Skessuhorn - 27.03.2018, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 2018 15
Við erum að fara að vinna á verk-
stæði þar í einn mánuð og vonandi
læra margt nýtt og spennandi,“ segir
hún. Áður en samtalinu lauk spurði
blaðamaður hana hvort bílamálar-
ar þyrftu að hafa einhverja sérstaka
eiginleika fyrir starfið. „Alls ekki. Ég
hafði engan sérstakan áhuga á bílum
áður en ég fór í námið og núna hef
ég í raun bara áhuga á því að mála
bílana, ekki neitt annað þeim tengt.
maður þarf heldur ekki að hafa neina
sérstaka listahæfileika, ég er í það
minnsta ekkert sérstaklega listræn,“
segir hún og hlær. „Námið er þægi-
lega byggt upp og ég held að flest-
ir ættu að geta lært að mála bíla ef
þeim langar að gera það. Þetta er
skemmtilegt nám og ég mæli mjög
svo með því,“ svarar hún.
arg/ Ljósm. úr einkasafni.
Snæfellsbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Hjúkrunarfræðingur óskast
við Dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Jaðar í Ólafsvík
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík auglýsir eftir hjúkrunar-
fræðingi til starfa í 80-100% starf. Um er að ræða framtíðarstarf.
Á Jaðri eru 12 hjúkrunarrými og 5 dvalarrými.
Heimilið var nýlega stækkað og allt tekið í gegn. Þar er vinnuaðstaða
með því besta sem gerist.
Nánari upplýsingar veitir Inga Kristinsdóttir, forstöðumaður,
í síma 857-6605.
Skriflegum umsóknum ber að skila til forstöðumanns Jaðars
fyrir 12. apríl 2018.
Ólafsvík er einn af þremur þéttbýliskjörnum sem mynda sveitarfélagið Snæ-
fellsbæ.
Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul:
Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif, Ólafsvík og
Fróðárhreppur. Í góðu veðri er Ólafsvík í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykja-
vík - og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli!
Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæfellsbæinga vel-
komna.
Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst,
enda býður bæjarfélagið upp á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi,
fugla- og dýralífi.
Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti,
gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fleira. Nýtt glæsilegt íþróttahús
er í Ólafsvík.
Öflugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma.
„Það ættu allir bara að læra það
sem þeim þykir skemmtilegt og
þetta starf hentar vel fyrir alla,“
segir Katrín Jóna Wladecka Ólafs-
dóttir bílamálari. Katrín Jóna
er rétt að verða tvítug stelpa, er
Hólmari, ættuð úr Dölum en býr á
Akranesi. Hún starfar sem bílamál-
ari hjá Nýju bílasmiðjunni í mos-
fellsbæ. Hún ætlaði upphaflega að
læra vélvirkjun en færði sig yfir í
Borgarholtsskóla og lærði að mála
bíla. „Ég fann að áhuginn lá ekki
í vélvirkjuninni svo ég prófaði að
sækja um í Borgarholtsskóla og ég
fann að bílamálun var meira fyrir
mig,“ segir Katrín Jóna. Hún lauk
námi á síðasta ári en hefur unnið
á Nýju bílasmiðjunni í rúmt ár og
líkar það mjög vel.
Vill að fólk kunni að
meta hvernig hún vinni
Aðspurð hvort margar konur séu
í bílamálun segir hún þær vera
nokkrar en karla í miklum meiri-
hluta. „Ég held að konum sé að
fjölga í þessu en það er mun meira
um karla. Ég finn þó ekkert sér-
staklega fyrir því að þetta sé karla-
stétt. Ég upplifi ekki að það sé
komið beint öðruvísi fram við mig
heldur en karla í þessari vinnu.
Það eina sem hefur aðeins stuðað
mig er þegar fólk segir við vinnu-
félaga mína: „Vá hvað þetta er sæt
stelpa sem vinnur hér.“ Ég vil frek-
ar að fólk kunni að meta hvernig ég
vinn heldur en hvernig ég lít út,“
segir hún. Katrín Jóna segir það
hafa verið aðeins erfitt að sækja
um vinnu sem stelpa en að henni
hafi svo verið tekið mjög vel þeg-
ar hún sótti um á Nýju bílasmiðj-
unni. „Þar sem ég er nemi vildi ég
sækja um á verkstæði þar sem væri
meistari að vinna. Það var eng-
in meistari á Nýju bílasmiðjunni
svo ég sótti ekki strax um þar en
ég ákvað svo að sækja um og fékk
vinnu. Núna hefur svo einn strák-
ur farið í meistaranám á verkstæð-
inu. mér var mjög vel tekið í Nýju
bílasmiðjunni strax frá upphafi en
þá hafði ég farið á milli nokkurra
verkstæða að sækja um vinnu og
fengið misjöfn viðbrögð. mörgum
fannst ég ekki alveg eiga heima í
þessari starfsstétt því ég er stelpa,
en það var ekki svoleiðis allsstað-
ar.“
Víða tengd
um Vesturland
Katrín Jóna er fædd í stykkishólmi
og bjó þar til 2008 þegar hún flutti
á Akranes með foreldrum sínum.
Hún á þó ættir að rekja í Dali og
alla leið til Póllands. „mamma mín
er pólsk og pabbi kemur úr Döl-
unum, en ég er Hólmari,“ segir
hún og brosir. Í frítíma æfir Katr-
ín Jóna box hjá mjölni og er ný-
lega farin að æfa kickbox. Hún
hefur tvisvar keppt og segist vera
spennt að keppa meira. „Þrátt fyr-
ir að hafa tapað báðum bardögun-
um var mjög gaman að keppa og
ég held bara áfram að æfa og von-
andi gengur betur næst,“ segir hún
og brosir. „Ég er að æfa sjö sinnum
í viku allt í allt en það er bæði box
og víkingaþrek sem ég æfi einnig
hjá mjölni. Það er því alveg nóg að
gera í líkamsræktinni þegar ég er
ekki að vinna,“ bætir hún við.
Skemmtilegast
að mála stærri tæki
Aðspurð hvað sé skemmtilegast
við vinnuna hugsar Katrín Jóna
sig vel um en segir það vera að
mála stóra olíutanka. „Við erum
bara að mála stærri tæki hjá Nýju
bílasmiðjunni; vörubíla, rútur, ol-
íutanka og slíkt. minnstu bílarnir
sem við málum eru sendibílar. mér
þykir mjög skemmtilegt að klára
stórt verk og horfa á nýmálaða
stóra bíla eða tanka,“ segir hún og
bætir því við að ekkert eitt í vinnu-
ferlinu standi frekar upp úr held-
ur en annað. „maður er ekki bara
að mála bílana, það þarf að slípa
gamla lakkið af, gera við dældir
eða aðrar skemmdir áður en hægt
er að grunna og svo loks mála bíl-
inn. Ég hef gaman af þessu öllu en
elska mest að horfa á verkið þegar
því er lokið,“ segir hún og brosir.
Ætlar að vinna á
verkstæði í Þýskalandi
í haust
Katrín Jóna hyggst bæta við
reynslubankann í Þýskalandi næsta
haust. „Ég ætla að fara með annarri
stelpu sem lærði með mér til Þýska-
lands í október á vegum skólans.
Segir bílamálun vera starf fyrir alla sem hafa áhuga
Rætt við Katrínu Jónu Wladecka Ólafsdóttur bílamálara
Katrín Jóna Wladecka Ólafsdóttir á útskriftardaginn í Borgarholtsskóla.
Á Nýju Bílasmiðjunni þar sem Katrín Jóna vinnur eru aðeins málaðir stærri bílar.Það þarf að gæta vel að allri undir-
vinnu áður en bílarnir eru málaðir.
Katrín Jóna í sprautuklefanum.