Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 30
Ég var sjálf ekki viss um hvernig ég
ætti að tækla þetta og varð óörugg
og kvíðin. Foreldrar mínir studdu
vel við mig,“ segir hún.
Sara leitaði til Katrínar Jóns-
dóttur landsliðsfyrirliða sem bauð
henni aðstoð sína. „Mér var boðið
að halda fund um málið en mér
fannst ég ekki eiga að þurfa þess.
Þetta sveið svo ógurlega, sérstaklega
vegna þess að ég hafði lagt svo hart
að mér við að yfirstíga meiðslin. Ég
lagði allt í að komast á þann stað
sem ég var komin á og nú var vegið
að mannorði mínu og dylgjað um
að ég hefði ekki unnið fyrir þeirri
stöðu sem ég var komin í.“
Sara segir reynslu sína gott dæmi
um að mótlæti geti verið góður
kennari. „Mér tókst að breyta reiði
í orku á fótboltavellinum og atvikið
gerði mig líka að betri liðsfélaga.
Mér dettur ekki í hug að taka þátt
í illindum eða að grafa undan liðs-
félögum mínum. En það tók nú samt
langan tíma að komast yfir þetta. Ég
á erfitt með að treysta,“ segir Sara en
nokkrir leikmannanna hafi hringt í
hana og beðið hana afsökunar.
„Ég ákvað að snúa þessu við. Ég
skyldi ekki láta brjóta mig niður.
Mér finnst merkilegt að ég hafi náð
að bregðast þannig við svo ung því
þetta hefði auðveldlega getað eyði-
lagt mig og brotið niður. Ég hugsa
að keppnisskapið hafi hjálpað mér
í gegnum þessa reynslu.“
Ekki láta stöðva þig
Sara segir eitt besta veganestið sem
hún geti gefið ungum konum vera
að láta ekkert stöðva sig. „Ekkert.
Ekki meiðsli, ekki erfiðleika. Það
skiptir heldur ekki máli hversu
gömul þú ert. Ef þú ert tilbúin að
leggja mikið á þig þá muntu kom-
ast langt. Þetta á örugglega við
um margt. En þú sjálf verður að
vilja árangur,“ segir Sara og heldur
áfram: „Það eru allir að glíma við
sjálfa sig og oft þarf maður að takast
á við erfiðar tilfinningar sem skila
sér í einmanaleika, kvíða og and-
legu niðurbroti. Það sérkennilega er
að slíkt getur birst nánast fyrirvara-
laust og jafnvel í mikilli velgengni.
Ég hef lent í slíkum aðstæðum og
þurfti að hafa verulega fyrir því að
vinna mig út úr þeim.“
Um framtíð kvennaknattspyrnu
Sara Björk fagnar innilega með liðsfélögum sínum í þýska meistaraliðinu Wolfsburg, einu besta liði Evrópu. Samningur hennar við liðið rennur út á næsta ári.
Sara og Alex
ander með
veglega verð
launagripi eftir
góðan árangur
Wolfsburg.
á Íslandi segir Sara að það þurfi
að taka stærri skref. „Það þarf að
taka stærri skref, nei það þarf að
taka stökk! Kvennadeildin þarf að
verða atvinnumennska. Leikmenn
í kvennadeild þurfa að geta ein-
beitt sér hundrað prósent að fót-
boltanum og ekki að vera í vinnu
með. Fótboltinn þarf að verða
þeirra atvinna. Þá búum við til f leiri
afreksíþróttamenn og þannig eflum
við kvennafótbolta á Íslandi. Auð-
vitað er hröð þróun í deildinni núna
og ég veit að þetta er of stórt stökk
að taka einmitt núna.
En fyrir þær stelpur sem vilja ná
langt þá mæli ég með því að fara
út að spila til að ná í reynslu. Hún
er dýrmæt og þroskandi. En erfitt
er það, þetta er það erfiðasta sem
ég hef gert, að fara og vera í áratug
frá fjölskyldunni. En ég er betri
leikmaður og ég hef þroskast sem
manneskja. Ég tala fjögur tungu-
mál og hef kynnst fólki sem ég hefði
aldrei annars kynnst.“
Hluti af breytingunni
Jafnrétti í kjörum kvenna og karla í
fótbolta hefur ekki enn verið náð og
aðstæður kynjanna eru misjafnar.
Þó hafa orðið breytingar í rétta átt.
„Ég er þakklát fyrir að vera hluti af
breytingunni. Þegar ég var lítil þá
voru engir möguleikar í augsýn. Ég
var bara með karlkynsfyrirmyndir í
fótbolta. Í dag eru endalausir mögu-
leikar og hægt að velja úr liðum og
deildum. Og ótal fyrirmyndir að líta
upp til. Ég er stolt af því að fá að vera
ein af þeim og sýna að það er hægt
að ná langt.
En ég er líka þakklát eldri kyn-
slóðinni. Sem lagði allt það sama
á sig og við í dag en hafði minni
möguleika. Þær lögðu jarðveginn
fyrir breytingarnar. En við þurfum
að halda áfram að berjast og ég get
vonandi nýtt mína rödd til að skila
einhverju til næstu kynslóðar. Við
verðum komin á annan stað og ég
sé að bilið á milli kynjanna mun
minnka. Við viljum fyrst og fremst
virðingu, þar á eftir koma launin,“
segir hún.
Sara segist eiga erfitt með að
svara spurningum um framtíðina
en samningur hennar við Wolfs-
burg losnar í vor. „Ég er orðin vön
því að breytingar umbylti lífinu.
Á einu ári getur allt breyst og það
er ekkert gefið. Það er erfitt að spá
fyrir um framtíðina en eins lengi og
ég hef ástríðu fyrir fótbolta þá mun
ég halda áfram að spila og vonandi
með bestu liðunum.“
VIÐ VERÐUM KOMIN Á
ANNAN STAÐ OG ÉG SÉ AÐ
BILIÐ Á MILLI KYNJANNA
MUN MINNKA. VIÐ VILJUM
FYRST OG FREMST VIRÐ-
INGU, ÞAR Á EFTIR KOMA
LAUNIN.
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-2
B
F
0
2
4
4
F
-2
A
B
4
2
4
4
F
-2
9
7
8
2
4
4
F
-2
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K