Skessuhorn - 31.01.2018, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 31. jANúAR 2018 13
Á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheim-
ili á Akranesi, verður þess minnst á
föstudaginn að fjörutíu ár eru lið-
in frá því fyrstu íbúarnir fluttu inn
á heimilið. Fyrsti áfangi dvalarheim-
ilisins Höfða var tekinn í notkun 2.
febrúar árið 1978. Eftir það hef-
ur í nokkrum áföngum verið byggt
við heimilið og starfsemi þess að
hluta breytt því Höfði er nú eink-
um hjúkrunarheimili þótt þar séu
enn nokkur hefðbundin dvalar-
heimilisrými. Íbúar á Höfða eru nú
74 talsins. Þá er jafnframt dagdeild
sem eldra fólk búsett í heimahúsum
getur nýtt sér; komið að morgni og
farið heim síðdegis. Kostgangarar
koma svo í mat í hádeginu og spjalla
saman og auk þess er seldur matur
úr mötuneyti og keyrt með hann í
heimahús. Loks eru fjögur biðdeild-
arrými á Höfða þar sem dvelja sjúk-
lingar frá Landsspítalanum sem hafa
hlotið færnimat, en bíða varanlegra
úrræða í heilbrigðiskerfinu. 21 slíkt
rými er starfrækt á Vesturlandi og er
markmið þeirra að vinna á fráflæðis-
vanda LHS. Fimmtán slík rými eru á
HVE á Akranesi og tvö í Brákarhlíð
í Borgarnesi. Starfsmenn á Höfða
eru nú 125 í 76 stöðugildum.
Kjartan Kjartansson er fjórði
framkvæmdastjóri Höfða frá stofn-
un. Fyrst gegndi Gylfi Svavarsson
starfinu, þá Ásmundur Ólafsson,
þriðji var Guðjón Guðmundsson
en Kjartan tók við 2013. Blaðamað-
ur Skessuhorns settist niður með
Kjartani í gær og fyrst var rætt stutt-
lega um sjálfan afmælisdaginn.
Afmælisfagnaður
„Afmælið höldum við hátíðlegt
föstudaginn 2. febrúar og verður
dagskráin tvískipt. Opið hús verður á
milli kl. 14 og 16 þar sem fólki gefst
kostur á að skoða heimilið og fá sér
kaffi og kleinur í leiðinni. Um kvöld-
ið verður síðan afmælisfagnaður og
þangað boðið íbúum, starfsfólki og
fyrrum starfsfólki sem hætt hefur
sökum aldurs. Þá er einnig boðið að-
almönnum í sveitarstjórnum Akra-
neskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar,
en þessi sveitarfélög eiga heimilið.
Afmælisfagnaðurinn kemur þannig
í stað hefðbundinnar Höfðagleði að
þessu sinni,“ segir Kjartan.
Tvennir samningar
sem skipta máli
Aðspurður segir Kjartan það vera
stöðuga baráttu að láta enda ná
saman í rekstri sem þessum en ætíð
reynt að hafa velferð íbúa í öndvegi.
Tvennt jákvætt í rekstarlegu tilliti
átti sér stað á liðnum árum sem bætt
hafi stöðuna að vissu marki og eytt
óvissu. „Það var búbót þegar gerð-
ur var rammasamningur við ríkið í
árslok 2016. Þá var ekki síður léttir í
ársbyrjun 2017 þegar gengið var frá
samkomulagi um uppgjör á lífeyr-
isskuldbindingum starfsmanna en
með þeim samningi var í raun verið
að aflétta einum milljarði af skuld-
um á efnahagsreikningi okkar. Þessi
atriði voru bæði jákvæð, en eftir
stendur sá vandi að við erum ekki
með nægjanlega mikið fjármagn til
að manna þau störf sem við vildum.
Ríkið er í raun ekki að greiða nema
að hluta fyrir þá mannaflaþörf sem
við faglega þyrftum miðað við lág-
marks viðmið landlæknisembættis-
ins,“ segir Kjartan.
HÖFÐI 40 ÁRA
Föstudaginn 2. febrúar verða liðin 40 ár frá því að
Höfði tók til starfa. Í tilefni af þeim merku tímamótum
verður opið hús á Höfða þann dag á milli kl. 14 og 16.
Þar gefst fólki kostur á að skoða heimilið
og fá sér kaffi og kleinur í leiðinni.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og
Strandabyggðar samþykkti þann 18. janúar 2018 að auglýsa
tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna þriggja, skv. 24. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 og tilheyrandi umhverfisskýrslu, skv.
7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Í svæðisskipulagstillögunni er sett fram sameiginleg framtíðar-
sýn á þróun landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu í þeim
tilgangi að styrkja atvinnulíf og byggð. Greind eru tækifæri
sem búa í auðlindum og sérkennum svæðisins og á grunni
þess sett fram stefna í atvinnumálum, samfélagsmálum og um-
hverfismálum og síðan skipulagsstefna sem styður við hana.
Svæðisskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslu, liggur frammi
til sýnis á skrifstofum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og
Strandabyggðar og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b í
Reykjavík, frá og með föstudeginum 26. janúar 2018 til og
með mánudagsins 12. mars 2018. Tillagan er einnig til sýnis á
vefsíðum sveitarfélaganna og á vefnum samtakamattur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við svæðisskipulagstillöguna
og umhverfisskýrslu. Frestur til að skila inn athugasemdum
rennur út í lok mánudagsins 12. mars 2018. Senda skal skrif-
legar athugasemdir til Ingibjargar Emilsdóttur formanns svæðis-
skipulagsnefndar, skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510
Hólmavík eða með tölvupósti til ingaemils@strandabyggd.is.
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar,
Reykhólahrepps og Strandabyggðar
Auglýsing um tillögu að
Svæðisskipulagi Dala, Reykhóla
og Stranda 2018-2030
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Skipulagsbreytingar
Hann segir að ráðist hafi verið í mikl-
ar skipulagsbreytingar innan húss á
Höfða fyrir um ári síðan til þess að
koma til móts við breytta samsetn-
ingu íbúa heimilisins og um leið að
létta á rekstri þess. „Þær breytingar
sem ráðist var í fyrir rúmu ári fólust
meðal annars í því að við lokum eld-
húsinu klukkan 16 á daginn og íbú-
ar snæða sem næst sínum heimilum,
á sex stöðum í húsinu. Allur matur
er engu að síður eldaður í eldhúsinu
okkar en framreiddur á hverju heim-
ili fyrir sig. Samhliða þessum breyt-
ingum voru þvottar einnig færðir inn
á deildir. Verkefni okkar er og verð-
ur að gera heimilið sem vistlegast og
umhverfið persónulegt með minni
stofnanabrag. Markmiðið er allt-
af þegar upp er staðið að öllum líði
sem best heima hjá sér,“ segir Kjart-
an Kjartansson. mm
Fjörutíu ára afmæli Höfða
fagnað næstkomandi föstudag
Leikskólabörn frá Vallarseli í heimsókn á Höfða í tengslum við Vökudaga fyrr í vetur.
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri Höfða framan við Grettistak, listaverk
eftir Magnús Tómasson sem komið var upp framan við innganginn árið 1995.
Hluti íbúa er hér á skemmtun á sal í nóvember síðastliðnum.