Skessuhorn - 27.03.2018, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 2018 17
á æfingu fyrir frumsýningu og ég
var í svo miklu uppnámi þegar ég
sá hvað var að gerast þarna, og hún
Katrín er náttúrlega æðisleg og þau
eru öll æðisleg; leikararnir, hljóm-
sveitin, sviðið, lýsingin og hljóðið,
bara allt. Og ég hringdi í manninn
minn; ég tala nú oft bæði á útsogi
og innsogi en ég held ég hafi slegið
öll eldri met í því símtali. Það er svo
gaman að sjá hvað sýningin gleður
marga því það er ekkert í heiminum
eins skemmtilegt og að gleðja fólk,“
segir margrét og brosir.
Þessi sýning hefði aldrei orðið ef
ekki hefði verið fyrir bókina sem
margrét skrifaði, eða hvað? „Nei,“
segir margrét. „Gísli leikstjóri full-
yrðir það að bókin sé grunnurinn.
Ég er mjög ánægð með það.“ Nú
sex árum eftir útgáfu bókarinnar
um Elly er margrét þó aftur farin
að fást við skriftir þó hún geti ekki
gefið upp hvert viðfangsefnið er.
„Ég er að skrifa, en það kemur í ljós
hvað það er og hvað það verður,“
segir margrét með óræðum svip.
Draumur að rætast
En hvað með fjölskylduna. Hvað
er margrét að gera hér á Akra-
nesi? „sko,“ segir hún og heldur
áfram. „Ég á náttúrlega hér dótt-
ur, tengdason, tvö barnabörn og
Höfum íbúðir til leigu á Bifröst frá 1. júní 2018
2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir.
Langtíma eða skammtíma leiga.
Um er að ræða íbúðir með sér inngangi í endurbættu fjölbýlishúsi á Bifröst.
25 mín akstur er frá Bifröst í Borgarnes.
Frekari upplýsingar eru veittar í netfangi hotel@bifrost.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Framhald á næstu síðu
hvarflaði að mér í fyrsta skipti á æv-
inni. Ég komst bara ekki lengra og
sá ekki hvernig í veröldinni ég ætti
að fara að þessu.“
Faðmaði tré algalin
sagðirðu strax já þegar þér var
boðið þetta auka ár eða þurftirðu
að velta því fyrir þér hvort þú ætt-
ir að halda áfram með bókina? „Ég
sagðist aðeins ætla að hugsa mál-
ið. stuttu seinna fékk ég símtal frá
maríu Bergmann, vinkonu Ellyjar
sem sagðist hafa fundið fjórar kass-
ettur með viðtali við Elly og þar
með gat ég haldið áfram. Kassettu-
rnar voru vendipunkturinn og það
sem bjargaði mér.“ margrét hefur
lýst því sem svo að hún hafi ver-
ið heltekin af Elly. Þegar illa gekk
í skrifunum og við blasti ókleift
hamrastál tók hún til sinna ráða.
„Ég gekk um Vaglaskóg og faðmaði
tré til að ná áttum,“ segir hún og
hlær. „Það er svo mikill ábyrgðar-
hluti að taka til umfjöllunar líf ein-
hvers, sem getur ekki sagt þér neitt
um það og setja á bók. Og Elly er
ekki hver sem er. Hún á börn og
það er fullt af fólki sem þykir vænt
um hana og þjóðin elskar hana.“
margrét hefur líka sagt frá því að
henni hafi ekki tekist að fá stað-
festar heimildir fyrir mörgu áhuga-
verðu efni sem varð þess vegna að
skilja eftir óskrifað. „Þær eru marg-
ar sögurnar og sögusagnirnar um
hana sem margir eru ekkert til-
búnir að gefa eftir. Þannig að þetta
var ansi stórt verkefni og náttúrlega
algalið að gera þetta sem sitt fyrsta
verkefni af þessu tagi. Þegar ég var
búin með bókina sagði ég við sjálfa
mig að þetta skyldi ég aldrei gera
aftur. Aldrei.“
Flúði til Bretlands
Eftir þessar hremmingar og erf-
iðleika við að koma bókinni sam-
an, hvernig var tilfinningin að
skila handritinu til útgefandans og
fá svo bókina í hendurnar? „Hún
var að mörgu leyti ágæt en ég var
svo brjálæðislega stressuð og ég
var svo hrikalega hrædd um að ég
hefði ekki gert þetta nógu vel. Það
sem bjargaði mér var að ég var með
svo dásamlegan ritstjóra, Þorvald
Kristinsson. Ég hefði aldrei klár-
að þetta án hans. svo var ég bara
svo feimin þegar ég fékk bókina í
hendur. Ég gat varla talað um þetta.
Við héldum alveg æðislega tónleika
í Laugardalshöll þegar bókin kom
út og daginn eftir flúði ég til Bret-
lands þar sem dætur mínar, tengda-
synir og barnabörn bjuggu þá. mér
fannst þetta svo erfitt og ég var svo
skíthrædd við þetta.“ Óttaðistu við-
brögðin, að leggja bókina í dóm
þjóðarinnar? „Já, en samt ekki. Ég
vissi að synir Ellyjar voru sáttir og
tvö elstu barnabörnin, ég vissi að
sigurjón bróðir hennar var sáttur
og maría vinkona hennar, þau sem
skiptu mig mestu máli. En ég var
samt eiginlega alveg lömuð af skelf-
ingu. Þetta var mér alveg rosalega
erfitt.“
Bókin fer á svið
Nokkrum árum seinna fékk mar-
grét svo annað símtal. „Þegar Gísli
Örn Garðarsson hafði samband
og spurði hvort Vesturport mætti
vinna leiksýningu upp úr bókinni
leið mér eins og ég væri fimm ára.
mér fannst það ótrúlega gaman og
frábært af því að þau eru bara svo
æðisleg og ég treysti Gísla og Ólafi
Egilssyni milljón prósent til að gera
þetta fallega. Og ég fékk aðeins
að vera með og vissi hvernig þeir
nálguðust viðfangsefnið og hvernig
þeir vildu að sýningin yrði. Það átti
að sýna öllum virðingu og þeir gera
þetta af svo mikilli væntumþykju.
Það skilar sér svo vel í þessari sýn-
ingu.“ sýningin um Elly með Katr-
ínu Halldóru sigurðardóttur í hlut-
verki Ellyjar var frumsýnd 18. mars
2017 á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins. Uppselt var á allar sýningar
fram á sumar svo að hún var færð á
stóra sviðið og þar héldu sýningar
áfram í lok ágúst. sýningin gengur
enn fyrir fullu húsi og er miðasala
hafin á 145. sýninguna sem verð-
ur í september á þessu ári. Yfir 60
þúsund manns hafa séð sýninguna
og plata með lögum úr henni hefur
selst í yfir 3000 eintökum.
Náði andanum fimm
árum seinna
Endurmenntun Háskóla Íslands
hélt námskeið í tengslum við und-
irbúning sýningarinnar árið 2017.
„Það var mjög skemmtilegt fyr-
irbæri. Þá var ég tala um bókina,
Gísli og Ólafur töluðu um leik-
gerðina, fólk fékk að fara á æfingu
og svo á sýninguna. Fyrir þetta
bjó ég til glærur og fór í gegnum
þetta allt saman aftur og það var
ekki fyrr en þá, fimm árum seinna
sem ég náði andanum og hugsaði:
Jú, líklega verður þetta bara allt í
lagi.“ Það hlýtur að hafa glatt mar-
gréti hve vel sýningin hefur geng-
ið? „Það er alveg ótrúlegt. Ég fór
Í morgunþætti á Rás 2 veturinn 1995-1996. Margrét og Gyða Dröfn Tryggvadóttir Ljósm. RÚV.
Felix, Margrét og eikarbáturinn Húni II árið 2013.