Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2018, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 31.01.2018, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 31. jANúAR 201816 Síðastliðinn mánudag voru níutíu ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Ís- lands, en stofnun þess markaði upp- haf skipulagðs björgunar- og slysa- varnastarfs á Íslandi. Í tilefni tíma- mótanna fögnuðu félagar í Slysa- varnafélaginu Landsbjörgu og hjá slysavarnadeildunum tímamótunum um allt land. Um kvöldið var hald- in veisla í húsnæði þeirra hringinn í kringum landið, sem endaði á því að skotið var upp hvítri sól á öllum stöðum samtímis á slaginu klukkan 21. Fram kom í ávarpi sem formað- ur Landsbjargar flutti í höfuðstöðv- um Landsbjargar á mánudaginn, og varpað var á tjald í kaffihlaðborði björgunarsveita og slysavarnadeilda á landsbyggðinni, að Slysavarna- félagið hafi verið stofnað vegna mik- illar þarfar í kjölfar tíðra sjóslysa. Verkefni björgunarsveita og slysa- varnadeilda eru enn af sama meiði; afar fjölbreytt og starf þeirra mikil- vægt nú sem fyrr. Það endurspeglast ekki síst í þeim þétta stuðningi sem landsmenn einatt sýna þegar aflað er fjár, ýmist með sölu flugelda, neyð- arkalla, blómasölu eða með öðrum hætti. Þá er vaxandi fjöldi sem gerist bakhjarl björgunarsveitinni og styð- ur starfið með reglulegum framlög- um. Björgunarsveitir eru nú sífellt mikilvægari þar sem ferðaþjónusta er að aukast og hundruðir útkalla á hverju ári tengjast ferðamönnum og öðrum sem á ferð eru til fjalla, á sjó, með flugi eða um landveg. Björgunarsveitir á Vesturlandi héldu daginn hátíðlegan líkt og á öðrum stöðum landsins. Hér fylgja nokkrar myndir sem tíðindamenn Skessuhorns og björgunarsveitar- fólk tók á mánudagskvöldið. Skessuhorn sendir Slysavarna- félaginu Landsbjörgu, björgunar- sveitum og slysavarnadeildum ham- ingju- og velfarnaðaróskir á tíma- mótunum með þökk fyrir það sem fólk leggur af mörkum á vettvangi þeirra. mm Níutíu ár frá upphafi björgunarsveitastarfs á Íslandi Listakonan Michelle Bird gaf björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi málverk sem hún gerði eftir að sveitin kom og aðstoðaði hana í óveðursútkalli. Ljósm. Brák. Þær voru glæsilegar kökurnar sem voru í boði í afmælinu hjá Klakki í Grundarfirði. Ljósm. tfk. Hressilegur hópur björgunarsveitarfólks á Akranesi eftir að hvítu blysi hafði verið skotið á loft utandyra. Ljósm. mm. Stefanía, Þórunn, Svanhvít, Ingibjörg, Unnur og Jóhanna Lind hjá Ósk í Búðardal. Ljósm. sm. Lionsklúbburinn í Ólafsvík færði útgerð Bjargarinnar í Rifi dælu að gjöf. Ljósm. þa. Þessi fjögur úr Björgunarfélagi Akraness stilltu sér upp fyrir ljós- myndara Skessuhorns, en þarna má sjá ákveðna þróun í klæðnaði björgunarsveitarfólks. Ljósm. mm. Ungar konur í Lífsbjörgu í Snæfellsbæ. Ljósm. þa. Menn gæddu sér á afmælisköku Landsbjargar í Búðardal og fylgdust með afmælisútsendingu á skjá. Ljósm. sm. Hluti gesta í húsnæði Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi. Fylgst með stjórnarfundi á skjá og köku notið. Ljósm. Brák.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.