Fréttablaðið - 14.11.2019, Síða 54

Fréttablaðið - 14.11.2019, Síða 54
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýju og stuðning vegna andláts og útfarar okkar elskulega Valdimars Bjarnasonar Þorlákshöfn. Þorbjörg Jónína Magnúsdóttir Bjarni Már Valdimarsson Eva María Hilmarsdóttir Bryndís Ósk Valdimarsdóttir Magnús Þór Valdimarsson Lilja Margrét Sigurðardóttir Salka Liljan Bjarnadóttir Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir Magnús Snorrason Friðgerður Pétursdóttir Þóra, Emma og Sandra Bjarnadætur og fjölskyldur Pétur, Jón, Arnþór og Fjóla Rós Magnúsarbörn og fjölskyldur. Okkar ástkæra Gerður Guðmundsdóttir Bergen, Noregi, lést á heimili sínu í Ulset, Noregi, þann 5. nóvember. Útför fer fram 15. nóvember frá Lille kapell, Möllendal. Minningarathöfn fer fram á Íslandi, sem kynnt verður síðar. Einar Guðmundsson Ingibjörg Hafliðadóttir Ágúst Guðmundsson Erna K. Þorkelsdóttir Jóhann Þ. Guðmundsson Elín Helga Jónsdóttir Hákon B. Sigurjónsson Hanna Sampsted Þorsteinn Guðmundsson Þórunn Ósk Jónsdóttir Gunnhildur M. Eymarsdóttir Steinar Einarsson Linda Nielsen Elskulegur faðir okkar, afi, tengdafaðir og Maggi minn, Magnús F. Jónsson skipasmiður, Garðaflöt 8, Stykkishólmi, lést á dvalarheimilinu í Stykkishólmi laugardaginn 9. nóvember. Útför fer fram í Stykkishólmskirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 14.00. Patricia Ann Heggie Laufey Guðmundsdóttir Þórarinn Jónsson Guðrún Magnea Magnúsdóttir Snæbjörn Aðalsteinsson Jón Magnússon Anna Margrét Gunnarsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Vilhelmína Sofía Sveinsdóttir Þangbakka 10, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðvikudaginn 6. nóvember. Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 13. Sveinn Jónas Þorsteinsson Brynhildur Agnarsdóttir Ásgeir Þorsteinsson Magnea Rannveig Hansdóttir Ragnheiður Guðrún Þorsteinsdóttir Gunnar Ólafur Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, systir, mágkona og tengdadóttir, Hildur Davíðsdóttir Háteigsvegi 6, Reykjavík, sem lést 1. nóvember, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag. Hreinn Hafliðason Valborg Davíðsdóttir Ragnar Breiðfjörð Ragnarsson Kristrún Davíðsdóttir Ásgeir Eiríksson Jenný Davíðsdóttir Ólafur Einarsson Elsa María Davíðsdóttir Daníel Sveinsson Jónína B. Sigurðardóttir Hafliði Hjartarson Hjörtur Hafliðason Anna Bára Baldvinsdóttir og systkinabörn. Klukkan ellefu, ellefta dag, ellef t a mánaðar ársins 1918 var samið um að ljúka afar mannskæðu str íði sem geisað hafði í Evrópu í rúm fjögur ár. Því er sá mánaðardagur jafnan haldinn hátíðlegur í Frakklandi, við gröf óþekkta hermannsins eða við minnismerki um fallna hermenn. Hér á landi háðu franskir sjómenn orrustur við íslensk náttúruöf l og biðu stundum lægri hlut, þeir hvíla í nafn- lausum gröfum víða um land. Í Hóla- vallakirkjugarði eru nokkrir tugir þeirra, f lestir frá Bretagne í Frakk- landi. Árið 1953 var settur þar upp stór steindrangur með áletrun. Sú fallega hefð hefur skapast að franska sendiráðið standi fyrir minningar- stund í kirkjugarðinum klukkan 11 þann 11.11. við dranginn og sú hefð var haldin í heiðri þetta árið, að sögn Pálma Jóhannessonar, upplýsingafulltrúa sendiráðsins. „Þessi athöfn hefur verið nokkurn veginn árleg, þó hefur komið fyrir að hún hafi fallið niður,“ segir hann. „En þetta finnst mér mjög góð hugmynd því hér á landi er enginn her- mannagrafreitur franskur, enda engir fallnir hermenn hér af völdum stríðs en þessir látnu sjómenn eru ígildi þeirra.“ Pálmi segir allnokkurn hóp fólks hafa verið við athöfnina á mánudag- inn. „Hún fór þannig fram að Graham Paul, sendiherra Frakklands, f lutti ræðu, tveir starfsmenn sendiráðsins fóru með ljóð, annað íslenskt, hitt franskt, og síðan lagði sendiherrann blómsveig að minnismerkinu. Að því loknu var gestum boðin hressing í bústað sendiherrans,“ lýsir Pálmi. Spurður nánar út í kvæðin segir hann þau vera Marin français eftir Guðmund Guðmundsson skólaskáld og Oceano Vox eftir Victor Hugo. Í gamla kirkju- garðinum var látlaus kross settur á leiði sjómannanna en þau voru nafn- laus. Þar stóð bara Marin français sem þýðir franskur sjómaður. Kvæðið hans Guðmundar er á íslensku að öðru leyti en því að lausleg þýðing Pálma á text- anum á frönsku fylgdi. gun@frettabladid.is Franskra sjómanna minnst í Hólavallakirkjugarði Vopnahlésdagsins, 11.11., er jafnan minnst klukkan 11 í Frakklandi við gröf óþekkta hermannsins eða minnismerki um fallna hermenn. Hér hefur franska sendiráðið athöfn við minnismerki um franska sjómenn í Hólavallagarði. Garaham Poul sendiherra vottaði frönsku sjómönnunum í kirkjugarðinum virðingu sína. Þetta finnst mér mjög góð hug- mynd því hér á landi er enginn hermannagrafreitur franskur, enda engir fallnir hermenn hér af völdum stríðs en þessir látnu sjómenn eru ígildi þeirra. Fegurðardísin og fóstran Hólmfríður Karlsdóttir var krýnd alheimsfegurðar- drottning þennan mánaðardag 1985. Keppnin fór fram í London á Englandi og þar kepptu sjötíu og átta stúlkur til úrslita. Hólmfríður, sem jafnan hefur verið kölluð Hófí, var tuttugu og tveggja ára gömul þegar henni hlotnaðist þessi tign. Keppnin var ekki sýnd í sjónvarpi á Íslandi fyrr en daginn eftir að úrslitin voru kynnt en yfir hundrað millj- ónir manna víðs vegar um heiminn fylgdust með í beinni útsendingu þar sem Hólmfríður var krýnd fegursta kona í heimi. Hún fékk í verðlaun 1,8 milljónir króna en inni í þeirri fjárhæð var meðal annars greiðsla fyrir fyrirsætustörf. Í kjölfar sigursins ferðaðist hún víða um heiminn. Þ E T TA G E R Ð I S T: 14 . N ÓV E M B E R 19 8 5 Hófí hlaut titilinn ungfrú heimur Marin français 8. og síðasta erindið Ofan tek ég í auðmýkt, ósjálfrátt beygi kné. Angelus álengdar hljómar. Adieu, Marin français. Guðmundur Guðmundsson 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 A -B B 6 C 2 4 3 A -B A 3 0 2 4 3 A -B 8 F 4 2 4 3 A -B 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.