæmda- stjóri Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðarins. Hann er búsettur á Akranesi og ekur um Vesturlands- veg á hverjum degi vegna vinnu sinnar, bæði framhjá Hafnarfjalli á leiðinni á Hvanneyri og um Kjal- arnes suður til Reykjavíkur. Varp- aði hann fram annarri hugmynd að fjármögnun verkefnisins en gjald- töku eða blandaðri leið gjaldtöku og opinberra framlaga. „Nú hef- ur verið fjallað mikið um lífeyris- sjóðina, þeirra peninga og hvern- ig þeir hafa verið að fjárfesta. Þeir eiga fjögur þúsund milljarða, sjóð- urinn stækkar og þeir eru í vand- ræðum. Þeir hafa verið að fjárfesta í samkeppnisiðnaði og eru í rauninni komnir í samkeppni við sjálfa sig og okkur öll. En þeir hafa að mínu viti ekki verið að fjárfesta beint í innvið- um,“ sagði Karvel. „Hvernig væri að gefa þeim tækifæri til að fjárfesta í þessu?“ spurði Karvel og hafði orð á því að samgöngubætur væru alltaf arðsamar. „Það mætti þá hafa eitt- hvað ákveðið vaxtastig og lána rík- inu til ákveðið margra ára. Ég held að þetta sé einn af þeim möguleik- um sem mætti varpa fram til að megi flýta þessu,“ bætti hann við. Í svari sínu til Karvels taldi Sig- urður Ingi jóhannsson samgöngu- ráðherra rétt með farið að vega- framkvæmdir væru aðrsamar. „Þær eru misarðsamar en þær eru all- ar arðsamar,“ sagði Sigurður Ingi. Hvað varðar aðkomu lífeyrissjóð- anna þá kynni það verða of dýrt fyr- ir ríkið að fjármagna framkvæmdina með hugsanlegu láni frá þeim. „Þeir [lífeyrissjóðirnir] hafa verið svolítið dýrir á fjármagninu en við erum opin fyrir öllum mögulegum leið- um, útilokum ekkert,“ sagði sam- gönguráðherra. kgk Hlúa að sjálfsímynd og sjálfsvitund þátttakenda. Þátttakendur hvattir til að kynnast sjálfum sér og eignast þannig verkfæri til að ea sjálfsmynd sína. Kjarninn í hverjum tíma er stutt fræðsla, samtöl og verkefni út frá henni. Lögð er áhersla á samtöl og tjáskipti í hópnum. Að allir geti kynnst eigin tilnningum og sett orð á þær. Hver samvera endar á kyrrðar- og bænarstund. SJÁLFSTYRKINGARHÓPUR Á vormisseri 2018 hefst í Akraneskirkju starf fyrir nemendur í framhaldsskóla. Markmið starfsins: Notast er við kennsluefnið AHA! sem er geð út af Kirkjuhúsinu og byggir það á aðferðafræði jákvæðrar sálfræði. Umsjónarmaður er sr. Þráinn Haraldsson prestur Akraneskirkju. 6 samverur verða á vormisseri, sú fyrsta mmtudaginn 8. febrúar kl. 17:00. Ekkert kostar að taka þátt í hópnum. Nánari upplýsingar og skráning er hjá sr. Þráni á thrainn@akraneskirkja.is Ráðherra telur of dýrt að fá lán frá lífeyrissjóðum til vegabóta „Þeir hafa verið svolítið dýrir á fjármagninu“ Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar SK ES SU H O R N 2 01 8 Hæfniskröfur: Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan • félagsþjónustu, þ.m.t. félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð. Annast greiningu og meðferð barnaverndarmála og upp-• lýsingagjöf til Barnaverndarstofu. Þjónusta og ráðgjöf við fólk með fötlun og þátttaka í • þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustu-stofnunum vegna málefna einstaklinga eða fjölskyldna. Starfssvið: Menntun og hæfniskröfur:• Starfsréttindi í félagsráðgjöf.• Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og meðferð • fjölskyldumála æskileg. Þekking og reynsla af vinnu með fólki með skerðingar • æskileg. Lipurð í mannlegum samskiptum.• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.• Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.• Félagsþjónusta Borgarbyggðar óskar eftir félagsráðgjafa í eitt ár vegna afleysinga. Um er að ræða 100% starf. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 10. febrúar nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í apríl. Launakjör eru sam- kvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félags- ráðgjafafélags Ísland. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmála- stjóri í síma 433-7100, vildis@ borgarbyggd.is og Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldu- sviðs í síma 840-1522 annamag- nea@borgarbyggd.is Á fremsta bekk sátu meðal annarra frummælendur og þingmenn. Ráðherra tók í lok erindis síns af öll tvímæli um að þegar Spöl- ur hættir rekstri Hvalfjarðarganga síðar á þessu ári og skilar göngun- um til ríkisins samkvæmt samningi, verður gjaldtöku hætt í göngin. „Ef síðar verður tekin upp gjald- taka til að mæta kostnaði við ný- framkvæmdir verður það samræmd gjaldtaka. Veggjaldahugmynd jóns Gunnarssonar náði ekki flugi þeg- ar hún var fram borin síðastliðið haust. Þær hugmyndir er því ekki að finna í stjórnarsáttmála þessar- ar ríkisstjórnar sem nú situr. Það var einna helst að hugmyndir um gjaldtöku hlytu jákvæðar viðtökur hér á Vesturlandi, en ekki í öðrum landshlutum og meðal annars ekki á Suðurlandi,“ sagði ráðherrann sem einmitt er úr því kjördæmi. 5500 mótmæla Að loknu erindi Sigurðar Inga jóhannssonar fékk Bjarnheiður Hallsdóttir orðið. Hún lýsti slæmri reynslu þeirra sem ferðast daglega um Kjalarnes til vinnu eða skóla og lýsti ástandi vegarins með ýms- um hætti, hann væri hættulegur, óöruggur, með rásum, liggur um vindasamt svæði, hann er dimm- ur og beinlínis mjög hættulegur. Meðal annars sýndi hún nýja mæl- ingu sem Sigurður Elvar Þórólfs- son framkvæmdi, sem sýnir allt upp í 35 mm rásir í veginum sem eru langt umfram það sem leyfilegt er eigi vegir að teljast öruggir. Bjarn- heiður er talsmaður hóps á Facebo- ok sem kallast „Til öryggis á Kjal- arnesi.“ Afhenti hún Sigurði Inga undirskriftir frá 5.500 manns sem krefjast þess að ráðist verði í end- urbætur á Vesturlandsvegi á Kjal- arnesi nú þegar. Í framhaldi verði tvöföldun vegarins sett á dagskrá. Í lok fundar afhenti Sævar Freyr Þrá- insson bæjarstjóri á Akranesi áskor- anir frá fjölda fyrirtækja um að ríkið hraði vegabótum á Kjalarnesi. Ályktun send heim með ráðherra Í lok fundar, áður en gestum var boðið til súpu í boði Akraneskaup- staðar, bar Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri upp eftirfarandi tillögu. Var hún samþykkt af þorra fundar- gesta sem risu úr sætum til að gefa samþykki sitt: „Opinn fundur um samgöngu- mál á Vesturlandi skorar á sam- gönguyfirvöld og Alþingi að bregðast tafarlaust við ótryggu og hættulegu ástandi Vesturlandsveg- ar á Kjalarnesi með nauðsynlegum framkvæmdum og tryggi jafnframt að tvöföldun Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum til Reykjavík- ur verði lokið innan þriggja ára. Skoðaðar verði allar leiðir sem flýtt geti þeim framkvæmdum enn frek- ar til að auka umferðaröryggi og greiða för.“ Að snúast hugur? Við þetta má bæta að í Morgun- blaðinu síðastliðinn mánudag virð- ist sem Sigurður Ingi jóhannsson ráðherra sé að færast á aðra skoðun í vegaframkvæmdum, eftir fundinn fjölmenna á Akranesi fyrir viku. Nú segir hann að mikilvæg verkefni bíði úrlausnar og nefnir tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi, þá hugsanlega með einkaframkvæmd eða með aðkomu lífeyrissjóðanna. „Þessa valkosti verður að skoða með tilliti til jafnræðis og lands- ins alls,“ sagði ráðherra í Morgun- blaðinu á mánudaginn. Hver segir svo að framsóknarmenn geti ekki skipt um skoðun? mm/ Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.