Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 10
Loftslagssjóður er nýr samkeppnissjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur ráðherra
falið Rannís umsjón með honum. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála
og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Umsóknir um styrki eru metnar
út frá hlutverki og tilgangi sjóðsins og áherslum stjórnar.
Á fundinum verða áherslur fyrir fyrstu úthlutun kynntar sem og umsóknarferli.
DAGSKRÁ
Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Áherslur stjórnar: Hildur Knútsdóttir, formaður stjórnar
Handbók sjóðsins, umsóknarkerfi og faglegt matsferli: Ása Guðrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir fundinn.
Skráning á vef Rannís (www.rannis.is)
Streymt verður frá fundinum (www.rannis.is)
Kynningarfundur
Loftslagssjóðs
í Norræna húsinu
fimmtudaginn 28. nóvember
kl. 12:00-13:00
Fundarefnið er áhugavert fyrir borgarbúa, fag- og
stjórnmálafólk. Rætt er á mannamáli út frá völdum
sjónarhornum um brýn efni:
• Hvernig má endurmeta ferðavenjur út frá
umhverfisáhrifum?
• Í mati á losun gróðurhúsalofttegunda frá fólks-
bifreiðum á höfuðborgarsvæðinu árið 2030
kemur fram að nauðsynlegt er ráðast í metnaðar-
fullar aðgerðir en rafbílavæðing og aukin
sparneytni bifreiða er ekki nægjanleg.
• Hvernig er fólk að standa sig gagnvart losun
CO2, hvernig er það mælt?
• Hvað kostar ferðamáti og ferðavenjur í tíma,
peningum og umhverfisáhrifum. Hvaða lausnir
standa til boða í þeim málum?
Upphafserindi flytja Brynhildur Davíðsdóttir,
Hlynur Stefánsson og Eyjólfur Ingi Ásgeirsson
um mat á losun bifreiða á höfuðborgarsvæðinu
árið 2030. Hópurinn sem sigraði Climathon
Reykjavík 2019: Kristján Ingi Mikaelsson,
Guolin Fang, Sóllilja Bjarnadóttir og Kristjana
Björk Barðal, fjalla um umhverfisáhrif af ferða-
máta. Silja Yraola, formaður Samtaka um
bíllausan lífsstíl og Líf Magneudóttir, formaður
umhverfis- og heilbrigðisráðs flytja stutt erindi.
Byggjum á staðreyndum, hlustum á fagfólk og
grasrótina. Tökum þátt í umskiptunum.
Öll velkomin og heitt á könnunni.
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
LOFTSLAGSMÁL
– Eru orkuskipti í samgöngum nóg?
Umhverfis- og skipulagssvið styður vakningu í loftslagsmálum
og stendur fyrir fundaröðinni Liggur okkur lífið á?
Þriðjudagurinn 26. nóvember
2019 kl. 20 á Kjarvalsstöðum.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ÞÝS K AL AND Annegret Kramp-
Karrenbauer, leiðtogi Kristilegra
demókrata, skoraði gagnrýnendur
sína á hólm við setningu landsþings
flokksins í Leipzig í gær.
„Ef þið viljið, þá skulum við opna
þessa umræðu í dag. Útkljáum
þetta mál, hérna, núna, í dag,“
sagði hún í ávarpi sínu. „En ef þið
eruð á þeirri skoðun að við ættum
að fara saman í þetta ferðalag, þá
skulum við bretta upp ermar og
halda áfram.“
Kramp-Karrenbauer, sem hefur
leitt f lokkinn í eitt ár, hefur verið
harðlega gagnrýnd innanf lokks
eftir marga kosningaósigra á árinu,
bæði í einstökum fylkjum og
kosningum til Evrópusambands-
þingsins. Búist var við því að reynt
yrði að steypa henni á landsþinginu
en í gær virtist hún þó njóta mikils
stuðnings og fékk sjö mínútna lófa-
klapp þúsund þinggesta eftir ávarp
sitt. Í ávarpinu viðurkenndi hún að
f lokkurinn hefði átt erfitt ár en að
gagnrýni á flokkssystkini væri ekki
leiðin til að rétta fylgið við.
Friedrich Merz, hinn harðorði
andstæðingur Kramp-Karrenbauer,
tók til máls á eftir henni. Ólíkt því
sem búist hafði verið við var hann
nokkuð blíður og þakkaði Kramp-
Karrenbauer fyrir hugrekki og
kraftmikla ræðu. Hann bauð jafn-
framt fram krafta sína til að móta
starf f lokksins. – khg
Þrumuræða
Karrenbauer
á landsþingi
ÍTALÍA Dómari í Róm hefur ákveðið
að f lýta málsmeðferð á morðmáli
tveggja bandarískra ferðamanna
og að málið verði tekið fyrir þann
26. febrúar næstkomandi.
Finnegan Elder og Gabriel Natale
Hjorth eru sakaðir um að hafa
stungið lögregluþjóninn Mario Cer-
ciello Rega til bana þann 26. júlí síð-
astliðinn með stórum hermanna-
hníf. Elder, sem er 19 ára gamall,
hefur játað að hafa stungið Rega
en Hjorth, 18 ára, neitar ábyrgð á
verknaðinum.
Rega var við störf en óeinkennis-
klæddur þegar hann var drepinn.
Hann var kallaður út til að bregðast
við stuldi þar sem Elder og Hjorth
höfðu stolið bakpoka. Reyndist
þetta vera vegna fíkniefnaviðskipta
sem fóru úrskeiðis. Piltarnir ætluðu
að kaupa kókaín en fengu aspirín í
staðinn. Þegar Rega, og félagi hans
Andrea Varriale, reyndu að hand-
taka piltana streittust þeir á móti og
stungu Rega. Voru þeir handteknir á
hóteli skömmu eftir árásina og þar
fannst hnífurinn, falinn í loftinu.
Lögmaður Elder segir að piltarnir
hafi ekki vitað að Rega og Varriale
væru lögreglumenn. Lögmaður
Hjorth segir að hann hafi ekki
vitað að Elder væri með hníf á sér.
Fingraför beggja pilta fundust á lofti
hótelherbergisins þar sem hnífur-
inn fannst.
Mikil reiði blossaði upp í Ítalíu
í kjölfar málsins. Í Róm fóru fram
mótmæli til þess að reyna að fá
stjórnvöld til að auka öryggi lög-
reglumanna. – khg
Morðmál bandarískra
pilta tekið fyrir í febrúar
Mario Cerciello Rega var stunginn til bana í júlí. NORDICPHOTOS/GETTY
Elder, sem er 19 ára
gamall, hefur játað að hafa
stungið Rega en Hjorth,18
ára, neitar ábyrgð á verkn-
aðinum.
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-4
9
9
0
2
4
4
F
-4
8
5
4
2
4
4
F
-4
7
1
8
2
4
4
F
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K