Skessuhorn


Skessuhorn - 27.03.2018, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 27.03.2018, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 201818 bráðum þrjú. samtals eigum við Guðmundur Óli maðurinn minn fimm börn: Þrjá tengdasyni, fjög- ur barnabörn og eitt á leiðinni. Guðmundur Óli er hljómsveitar- stjóri og skólastjóri tónlistarskól- ans hér. Við fluttum til Reykjavík- ur frá Akureyri 2013, þá var hann tónlistarstjóri Íslensku óperunn- ar. svo urðu breytingar þar og þá fer maður að velta fyrir sér hvað maður ætlar að gera þegar mað- ur verður stór. Og við eigandi börn og barnabörn hér og búin að koma í tuttugu sunnudagsbíltúra upp á Akranes og farin að kynn- ast bænum aðeins. svo áttum við þennan sveitadraum og vorum búin að sjá fyrir okkur suðurland- ið sem möguleika, búin að þvælast þar um í leit að jörð eða bletti til að búa á en það gekk aldrei upp, vinnulega séð. Við erum bæði þannig að okkur líður vel í minni samfélögum. Guðmundur Óli sótti um skólastjórastöðuna hér og fékk og ég get í rauninni unn- ið alls staðar og er mjög færanleg, þökk sé nútímatækni. Þá bjuggum við í Hafnarfirði en ákváðum svo að taka skrefið. Við erum búin að kaupa okkur hektara af landi fyr- ir ofan Beitistaði í Leirársveit og ætlum að byggja þar hús í sumar og flytja inn á þessu ári. Þannig að draumurinn um að vera með hesta á beit fyrir utan eldhúsgluggann er að rætast. Við verðum með Akra- fjallið öðrum megin og skarðs- heiðina hinum megin,“ segir mar- grét og brosir og sýnir blaðamanni huggulegar myndir af húsinu um leið og við fáum okkur meira kaffi í bollana. Hryssan Sigrún og áhugamálin margrét nefnir hestaáhuga manns- ins síns en hefur hún sjálf áhuga á hestum? „Ég byrjaði í fyrrasum- ar að prófa að fara á hestbak,“ seg- ir hún. „Þegar við kynntumst var ég skíthrædd við hross en maður- inn minn er alvöru hestakall, með stóru a-i. En ég prófaði og hann gaf mér hryssu í fyrrasumar, sem heit- ir sigrún. Við vorum í Fljótshlíð- inni í allt fyrrasumar og það er ekk- ert að því að fara í útreiðartúra þar með Eyjafjallajökull í fanginu. En ég býst nú ekki við að verða keppnisk- napi, ég fer mjög varlega. Er kom- in á svona fet-plús hraða. sigrún er núna í skeiða- og Gnúpverjahreppi, hrossin eru eiginlega öll þar.“ spurð hve mörg hrossin séu gefur mar- grét ekki upp nákvæma tölu, eins og sannri hestakonu sæmir: „Þau eru sirka 12,“ segir hún og hlær. Þau stefna auðvitað að því að koma hrossunum nær sér en það fyrsta sem Guðmundur Óli gerði, eft- ir að þau fluttu úr Hafnarfirði í Hvalfjarðarsveit þar sem þau búa núna, var að ganga í hestamanna- félagið Dreyra. En hver eru önnur áhugamál margrétar? Hvað gerir hún sér til dægrastyttingar? „Það skemmti- legasta sem ég veit er að stúss- ast eitthvað fyrir fólkið mitt. mér finnst rosa gaman að elda og ofsa gaman að fá alla í mat. Ég er hepp- in með það að eiga mann sem er mjög móttækilegur fyrir því að láta dekra við sig. mér finnst voða gaman að prjóna og ég er svolít- ið bíómyndanörd, dett stundum í bíómyndagláp. svo er ég alltaf að byrja í einhverju heilsuátaki og hef mikla ástríðu fyrir því hvað ég borða, hvað ég set ofan í mig. Ef ég ætti að segja hvað væri áhuga- málið mitt væri það að gleðja fólk- ið mitt. Ég held því fram að barna- börn séu besta uppfinning í heimi. Ég á þessi fjögur sem eru öll alveg ótrúlega skemmtileg og hvert með sínu sniði. Og ég var svo heppin að verða ung amma, elsta barnabarn- ið er 13 ára þannig að hann er að ná mér!“ Unnið með tengdasyninum margrét hefur unnið nokkur verk- efni með einum tengdasyninum, Heiðari mar Björnssyni kvik- myndagerðarmanni á Akranesi. „Ég gerði tvær seríur af þættin- um Að sunnan fyrir sjónvarps- stöðina N4. Þættirnir fjölluðu um málefni tengd suðurlandi og við Heiðar gerðum seinni seríuna saman. Heiðar og Hlédís sveins- dóttir gerðu svo og gera enn þætt- ina Að vestan. svo gerðum við til dæmis þætti sem við vorum búin að ganga lengi með í maganum, þætti um útlendinga á Íslandi. Það er svolítil ástríða hjá mér. mér finnst skipta svo miklu máli að við gerum okkur grein fyrir því hvað það eru mikil verðmæti sem fel- ast í fjölbreytileikanum. Við gerð- um sex þætti sem fjölluðu um sex einstaklinga héðan og þaðan sem sögðu frá lífi sínu. Og allir eiga sér sögu og það er svo gaman þegar fólk er til í að segja sögu sína. Og þetta var alveg ótrúlega skemmti- legt. mér þótti svo vænt um þetta og það var svo gaman að vinna þetta með honum.“ Er ekkert mál fyrir ykkur tengdasoninn að vinna saman? „Nei, það er ekkert mál, við erum alltaf í einhverjum verk- efnum og hann er alveg ótrúlega duglegur að druslast með tengdó og þeir tengdasynirnir. Ég er mjög heppin með þá, þeir nenna alveg að hafa mann með,“ segir margrét og brosir. Elskulegt og skemmtilegt samfélag Hvaða augum lítur Akureyring- urinn margrét Akranes og nær- sveitir? Tekur hún eftir einhverj- um einkennum eða sérkennum samfélagsins? „mér finnst fólk- ið hérna mjög opið og elskulegt og ég finn ekkert fyrir því að ég sé svona einhver utanaðkomandi sem er að rugla sýsteminu. mér finnst allir svo til í allt. Til dæm- is fórum við dóttir mín sara Hjör- dís og Hlédís að gera Jólaævintýr- ið í Garðalundi, sem er hugmynd sem ég fékk og gerði fyrst í Hellis- gerði í Hafnarfirði. Við ákváðum að breyta því aðeins og aðlaga að Garðalundi. Við áttum von á að það kæmu kannski 200 manns. svo sé ég bara nánast allt Akra- nes stefna á mig um kvöldið, það komu um 2000 manns! Hvort sem það er smátt eða stórt þá er hér svo opið og elskulegt fólk sem er alveg til í að gera allskonar skemmtilega hluti. mér finnst það svo heillandi og vera einkennandi fyrir bæinn. Það viðhorf kemur öllum til góðs. Ég hef aldrei heyrt neinn segja: „Þetta hefur nú verið reynt og það þýðir ekki neitt.“ mér finnst þetta elskulegt og skemmtilegt samfé- lag. Þegar mann langar að verða partur af því samfélagi sem mað- ur býr í þá get ég ekki annað en mælt með Akranesi. svo er allt sem við kemur skólamálum hér frábært. Öll skólastig eru frábær. Ég hef kynnst því í gegnum barna- börnin og manninn minn hvern- ig hlutirnir eru hugsaðir hérna og mér finnst það ofboðslega fallegt. Þannig að ég ætla kannski ekki að fara að hlaða niður börnum heldur barnabörnum, ég er í góðum mál- um með þau,“ segir margrét að lokum. En hvað ætlar hún að gera um páskana? „Ég verð að vinna bæði á skírdag og páskadag en svo ætlum við að vera með börnin okkar í mat og tengdafjölskylduna mína líka. Þannig að ég vona að ég fái bara að dekra sem mest við mitt fólk á milli þess sem ég bulla eitthvað í útvarpið með Felix. Ég held að það sé mjög fín uppskrift að páskum,“ segir margrét Blön- dal að endingu. aóa/ Ljósmyndir úr einkasafni nema annað sé tekið fram. Útskriftardagur. Dætur Margrétar útskrifuðust báðar úr breskum háskólum sumarið 2014. Sigyn Blöndal, Sara Hjördís Blöndal og Margrét. Við Gluggafoss með Eyjafjallajökul í bakgrunni. Tvö eldri barnabörnin, Breki Blöndal Egilsson og Ylfa Blöndal Egilsdóttir, ásamt Guðmundi Óla Gunnarssyni og Margréti. Ekkert jafnast á við að vera með tengdamömmu í tökuferð fyrir N4 á Blönduósi á Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri. Margrét og Heiðar Mar Björnsson. Hluti fjölskyldunnar eftir tónleika í Beethoven-Haus í Bonn. Berglind Jónsdóttir, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, Margrét, Guðmundur Óli og Jón Þorsteinn Gunnarsson. Margrét og hryssan Sigrún.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.