Skessuhorn - 27.03.2018, Síða 8
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 20188
Atvinnuleysi
mælist 2,4%
LANDIÐ: samkvæmt vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands er áætlað að 198.300
manns á aldrinum 16–74 ára hafi
að jafnaði verið á vinnumark-
aði í febrúar 2018, sem jafn-
gildir 80,1% atvinnuþátttöku.
Af þeim voru 193.500 starf-
andi og 4.800 án vinnu og í at-
vinnuleit. Hlutfall starfandi af
mannfjölda var 78,2% og hlut-
fall atvinnulausra af vinnuafli var
2,4%. samanburður mælinga
fyrir febrúar 2017 og 2018 sýn-
ir að vinnuaflið jókst lítillega eða
um 900 manns og hlutfall þess af
mannfjölda lækkaði um 2,7 pró-
sentustig. Fjöldi starfandi jókst
um 2.200 manns. Þrátt fyrir þá
fjölgun lækkaði hlutfall þeirra af
mannfjölda um 2,2 prósentustig.
Atvinnulausir eru um 1.200 færri
en á sama tíma árið 2017 og hlut-
fall þeirra lækkaði um 0,6 pró-
sentustig. Alls voru 49.100 utan
vinnumarkaðar og fjölgaði þeim
um 6.100 manns frá því í febrú-
ar 2017 en þá voru þeir 40.800.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 17.-23. mars
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 17 bátar.
Heildarlöndun: 61.378 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 29.016
kg í sjö löndunum.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 12.569 kg.
Mestur afli: Kvika sH: 8.791
kg í einni löndun.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 286.793 kg.
Mestur afli: Farsæll sH: 86.111
kg í tveimur löndunum.
Ólafsvík: 20 bátar.
Heildarlöndun: 556.057 kg.
Mestur afli: Bárður sH:
119.090 kg í tíu löndunum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 767.349 kg.
Mestur afli: Örvar sH: 122.189
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 28.104 kg.
Mestur afli: Hannes Andrésson
sH: 23.514 kg í fjórum löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Rifnes SH – RIF:
90.858 kg. 20. mars.
2. Örvar SH – RIF:
86.498 kg. 19. mars.
3. Tjaldur SH – RIF:
84.514 kg. 18. mars.
4. Hringur SH – GRU:
67.967 kg. 21. mars.
5. Helgi SH – GRU:
48.113 kg. 19. mars.
-arg
síðastliðinn fimmtudagsmorgun
bilaði sjúkrabíll sem ekið var í for-
gangsakstri með sjúkling frá Ólafs-
vík á leiðinni til Akraness. Bilunar-
innar var fyrst vart þegar komið var
suður að Hítará og skömmu síðar
stöðvaðist bíllinn alveg. Þurfti því
að senda sjúkrabíl úr Borgarnesi til
að sækja sjúklinginn og koma hon-
um undir læknishendur á Akranesi.
Dráttarbíll var síðan sendur til að
sækja bilaðan sjúkrabílinn og fara
með hann á verkstæði.
Var þetta í annað skiptið í sömu
vikunni sem sjúkrabíll á Vesturlandi
bilar á meðan verið er að flytja sjúk-
linga. Aðfaranótt þriðjudags bilaði
þessi sami bíll og var þá einnig í for-
gangsakstri.
Gjaldgeng fornbifreið
í flotanum
Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkra-
flutninga hjá Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, segir ástandið í sjúkra-
bílamálum vera algerlega óviðun-
andi. Bílarnir í flotanum séu gaml-
ir og brýnt sé að endurnýja flotann
hið fyrsta. „sjúkrabílarnir í umdæmi
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
eru 16 talsins. Helst hefði þurft að
endurnýja sex þeirra ekki seinna
en í gær,“ segir Gísli í samtali við
skessuhorn. Hann dregur fram lista
yfir alla bílana í umdæminu og rétt-
ir blaðamanni. Þar má sjá að tíu
sjúkrabílar af 16 eru meira en tíu ára
gamlir og þar af eru tveir bílar eldri
en 20 ára og einn er 19 ára. Elsti
bílinn er annar tveggja sjúkrabíla á
heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. sá er
af gerðinni Ford Econoline og er ár-
gerð 1993. Hann verður því 25 ára á
þessu ári. Vel að merkja er það sami
aldur og bílar þurfa að hafa náð til að
skrá megi þá sem fornbifreiðar og fá
bifreiðagjöldin niðurfelld. „Í kröfu-
lýsingu velferðarráðuneytisins fyr-
ir sjúkraflutninga var miðað við að
sjúkrabílar skyldu ekki verða eldri en
fimm ára gamlir, þá þyrfti að skipta
þeim út. meðalaldur bílanna okkar
er tæp tólf ár,“ segir Gísli.
Líf og limir undir
Undanfarin ár hefur sjúkraflutn-
ingum í umdæminu fjölgað um 12
til 15% og voru þeir samtals 2.415
árið 2017. Ýmsar ástæður segir Gísli
vera fyrir þeirri fjölgun. Til dæmis
sé sent eftir fólki vegna fjölbreytt-
ari tilfella en áður og að sjúkraflutn-
ingamenn séu betur menntaðir og
hæfari en áður til að veita heilbrigð-
isþjónustu. Það segir Gísli hið besta
mál. Hins vegar hafi flutningar líka
aukist vegna þess að vaktir heimilis-
lækna hafi sums staðar verið lagðar
af síðustu ár. Umferðarslysum hafi
fjölgað mikið vegna stóraukinnar
umferðar og að á síðustu misserum
hafi orðið þrjú rútuslys í umdæm-
inu. Á sama tíma hefur sjúkrabíla-
flotinn elst. „Það er óþolandi ástand
að hafa ekki örugg tæki sem maður
getur treyst þegar þarf að flytja fólk,
þar sem líf og limir eru undir,“ seg-
ir Gísli. „Þó að sjúkrabílum hafi alla
tíð verið mjög vel viðhaldið, þá eru
þeir einfaldlega orðnir það gamlir að
ekki er lengur hægt að sjá fyrir hvað
gæti bilað í þeim. Þess vegna er eng-
an veginn hægt að treysta þeim þeg-
ar verið er að sinna sjúku eða slös-
uðu fólki.“
Gísli segir ástand sjúkrabílaflotans
á Vesturlandi dæmigerðan fyrir land-
ið allt. Ekki einum einasta sjúkrabíl
á landinu hafi verið skipt út undan-
farin þrjú ár. Þá sé ekkert sem bendi
til þess að neinn bíll verði endurnýj-
aður í bráð. Um miðjan mars sagði
Rauði krossinn upp samningi sínum
við ríkið um allan rekstur sjúkra-
bíla á Íslandi í gengum sjúkrabíla-
sjóð samtakanna. samningur Rauða
krossins við ríkið rann reyndar út
fyrir þremur árum síðan. Undanfar-
in þrjú ár hefur samningurinn verið
framlengdur um einn mánuð í senn,
þar til fyrir tveimur vikum síðan að
Rauði krossinn sagði honum endan-
lega upp. „Fyrir vikið hefur ekkert
gerst síðan samningurinn rann út.
Engir bílar hafa verið endurnýjaðir
síðastliðin þrjú ár,“ segir Gísli.
Ástandið óviðunandi
En það er ekki nóg með að bílarn-
ir sjálfir séu gamlir og lúnir. Búnað-
urinn er í mörgum tilfellum einnig
kominn vel til ára sinna. „Börurnar
í bílunum okkar eru sumar hverjar
orðnar 30 ára gamlar,“ segir Gísli og
rifjar upp slys sem varð í umdæm-
inu fyrir bráðum tveimur árum síð-
an. „Árið 2016 valt sjúkrabíll uppi í
Borgarfirði. Þá gerðist það að sjúkra-
börurnar, sem voru orðnar gaml-
ar og lúnar, brotnuðu og þær losn-
uðu. sjúklingurinn var því laus þeg-
ar bíllinn valt, innan um sjúkraflutn-
ingamanninn og lauslega hluti sem
verið var að nota,“ segir hann. „Það
er mikil mildi að allir hafi sloppið að
mestu ómeiddir frá þessu því bíllinn
valt heilan hring. Þarna hefði getað
orðið stórslys. Ég fullyrði að sjúkra-
börurnar hefðu ekki brotnað ef um
nýjar börur hefði verið að ræða,
þær eru mun fullkomnari en þess-
ar gömlu börur sem voru í þess-
um bíl,“ segir Gísli en bætir því við
að ekkert bendi til að þessi búnað-
ur verði endurnýjaður á næstunni,
frekar en bílarnir. sjúkrabílasjóður
hafi farið með endurnýjun á bún-
aði sjúkrabílanna. „Eins og stað-
an er í dag þarf að endurnýja bör-
ur í fimm af okkar bílum og hjarta-
stuðtæki í fimm bílum einnig. Ég sé
ekki að þessi tæki verði endurnýj-
uð á meðan engir samningar eru í
gildi, ekki frekar en bílarnir,“ segir
hann og ítrekar að ástandið sé óvið-
unandi. „Að bílar stöðvist trekk í
trekk í forgangsakstri vegna bilun-
ar er algerlega óásættanlegt. Núna
er bíllinn sem bilaði í síðustu viku
á verkstæði og annar í vélarskipt-
um í Reykjavík. síðustu ár höfum
við getað fengið einhverjar gamlar
druslur þegar bílarnir hafa bilað en
núna er þeim ekki einu sinni til að
dreifa. Okkur vantar því bíla á með-
an þessir eru í viðgerð,“ segir hann.
„Endurnýjun sjúkrabílaflotans þol-
ir enga bið,“ segir Gísli Björnsson
að endingu.
kgk
„Endurnýjun sjúkrabílaflotans þolir enga bið“
- segir Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE
Ýmiss búnaður sjúkrabílanna er kominn til ára sinna, rétt eins og bílarnir sjálfir. Árið 2016 varð slys í Borgarfirði þegar
sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri og valt. Sjúkrabörurnar, sem voru orðnar gamlar og lúnar, brotnuðu og losnuðu.
Börurnar með sjúklingnum í voru því lausar í bifreiðinni við áreksturinn og veltuna, innan um sjúkraflutningamanninn
og lauslega hluti sem voru í notkun. Gísli segir mildi að allir hafi sloppið að mestu ómeiddir frá slysinu.
Gísli Björnsson er yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Sjúkrabíllinn sem bilaði í forgangsakstri síðastliðinn fimmtudagsmorgun á
pallinum á dráttarbíl Gísla Jónssonar á Akranesi. Var þetta í annað skiptið í sömu
vikunni sem sami sjúkrabíll bilar í forgangsakstri.
Tveir gamlir úr sjúkrabílaflota Vesturlands fyrir nokkrum árum síðan. Bíllinn til
hægri er árgerð 1997 og er enn í notkun í Stykkishólmi. Sá til vinstri er árgerð
1992 og er ekki í notkun lengur. Hins vegar er mjög sambærilegur bíll, ári yngri,
enn í notkun í Ólafsvík og er elsti bíllinn í sjúkrabílaflotanum á Vesturlandi 25 ára
gamall.
Afli úr Eskey ÓF á bryggjunni á
Akranesi.