Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 14.11.2019, Qupperneq 18
Að Fjallabaki er fjöldi náttúruperlna sem eru mörgum lítt kunnar. Það kemur á óvart því þær eru steinsnar frá fjölförnum viðkomustöðum eins og Landmannalaugum og Laugaveginum, einhverri frægustu gönguleið í heimi. Sumir þessara staða eru í felum og erfitt að komast að þeim nema gangandi. Þetta á þó ekki við um ljós- brúnt Laufafell og snoturt vatn, Laufavatn, sem liggur við rætur þess og meðfram mosavöxnu Laufahrauni. Laufafell sést víða af vestanverðu Fjallabaki, enda 1.164 m hátt. Þetta er dæmigerður stapi girtur hamra- belti efst, líkt og Herðubreið og Hlöðufell, og að mestu leyti úr líparíti eins og svo mörg fjöll á Torfajökuls- svæðinu. Talið er að Laufahraun hafi runnið eftir land- nám en nokkrir gíganna sem það rann úr eru fylltir vatni og kallast Grænavatn. Tiltölulega auðvelt er að komast að Laufafelli á fjórhjóladrifnum bílum. Stefnan er tekin á vistlegan skála Útivistar sem heitir Dalakofi og stendur í 750 m hæð rétt norðan fjallsins og er hann hitaður upp með jarðhita. Hægt er að velja um nokkrar leiðir í Dalakofann, m.a. tvær af Fjalla- baksleið nyrðri eða að sunnanverðu af Fjallabaks- leið syðri. Hægt er að hefja gönguna frá skálanum eða aka að rótum fjallsins vestan megin. Þar liggur helsta gönguleiðin upp lausar skriður en suður- og austurhlíðar fjallsins henta alls ekki til uppgöngu. Af tindinum er frábært útsýni yfir að Hrafntinnu- skeri og miðhluta Laugavegarins en einnig Reykjadali sem státa af óteljandi gufuhverum í sundurskornum ljósum giljum. Í suðri blasa Tindfjöllin við og í vestri Rauðfossafjöll og sjálf Hekla. En það er Laufaþrennan sem á athyglina skilið enda bjóða fell, vatn og hraun upp á einstakt litaspil. Fyrir þá sem ekki eru spenntir fyrir fjallgöngu er tilvalið að ganga í kringum Laufafell. Frá Dalakofa er gengið í austur og Markarfljótinu fylgt norðan við Laufafellið. Þarna má sjá tilkomumikinn en nafnlaus- an foss í Fljótinu, eins og bændur kalla Markarfljótið á þessum slóðum. Haldið er áfram meðfram fjallinu í litla gróðurvin austan þess sem kallast Hvannstóð. Eftir það tekur Laufahraunið við með Laufavatni og fjölda annarra tjarna sem sumar fela sig í smágígum. Þetta er tæplega 15 km ganga úr Dalakofa og tekur daginn en er mest á jafnsléttu. Tilvalið er að gista í Dalakofa og skoða fleiri náttúruperlur í sömu ferð, t.d. Rauðfossafjöll og Reykjadali. Svæðið hentar einnig sérlega vel fyrir fjallahjól og hestaferðir. Laufaþrenna að Fjallabaki Laufaþrennan séð úr lofti, en aðeins sést í hluta Laufafells.  MYNDIR/ÓMB Laufafell er stapi eins og Herðubreið og sést líka víða að. Laufavatn og Laufahraun bjóða upp á mikið litaspil og umhverfi þeirra er einstakt. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari TILVERAN 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 A -C 5 4 C 2 4 3 A -C 4 1 0 2 4 3 A -C 2 D 4 2 4 3 A -C 1 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.