Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 32
Mál Orku náttúrunnar Eftirminnilegasta mál af þessum toga sem komið hefur upp í seinni tíð á Íslandi varðar Orku náttúrunnar, dótturfyrir- tæki Orkuveitu Reykjavíkur. Málið byrjaði með frásögn á samfélagsmiðlum sem rataði í fjölmiðla þar sem framkvæmdastjóri hjá ónefndu fyrirtæki var sakaður um að senda klámfengna tölvupósta á konur sem störfuðu með honum. OR sendi frá sér til- kynningu um að framkvæmda- stjóra ON hefði verið sagt upp störfum vegna þessa. Þó svo að OR sé í almannaeigu og ekki skráð á markað er hægt að bera þetta saman við niðurstöður rannsóknarinnar. - Málið kemur upp á yfirborð- ið. 1,5% lækkun á virði. - Upplýst er um málið í fjöl- miðlum. Fjölmiðlaumfjöllun er mikil. 5% lækkun á virði. - Málið varðar framkvæmda- stjóra. 5% lækkun á virði. - Málið varðar dótturfyrirtæki. 1,5 hækkun vegur á móti virðislækkun. - Alls hefði málið lækkað virði Orkuveitu Reykjavíkur um 10 prósent. MeToo-byltingin fór eins og eldur í sinu um allan heim haustið 2017. Fram stigu konur úr öllum starfsstéttum og sögðu frá kyn- ferðislegri áreitni, of beldi og ótrú- legum hindrunum sem hafa orðið á vegi þeirra í starfsumhverfi þeirra. Mörg mál komu upp og allir voru sammála um að láta slíkt aldrei ger- ast aftur. Mikið hefur verið fjallað um einstaklinga, einstök atvik, sameiginlega reynslu og stefnur sem koma eiga í veg fyrir að sögurnar sem komu fram endurtaki sig. Ekki hefur þó verið fjallað um viðbrögð hins frjálsa markaðar. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er að kapít- alisma sé alveg sama um hvað komi fyrir einstaklinga. Ný rannsókn við Viðskiptaháskólann í Kaupmanna- höfn, CBS, og Háskóla Íslands sýnir hvernig eitt tilvik getur haft mikil áhrif á fyrirtæki, sem undirstrikar að það er hluthöfum fyrir bestu að stjórnendur geri allt til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum. Úlf Viðar Níelsson, dósent í fjár- málum við HÍ og CBS, rannsakaði viðskiptahliðina á #MeToo ásamt Mads Borelli-Kjær og Laurids Moehl Schack. „Það er búið að skoða félagsfræði- lega og sálfræðilega þáttinn ofan í kjölinn. Við vissum að fjárfestar væru margir hverjir að spyrja um stefnu fyrirtækja hvað varðar kyn- ferðislega áreitni. Það þýðir að svona mál geta verið fyrirtækjunum dýr og þá vaknaði þessi hugmynd að skoða hversu mikið mál af þessu tagi geta kostað fyrirtæki,“ útskýrir Úlf. „Við erum að sýna að kynferðisleg áreitni hefur áhrif á virði fyrirtækja. Fyrirtækin eru þó alls engin fórnar- lömb. Það þýðir í mörgum tilvikum að þau hafa ekki staðið sig nógu vel í koma í veg fyrir það.“ Úlf segir markaðinn hafa tekið við mörgum bylgjum af siðferðis- kröfum síðustu ár. Nefnir hann sér- staka kröfu um umhverfisvernd, sem snúist ekki einungis um að bjarga umhverfinu heldur sé það einnig orðið merki um góða við- skiptahætti. „Fjárfestingarsjóðir eru einnig margir hverjir með þá stefnu að fjárfesta ekki í siðferðislega vafa- samri starfsemi, tóbaks-, áfengis- og vopnaframleiðslu. Nú er skýr stefna gegn kynferðislegri áreitni að verða eitt af þessum viðmiðum.“ Skoðuð voru áhrif frétta af kyn- ferðislegri áreitni á verðmæti fyrir- tækja á hlutabréfamarkaði í ensku- mælandi löndum, bæði fyrir og eftir að #MeToo-hreyfingin kom fram. Með því að leita að slíkum fréttum voru þeir komnir með um 200 fyrir- tæki, flest í Bandaríkjunum, þar sem slík mál höfðu komið upp á yfir- borðið. „Heildarniðurstaðan er sú að virði fyrirtækja lækkar um eitt og hálft prósent strax þegar fyrsta frétt eða tilkynning kemur út um að eitthvað hafi átt sér stað,“ segir Úlf. Einnig var skoðað hlutabréfaverð lengra fram í tímann eftir að mál kom upp á yfirborðið. Notað var þar til gert hagfræðilíkan sem tekur mið af öðrum sveiflum á markaði. „Fyrstu tvo dagana erum við að tala um tap upp á 450 milljónir Bandaríkjadala á hvert fyrirtæki.“ Gerir það meira en 55 milljarða króna í tap. „Til að setja þetta í samhengi hafa verið gerðar rannsóknir á stórum skandölum á virði fyrirtækja. Það má segja að það sé dauðasynd í fjár- málaheiminum þegar fyrirtæki fegra rekstrarniðurstöður sínar. Þetta er á pari við það. Áhrifin af því að upp kemst um kynferðislega áreitni eru þau sömu og ef það kemst upp að fyrirtæki hafi verið að fegra bókhaldið,“ segir Úlf. Hann segir þennan samanburð áhugaverðan í ljósi þess að þegar fyrirtæki eru að fegra bókhaldið hefur það óumdeild áhrif á virði Kynferðisleg áreitni hefur áhrif á virði fyrirtækja Það kostar mun minna að gera allt til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustað en að láta slíkt mál koma upp, segir Úlf Viðar Níelsson dósent sem rannsak- aði viðskiptahlið #MeToo ásamt Mads Borelli-Kjær og Laurids Moehl Schack. Úlf Viðar Níelsson, dósent í fjármálum við HÍ og CBS, rannsakaði viðskiptahliðina á #MeToo ásamt Mads Borelli-Kjær og Laurids Moehl Schack. Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is ✿ Áhrif kynferðislegrar áreitni á fyrirtæki ✿ Fjöldi tilkynninga fyrirtækisins. Þegar upp kemst um kynferðislega áreitni og ofbeldi þá hafi það ekki augljósleg áhrif. „Ef við segjum að forstjóri fyrirtækis verði uppvís að því að hafa áreitt samstarfskonu kynferðislega þá hefur það ekkert að gera með vörur fyrirtækisins eða grunnstoðir við- skiptakerfisins. Þess vegna er það áhugavert að sjá hversu áhrifin eru í raun mikil.“ Athygli vekur að það skiptir engu máli í hvaða geira fyrirtækið starfar. „Það sem skiptir meira máli er eðli atburðarins,“ segir Úlf. Tvær breytur hafa þar mest að segja. „Það er hvort forstjóri fyrirtækisins sé gerandi, í þeim tilfellum lækkar markaðsvirðið um fimm prósent aukalega. Þá erum við að tala um mjög slæm áhrif á fyrirtækið.“ Hin breytan er fjölmiðlaathygli, ef fyrir- tækið er mun meira en venjulega í fjölmiðlum eftir atburðinn. „Ef fjöl- miðlaumfjöllunin er mikil þá lækk- ar markaðsvirðið líka um fimm prósent aukalega. Stundum hanga þessir hlutir saman og þá hafa þeir gríðarleg áhrif á fyrirtækið.“ Þá skiptir einnig máli hvort þol- endur eru f leiri en einn. „Þá gerir það eitt og hálft prósent til viðbót- ar,“ segir Úlf. Það sem vegur á móti er ef það kemur fram í fyrstu frétt eða til- kynningu að málið sé í lagalegum farvegi. Sama á við ef fyrirtækið er dótturfélag. Þá skiptir einnig máli hvort fyrirtækið sé á undan fjöl- miðlum að greina frá málinu. „Ef fyrirtækið gerir hreint fyrir sínum dyrum strax í upphafi þá eru áhrif- in mun mildari.“ #MeToo-byltingin hafði áhrif. „Eftir #MeToo-byltinguna féll hlutabréfaverð meira, en inn í það spilar líka að í þeim tilfellum var fjölmiðlaumfjöllun meiri og f leiri en einn þolandi steig fram. Við settum þess vegna upp líkan til að stýra frá öllum slíkum breytum, þá voru áhrifin þau sömu fyrir og eftir #MeToo,“ segir Úlf. „En þetta hafði jafnframt töluverð áhrif á fjölda mála. Tilfellin fjórfölduðust eftir #MeToo sem þýðir að fleiri mál komu upp á yfirborðið og þeim mun meira var aðkallandi fyrir fyrirtæki að grípa í taumana.“ Úlf segir boðskapinn til stjórn- enda einfaldan. „Svona mál hafa áhrif á fyrirtækið, það kostar mun minna að gera allt til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og of beldi á vinnustað en að láta slíkt mál koma upp. Svo ef starfsmaður fyrirtækisins er sakaður um slíkt þá þarf að taka á slíkum málum af festu, koma þeim í lagalegan farveg og gera strax hreint fyrir sínum dyrum.“ Þó svo að dæmin séu fengin erlendis segir Úlf að það megi heimfæra þau á Ísland. „Nær öll tilvik sem við skoðuðum gerast í vestrænum ríkjum og það er engin ástæða til að ætla að viðbrögðin yrðu öðruvísi hér en annars staðar.“ 0% 0,3% 0,1% -0,1% -0,3% -0,5% -0,7% -0,9% -1,1% -1,3% -1,5% Fréttar berast um kynferðislega áreitni Meðalvirði fyrirtækis fyrir og eftir fréttir um kynferðislega áreitni. Tilfellin fjórfölduðust eftir #MeToo. Dagarnir fyrir fréttir Dagarnir eftir fréttir Fyrir #MeToo Eftir #MeToo 7 6 5 4 3 2 1 1,4 5,7 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 F -1 8 3 0 2 4 4 F -1 6 F 4 2 4 4 F -1 5 B 8 2 4 4 F -1 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.