Fréttablaðið - 14.11.2019, Page 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Of snemmt?
Í einu bréfa sinna til RÚV í aðdrag-
anda Kveiksþáttar um meintar
mútugreiðslur Samherja í Afríku-
ríkinu Namibíu kveðst forstjóri
fyrirtækisins hafa fengið til liðs við
sig norskan mann að nafni Håkon
Borud hjá ráðgjafarfyrirtækinu
First House. Borud, sem sé fyrr-
verandi fréttastjóri hjá Aftenposten
og verði tengiliður og ráðgjafi Sam-
herja í viðræðum við RÚV.
Vegna ummæla í bréfum for-
stjórans, Þorsteins Más Baldvins-
sonar, um að Samherji hefði upp-
lýsingar sem myndu breyta þeirri
frétt sem fréttaskýringarþátturinn
Kveikur síðan birti í fyrrakvöld setti
Fréttablaðið sig í samband við hinn
norska tengilið fyrirtækisins og
lagði fyrir hann nokkrar spurningar
og óskaði auk þess að fá gögn sem
lesa mátti úr bréfum forstjórans
til RÚV að fyrirtækið byggi yfir og
gætu sýnt frá á að það hefði ekki
haft rangt við í Namibíu.
„Hefur Samherji að þínu mati,
eins og forstjóri þess heldur fram
í bréfi til RÚV sem nú hefur verið
gert opinbert, skjöl sem sanna að
ásakanir fyrrverandi starfsmanns
Samherja, Jóhannesar Stefánssonar,
séu rangar og að Samherji sé ekki
sekur um af hafa á nokkurn hátt
haft rangt við í gegn um starfsemi
sína í Namibíu?“ var Borud spurður
í tölvuskeyti Fréttablaðsins til hans
í gær.
Ennfremur var ráðgjafinn inntur
eftir því hvort hann teldi orðspor
Samherja hafa beðið hnekki vegna
fréttaflutningsins og hvort von væri
á frekari yfirlýsingum frá Samherja
varðandi málið.
Engin viðbrögð fengust frá Borud
sjálfum heldur barst svar frá starfs-
manni Samherja hér á Íslandi. „Við
þökkum þér fyrir tölvupóstinn til
Håkon Borud hjá First House. Við
erum á þessum tímapunkti enn að
vísa fjölmiðlum á fréttatilkynning-
arnar á heimasíðu Samherja,“ sagði
í tölvupósti sem barst frá Margréti
Ólafsdóttur, aðstoðarmanni for-
stjóra Samherja. Vísaði Margrét
þar í tvær tilkynningar sem Sam-
Samherji mun að
sjálfsögðu, hér eftir
sem hingað til, starfa með
hlutaðeigandi stjórnvöldum
sem kunna að rannsaka
umrædd viðskipti í nami-
bískum sjávarútvegi.
Margrét Ólafsdóttir,
aðstoðarmaður forstjóra Samherja
Útnefndur tengiliður Samherja þögull
Viðar Helgason f iskifræðingur
segir tíðindin um framferði Sam-
herja í Namibíu vera áfall fyrir sig
og þá sem unnið hafa að þróunar-
málum í Namibíu. Hann lýsir
adragandanum að starfi Íslands
í Namibíu þannig að íslensku
ríkisstjórninni hafi borist bréf
frá Namibíu mjög stuttu eftir að
landið öðlaðist sjálfstæði árið
1990. Eftir að Suður-Afríka dró
sig út úr landinu hafi innviðakerfi
landsins hrunið. Óskað hafi verið
eftir aðstoð frá Íslandi við haf-
rannsóknir og sjávarútvegsmál og
Viðar var kominn út strax tveimur
mánuðum eftir að ný ríkisstjórn
tók við völdum í Namibíu haustið
1990.
Hlutverk Þróunarsamvinnu-
stofnunar í Namibíu var tvíþætt
og fólst annars vegar í því að koma
rannsóknarskipi Namibíumanna
í stand og reka það og hins vegar
að aðstoða við rannsóknir. Viðar
segir að hópurinn hafi átt gott sam-
starf við sjávarútvegsráðuneytið
í Namibíu. Hann minnist samtals
við þáverandi ráðuneytisstjóra
um ástæður þess að leitað var til
Íslands. „Hann sagði það við okkur
berum orðum, það væri vegna þess
að Namibíumenn álitu Íslendinga
ólklegasta allra til að fara að sýna
einhverja nýlendutilburði. Ísland
væri svo lítið ríki og af því færi gott
orð,“ segir Viðar. Ráðuneytisstjór-
inn hefði sagt: „Við höfum búið
við nýlendustefnu í hálfa öld og
ætlum ekki að fara að f lytja hana
inn sjálfir.“
Haukur minnist þess einnig sér-
staklega hversu mikil áhersla var
lögð á það af stjórnendum aðstoð-
arinnar að blanda ekki einhverjum
viðskiptahagsmunum íslenskra
fyrirtækja í vinnuna. Þrátt fyrir það
hafi verið töluverð tortryggni gagn-
vart þeim í upphafi.
„Það tók okkur töluverðan tíma
að ávinna okkur traust heima-
manna. Þegar þeim loksins skildist
að við vorum hvorki komnir til að
ýta undir íslenska hagsmuni né
greiða götu íslenskra fyrirtækja, þá
róuðust þeir,“ segir Viðar og undir-
strikar að hlutverk Íslands hafi
alltaf verið ráðgjöf en ekki yfirtaka
á ákvörðunarvaldi.
Með tímanum hafi Íslendingum
sem unnu í Namibíu tekist að
ávinna sér traust. Stjórnvöld þar
hafi til dæmis lagt mikið traust á
ráðgjöf Íslendinganna, ekki síst
þegar illa gekk að ráða við Suður-
Afríkumenn sem áttu gríðarlega
mikið undir í veiðum á svæðinu.
„Það varð ljóst nokkru eftir alda-
mótin að Namibía var ekki lengur
styrkhæf og formlegur endir varð á
starfi okkar þar árið 2010 og starfið
færðist annað, meðal annars til
Malaví. Samherji kemur svo þarna
inn ári seinna og það er ekki vafi í
mínum huga að þeir byggðu á því
orðspori sem við vorum búin að
byggja upp,“ segir Viðar. Hann hefur
áhyggjur af orðspori Íslands ekki síst
þar sem við erum nú þegar að veita
þróunaraðstoð í sunnanverðri Afríku.
„Þessi ríki hafa alltaf haft ákveð-
inn fyrirvara á Evrópuríkjum og
ekki verður þetta til að bæta úr
skák,“ segir Viðar og bætir við: „Þess
vegna skipta viðbrögð íslenskra
stjórnvalda út á við öllu máli. Ef
umheiminum verður ekki sýnt að
þetta teljist ekki góð latína á Íslandi
mun enginn taka mark á okkur
framar.“
Viðar telur reyndar að Íslend-
ingar þurfi almennt að hugsa sinn
gang þegar kemur að fiskveiðum
og alþjóðasamskiptum. „Orðspor
okkar í fiskveiðum er því miður
farið að einkennast af því að við
stöndum ekki við gerða samninga,“
segir Viðar og tekur dæmi um fiski-
stofna sem fara milli lögsögu ríkja
á borð við makríl, síld og loðnu.
Hvalveiðar Íslendinga séu enn eitt
dæmi. Tímabært sé að Íslendingar
hugsi sinn gang.
adalheidur@frettabladid.is
Tók langan tíma að byggja upp traust
Fiskifræðingur sem starfaði fyrir Ísland í Namibíu segir orðspor Íslands stórskaðað. Hann tekur framferði Samherja nærri sér á per-
sónulegan hátt en langan tíma hafi tekið að byggja upp traust til Íslands í Namibíu. Viðbrögð íslenskra stjórnvalda skipti öllu máli.
Íslendingar þurfi að hugsa sinn gang varðandi fiskveiðar og alþjóðasamskiptum FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
herji sendi frá sér í fyrradag og í
gærkvöldi.
„Á meðan er Alþjóðlega lög-
mannsstofan Wikborg Rein í Noregi
að rannsaka starfsemina í Afríku
fyrir Samherja og verður send ný
yfirlýsing um leið og niðurstaða úr
þeirri rannsókn liggur fyrir. Sam-
herji mun að sjálfsögðu, hér eftir
sem hingað til, starfa með hlutað-
eigandi stjórnvöldum sem kunna
að rannsaka umrædd viðskipti í
namibískum sjávarútvegi,“ bætti
Margrét við.
Beðin um að staðfesta að þetta
svar þýddi þá að Fréttablaðið fengu
hvorki við svör við spurningum
sínum né þær upplýsingar sem
forstjóri Samherja nefnir í bréfum
sínum til RÚV og kveður hafa getað
breytt þeirri frétt sem Kveikur síðan
birti í fyrrakvöld kvað Margrét svo
vera. „Já, Samherji er á þessum tíma-
punkti ekki tilbúinn að svara nánar
um málið.“ gar@frettabladid.is
Namibíumaður úr sjávarútvegi þar í landi ásamt forstjóra Samherja.
SAMHERJAMÁLIÐ
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:4
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
A
-D
D
F
C
2
4
3
A
-D
C
C
0
2
4
3
A
-D
B
8
4
2
4
3
A
-D
A
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K