Fréttablaðið - 14.11.2019, Side 22

Fréttablaðið - 14.11.2019, Side 22
Sykursýki týpa 1 getur verið lífsógnandi sjúkdómur og verkefni daglegs lífs geta sannarlega verið áskorun fyrir ein- staklinginn og nánasta umhverfi hans. Rannsókn sem var gerð við Stanford-háskóla í Kaliforníu í Bandaríkjunum árið 2014 gaf til kynna að einstaklingur með syk- ursýki týpu 1 (hér eftir T1) tekur að meðaltali um 180 ákvarðanir vegna sjúkdómsins á degi hverjum. Einstaklingar með T1 þurfa að búa yfir góðri þekkingu á viðbrögðum eigin líkama og áhrifaþátta á eigin blóðsykurstjórnun til að geta við- haldið eigin heilbrigði. Ótal þættir hafa áhrif á blóðsykurstjórnun, s.s. fæðuinntekt, hreyfing, insúlín- gjafir, streita og veikindi. Fram- þróun í meðferð og meðhöndlun er hröð og hafa einstaklingar sem greinast með sjúkdóminn tækifæri á að viðhalda eigin heilbrigði með hjálp tækninnar umfram það sem áður þekktist. Sykursýki er samheiti yfir sjúk- dóma sem eiga það sameiginlegt að valda of háum blóðsykri. T1 veldur algjörum insúlínskorti, meðferð er insúlín í stunguformi ævi- langt. Meðferð með insúlíndælu verður æ algengari. Dælan gefur insúlín stöðugt undir húð og veitir möguleika á blóðsykursíritun á 5 mínútna fresti. Nýjasta dælan á íslenskum markaði leitast við að halda blóðsykri stöðugum og lærir á einstaklingsbundnar sveif lur. Einstaklingar með T1 geta verið mjög heilbrigðir þó þeir lifi með lífsógnandi sjúkdóm. Erlendis er talað um sykursýki sem ástand (e. condition) en ekki einstaklinga sem sjúklinga. Það er mikið afrek að lifa með T1 svo árum skiptir með jöfnum og góðum blóðsykri og langtíma blóðsykurgildum á pari við þá sem teljast heilbrigðir án fylgikvilla sjúkdómsins. Sann- gjarnt væri að uppskera væri í sam- ræmi við slík afrek. Ung kona lauk grunnnámi í f lugumferðarstjórn árið 2012 og fékk atvinnuf lugmannsskírteini ári síðar. Þegar hún var í atvinnu- leit sem f lugmaður greindist hún með T1. Blóðsykurstjórnun hefur alla tíð verið nánast fullkomin. Blóðsykurinn viðráðanlegur og hún hefur aldrei misst meðvitund vegna of lágs blóðsykurs. Hár blóðsykur hefur ekki verið vanda- mál. Hún er ekki með af leiðingar af sjúkdómnum, er heilbrigð og hraust og stundar hlaup og lyft- ingar. En má ekki starfa við það sem hún hefur menntað sig til. Í haust sótti 23ja ára kona um námspláss í lögreglufræðum. Heil- brigð og hraust kona sem hefur lengi dreymt um að starfa í lög- reglunni. Greindist fyrir 13 árum með T1. Blóðsykurstjórnun hefur yfirleitt gengið mjög vel, unglings- árin áskorun eins og gengur. Hún stundar reglulega hreyfingu og er í góðu formi líkamlega og andlega. Hún hefur námið með mikla eftir- væntingu. Þegar nokkrar vikur eru liðnar af fyrstu önn bóklegs náms fer hún í læknisskoðun fyrir starfsnámið. Hún fær ekki að hefja starfsnám í lögreglufræðum þó að heilbrigðisskoðunin hafi komið vel út. Ástæðan er að „sykursýki sem meðhöndluð er með insúlíni og/eða öðrum blóðsykurlækkandi lyfjum er útilokandi fyrir þátttöku í náminu“. Með öðrum orðum „computer says no“! Sykursýki sem krefst lyfjameð- ferðar er útilokandi þáttur fyrir ákveðin störf á Íslandi. Það á við um f lug menn, lög regluþjóna, sjúkraf lutningamenn og slökkvi- liðsmenn. Það er þó ekkert því til fyrirstöðu að einstaklingar með sykursýki týpu 1 mennti sig til starfa á sjúkrahúsum landsins. Það er ekkert því til fyrirstöðu að ein- staklingur með T1 sé heilaskurð- læknir á Íslandi á sólarhrings- vöktum svo dæmi sé tekið. Hvaða faglegu gagnreyndu rök geta legið fyrir útilokun sem þess- ari árið 2019? Leitað hefur verið svara frá þeim aðilum sem bera ábyrgð á matinu hér á landi. Svarið sem fengist hefur er: svona er þetta á hinum Norðurlöndunum og hefur verið svona síðustu 10 árin. Er ekki orðið tímabært að endur- skoða reglurnar hér á landi? Reglurnar eru sannarlega sambæri- legar á hinum Norðurlöndunum. Þar hafa háværar raddir kveðið á um mikilvægi endurskoðunar á reglum og að draga úr mismunun. Í Bandaríkjunum, Ástralíu og Kan- ada eru reglur þessar ekki á eins alhæfandi hátt. Einstaklingar með T1 eru þar jafnvel í æðstu stöðum lögreglunnar. Þar er heilbrigði metið ef engir fylgikvillar ástands (e. condition) eru til staðar sem geta haft áhrif á hæfni til starfs. Í upphafi þessa mánaðar var brotið blað í sögu einstaklinga með T1 í Kanada þegar fyrsti atvinnuf lug- maður með sjúkdóminn hóf störf sem atvinnuf lugmaður. Reglur/ leiðbeiningar hafa verið gerðar þar um hvernig blóðsykurstjórn- un skuli háttað fyrir f lugtak og á meðan á f lugi stendur, endurmat á heilbrigði verður árlegt. Mat á heilbrigði þarf að vera gert á ígrundaðan einstaklings- bundinn hátt og uppfært í takt við nútíma læknavísindi. Heilbrigðir einstaklingar sem takast á við verkefni hversdagsins á framúr- skarandi hátt eiga rétt á tækifærum sem þeir hafa unnið fyrir með því að bera ábyrgð á þeim baldna lífs- förunaut sem T1 getur verið. Það er hvatning fyrir unga fólkið okkar til að bera ábyrgð á eigin lífi og að sinna þessum auka farangri með glæsibrag. Heilbrigð – með sykursýki Útilokun fyrir störf á Íslandi Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir ljósmóðir MS og hjúkrunar- fræðingur BS Einstaklingar með T1 geta verið mjög heilbrigðir ein- staklingar þó þeir lifi með lífsógnandi sjúkdóm. Er- lendis er talað um sykursýki sem ástand (e. condition) en ekki einstaklinga sem sjúklinga. Það er mikið af- rek að lifa með T1 svo árum skiptir með jöfnum og góð- um blóðsykri og langtíma blóðsykurgildum á pari við þá sem teljast heilbrigðir án fylgikvilla sjúkdómsins. E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 1 1 4 H y u n d a i i2 0 a lm e n n 5 x 2 0 á g ú s t Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.390.000 kr. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 A -D 4 1 C 2 4 3 A -D 2 E 0 2 4 3 A -D 1 A 4 2 4 3 A -D 0 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.