Fréttablaðið - 23.11.2019, Blaðsíða 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Það þarf að velja
málin sem fara í
þennan farveg vel en alla
jafna hefur þetta gengið vel.
Kolbrún Bene-
diktsdóttir vara-
héraðssaksóknari
DÓMSTÓLAR Líkt og greint var frá
í Fréttablaðinu á fimmtudag segir
stjórnarmaður Sáttar, félags um
sáttamiðlun, sáttamiðlunarúrræði
vera að ryðja sér til rúms á Íslandi
en segir engu að síður að hægt væri
að nýta sáttamiðlun í mun f leiri
málum og nefnir þar sérstaklega
sakamál. Varahéraðssaksóknari
segir það sorglegt að ekki sé notast
meira við sáttameðferð í sakamál-
um en gert er hér á landi.
„Þetta úrræði er mjög lítið notað,“
segir Kolbrún Benediktsdóttir vara-
héraðssaksóknari. „Þetta byrjaði
sem tilraunaverkefni á árunum
2006-2008. Í kjölfarið var tekin
ákvörðun í dómsmálaráðuneytinu
um að þetta yrði varanlegt úrræði
en af einhverju ástæðum hefur ekki
tekist að festa þetta í sessi. Sátta-
miðlun er einungis notuð í örfáum
sakamálum á ári,“ bætir hún við.
„Það þarf að velja málin sem fara
í þennan farveg vel, en alla jafna
hefur þetta gengið vel. Það hefur
lengi verið rætt hvað sé til ráða og
hvort það eigi einhvern veginn að
breyta þessu,“ segir Kolbrún.
„Sáttamiðlun í sakamálum er
ólík sáttamiðlun í einkamálum að
því leyti að í sakamálunum eru það
lögreglumenn sem eru sáttamenn,“
segir hún og bætir við að mikill
fjöldi lögreglumanna hafi í upp-
hafi verið áhugasamur um úrræðið
og farið á sérstakt sáttanámskeið.
„Þrátt fyrir það er úrræðið ekki
mikið notað,“ bætir Kolbrún við.
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
segir skiptar skoðanir um sátta-
miðlunarúrræðið innan lögregl-
unnar en kostirnir séu f leiri en
ókostirnir. „Ég held að ef að menn
kynntu sér þetta úrræði almenni-
lega, það yrði almennara og að lögð
væri meiri áhersla á sáttamiðlun í
menntun og þjálfun lögreglumanna
þá yrðu kostirnir fleiri en ókostirnir
í framkvæmdinni,“ segir Snorri.
Hann segir sáttamiðlun ekki
hafa náð þeirri fótfestu sem vonast
var eftir þegar farið var af stað í til-
raunaverkefnið og segir ástæðuna
vera upphaflega framkvæmd sátta-
miðlunar í sakamálum. „Í upphafi
var þetta þannig að fullrannsaka
þurfti öll mál áður en þau fóru í
sáttamiðlun og kom þetta í raun-
inni eins og viðbótarvinna ofan á
vinnu lögreglumanna,“ segir hann.
Kolbrún segir mikilvægt að rétt sé
staðið að því ferli sem sáttamiðlun
er. „Ef við gerum þetta rétt þá þarf
ekki að fullrannsaka öll mál heldur
er hægt að sætta þau og ljúka þeim
mun fyrr heldur en ef farin er dóm-
stólaleiðin. Í því felst auðvitað bæði
tímasparnaður og sparnaður á fé,“
segir Kolbrún.
„Það eru góð og gild rök en aðal-
rökin eru þau að allar rannsóknir
benda til þess að sakamenn sem
fara í gegnum sáttamiðlun eru ólík-
legri til að brjóta af sér aftur og fyrir
brotaþola er þetta leið sem gerir
þeim fært að hafa eitthvað að segja
um sitt eigið mál. En í hefðbundnu
sakamáli er brotaþoli vitni og hefur
lítið um það að segja hvernig málið
fer,“ segir Kolbrún.
Snorri er sammála Kolbrúnu og
segir mikinn sparnað geta falist í
aukinni notkun sáttamiðlunar í
sakamálum. „Þetta getur sparað
lögreglunni mikið til langs tíma
litið. Bæði í tíma og peningum og
í þeirri staðreynd að fólk sem fer
þessa leið er ólíklegra en ella til þess
að brjóta af sér aftur.“
birnadrofn@frettabladid.is
Sáttamiðlun allt of sjaldan
notuð í sakamálum á Íslandi
Sáttamiðlun er að ryðja sér til rúms á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR V. ANDRÉSSON
Mikill sparnaður gæti
hlotist af því að nýta
sáttamiðlun í fleiri
sakamálum en gert er
hér á landi. Úrræðið er
einungis notað í örfáum
slíkum málum árlega.
Varahéraðssaksóknari
segir sorglegt að sátta-
miðlun sé ekki notuð
í fleiri málum og for-
maður Landssambands
lögreglumanna segir að
mikilvægt sé að auka
þekkingu um úrræðið.
Valmundur Valmundsson
formaður Sjó-
mannasambands
Íslands
sagði að Sam-
herjamálið og
vantraust á
milli sjómanna
og útgerðarmanna
myndi lita kjaravið-
ræður. Kjarasamningar renna út
um mánaðamótin.
Skúli Mogensen
fyrrverandi forstjóri
WOW air
gerði kröfu til
Héraðsdóms
Reykjavíkur
um að Sveini
Andra Sveins-
syni yrði vikið frá
störfum sem
skiptastjóri þrotabús flugfélags-
ins. Telur hann Svein hafa veitt
rangar og villandi upplýsingar um
mikilvæg málefni búsins.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir
formaður BSRB
stóð í ströngu
þegar BSRB náði
samkomulagi
við Reykjavík-
urborg og SÍS
vegna styttingar
vinnuvikunnar
hjá dagvinnufólki.
hún sagði skýrt að lengra yrði
gengið í styttingu hjá vaktavinnu-
fólki en enn ætti eftir að útfæra
hvernig það yrði gert.
Þrjú í fréttum
Kjaramál og
karp um WOW
Sáttamiðlun
Ákærandi getur vísað málum
vegna eftirtalinna brota til
sáttamiðlunar að öðrum skil-
yrðum uppfylltum:
l Þjófnaðar
l Gripdeildar
l Húsbrots
l Hótunar
l Eignaspjalla
l Minniháttar líkamsárásar
l Nytjastuldar
l Brot gegn blygðunarsemi
Heimild: Vefur ríkissaksóknara
JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr.
JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr.
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
TILBOÐ Á VÖLDUM SÝNINGARBÍLUM
ERUM Í SAMNINGSSTUÐI
JEEP© WRANGLER
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 11.590.000 KR.
JEEP© GRAND CHEROKEE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 9.990. 00 KR.
JEEP© CHEROKEE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 7.490.000 KR.
JEEP© RENEGADE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 4. 90. 0 KR.
6-7
tilfelli koma
upp af lyme-
sjúkdómnum á
hverju ári. Sjúk-
dómurinn berst
með skógar-
mítlum og getur
verið banvænn.
TÖLUR VIKUNNAR 17.11.2019 TIL 23.11.2019
48.996
erlendir ríkisborgarar voru búsettir
á Íslandi í byrjun mánaðar. Hafði
þeim fjölgað um 4.840 á einu ári.
450
leiðtogar frá 100 löndum sátu
heimsþing kvenleiðtoga í Hörpu.
99%
flugvirkja eru karlar. Ice-
landair ætlar að beita sér fyrir
fjölgun kvenna í stéttinni.
1.200
grömm var magnið sem þing-
maðurinn Ólafur Þór Gunnarsson
át á 5 mínútum á afmælishátíð
Hrafnistu.
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-2
7
0
0
2
4
4
F
-2
5
C
4
2
4
4
F
-2
4
8
8
2
4
4
F
-2
3
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K