Skessuhorn - 27.03.2018, Page 6
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 20186
Grunnskóla-
kennarar felldu
L A N D I Ð :
mikill meiri-
hluti félags-
manna í Félagi
g r u n n s k ó l a -
kennara hefur
fellt nýgerðan kjarasamning FG
og sambands íslenskra sveitar-
félaga. skrifað var undir samn-
inginn 13. mars síðastliðinn,
en atkvæðagreiðsla stóð yfir
dagana 16. til 21. mars. „Nei“
sögðu 68,52% en „já“ sögðu
29,74%. Atkvæði greiddu 3.793
félagsmenn eða 80,75%. Á kjör-
skrá voru 4.697. -mm
Umsóknir um
Handverkshátíð
NORÐURLAND: Búið er að
opna fyrir umsóknir um þátt-
töku í Handverkshátíð 2018
sem verður haldin dagana 9.-12.
ágúst á Hrafnagili í Eyjafirði.
„Ár hvert streyma til okkar þús-
undir gesta af öllu landinu. Við
leggjum mikinn metnað í fram-
kvæmd hátíðar og alla umgjörð.
Íbúar Eyjafjarðarsveitar leggjast
á eitt við framkvæmdina og mik-
il gleði ríkir. svo gestir fái notið
ár eftir ár þá teljum við nauðsyn-
legt að þróa sviðsmynd hátíðar-
innar. Það laðar fleiri að ef eitt-
hvað nýtt er að sjá. Fyrirkomu-
lag sýningarsvæðis verður því
með breyttu sniði þetta árið og
viljum við vekja sérstaka athygli
á því. meðal nýjunga er Bænda-
markaður þar sem framleiðend-
ur matvara kynna og selja sínar
eigin afurðir. Umsóknareyðu-
blað er nú aðgengilegt á heima-
síðu Handverkshátíðar - um-
sóknarfrestur er til 15. apríl
2018.“ -fréttatilk.
Eftirlitsdýralæknir
í Vesturumdæmi
VESTURLAND: matvæla-
stofnun hefur auglýst til um-
sóknar starf eftirlitsdýralækn-
is tímabundið í tíu mánuði til
starfa í Vesturumdæmi. Ráðn-
ingartíminn er 1. maí. Um er að
ræða afleysingu sem fullt eftir-
litsstarf, en hlutastarf kemur til
greina, segir í auglýsingunni.
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst
og fremst eftirliti samkvæmt
gildandi lögum og reglugerðum
á sviði matvæla og dýravelferð-
ar, heilbrigðiseftirliti í sláturhús-
um, samskiptum við opinberar
stofnanir ásamt umsjón með til-
teknum málaflokkum á verksviði
umdæmisskrifstofunnar. -mm
Bjartmar á tvenn-
um tónleikum
VESTURLAND: Tónlistar-
maðurinn Bjartmar Guðlaugs-
son verður á ferðinni um páskana
og heldur tvenna tónleika á
Vesturlandi.
miðvikudag-
inn 28. mars
verður hann
á Bistro Bar
í Grund-
arfirði klukkan 21.00. Forsala
verður á staðnum. Laugardag-
inn 31. mars klukkan 21 verður
hann svo á Gamla kaupfélaginu
á Akranesi. Á tónleikunum mun
Bjartmar bjóða upp á fjör og
gleði þar sem nýju lögin verða
spiluð í bland við þau eldri og
sagðar skondnar sögur.
-fréttatilk.
Strætó í viðgerð
AKRANES: Innanbæjarstræt-
isvagninn á Akranesi fór í við-
gerð í gær, mánudaginn 26.
mars, og verður frá af þeim sök-
um þar til á morgun, miðviku-
daginn 28. mars. Í tilkynningu
á vef Akraneskaupstaðar segir
að þessir dagar hafi verið valdir
til viðhalds og viðgerða á vagn-
inum þar sem skólastarf sé ekki
hafið enn að loknu páskafríi. Á
meðan hefur verið fengin lít-
il rúta til að leysa vagninn af.
„Því miður ekki hægt að taka
við barnavögnum í þá stærð af
rútu,“ segir í tilkynningu á vef
sveitarfélagsins. -kgk
Lóðarleigusamn-
ingur að renna út
BORGARNES: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar
síðastliðinn fimmtudag var til
umfjöllunar lóðarleigusamn-
ingur á Borgarbraut 55 í Borg-
arnesi og starfsleyfi núverandi
starfsemi á lóðinni. Þar er rek-
in verslun Líflands og Bifreiða-
þjónusta Harðar. Í fundargerð
segir að byggðarráð árétti að
núverandi starfsemi á lóðinni
er ekki í samræmi við gildandi
deiliskipulag á umræddu svæði,
en þar er skipulögð íbúðabyggð.
Lóðarleigusamningur rennur út
í apríl á næsta ári og því ljóst að
núverandi starfsemi verður ekki
til frambúðar á þessum stað.
-mm
Bíll og hestakerra fóru út af vegin-
um og ultu við Hafnarfjall snemma
síðastliðið föstudagskvöld. Þrír
voru í bílnum og voru þeir send-
ir undir læknishendur. Eitt hross
var í kerrunni og slapp það með
skrámur. Óhapp þetta má rekja til
ísingar sem gerði skömmu áður.
mm/ Ljósm. mkg
Bílvelta við Hafnarfjall
Í byrjun síðustu viku fannst þvotta-
björn við Hafnir á Reykjanesi.
Það var Borgfirðingurinn Birgir
Hauksson frá Vatnsenda í skorra-
dal sem var í fjöruferð annarra er-
inda ásamt minkahundi sínum Ty-
son: „Einu sinni í mánuði erum við
Tyson sendir til að tína öðuskeljar.
Yfirleitt finnum við ekkert annað
í þannig leiðöngrum en skeljar og
oftast nóg af þeim. Þó brá svo við í
janúarferðinni að við fundum 5000
ára gamla rostungstönn. Hún var
viðráðanleg og ekki til vandræða.
Það er annað en hægt var að segja
um þetta helgrimma helv.. kvik-
indi sem varð á vegi okkar í dag
og vildi helst drepa okkur báða,“
skrifaði Birgir að aflokinni þess-
ari fjöruferð, sem átti að vera frið-
sæl og skemmtileg, en bætir því að
Tyson hafi haft betur í viðureign
þeirra.
Eftir nokkra baráttu hunds og
þvottabjarnar varð þetta aðskota-
dýr í íslenskri náttúru að láta und-
an. matvælastofnun fékk dýrið og
hefur nú sent það í sýnatöku og
til krufningar til Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum. Rannsakað verður hvort
þvottabjörninn hafi borið dýra-
sjúkdóma með sér til landsins. Því
hefur Tyson verið gert að sæta ein-
angrun og úr honum tekið sýni þar
til niðurstaða krufningar á þvot-
tabirninum liggur fyrir. Ekki er
vitað hvernig þvottabjörninn barst
hingað til lands, en innflutningur á
þvottabjörnum er með öllu óheim-
ill. Talið er líklegt að björninn hafi
komið með vöruinnflutningi og
sloppið óséður frá skipshlið.
mm/ Ljósm. Birgir Hauksson.
Þvottabjörn veiddur á Reykjanesi