Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
þátt í. Bæði Deloitte og Össur
náðu að senda inn teymi til þátt
töku sem unnu að áhugaverðum
umbótahugmyndum innan fyrir
tækjanna á sviði samfélagslegrar
nýsköpunar.
Teymin í Snjallræði
Teymin sem taka þátt í Snjallræði
hafa undanfarnar vikur unnið
hörðum höndum að því að finna
lausnir á mörgum af helstu áskor
unum samtímans. Hér fyrir neðan
er að finna frekari upplýsingar um
fjögur af vinningsteymunum átta
sem taka þátt í ár.
Verkefnið EyCo
EyCo býður upp á frumlegar og
sérsniðnar lausnir fyrir ein
staklinga og fyrirtæki til þess
að kolefnisjafna eigin starfsemi
og daglegt líf. Markmið EyCo er
að minnka árlega kolefnislosun
Íslands um 100 þúsund tonn. Að
verkefninu standa Ívar Krist
insson, sem starfar hjá Fjársýslu
ríkisins, og Sigurjón Norberg
Kjærne sted en hann er með meist
aragráðu í vélaverkfræði og starfar
að orkumálum.
Ívar segir að verkefni þeirra
sé fyrst og fremst hugsað til þess
að gera fólki og fyrirtækjum
auðveldara að koma með öflugt
framlag í baráttunni gegn lofts
lagsbreytingum „Okkur þótti það
passa vel við áherslur Snjallræðis
á samfélagslega nýsköpun. Einnig
fannst okkur mikill akkur í að læra
af þeim fjölmörgu sérfræðingum
sem komu að snjallræði, til dæmis
Svövu Grönfeldt,“ segir hann.
Þegar Ívar er beðinn að lýsa
verkefninu, svarar hann: „EyCo
er kauphöll fyrir afsetningu á kol
efnisfótspori fólks og fyrirtækja.
Hugmyndin er að gera þeim sem
geta boðið upp á afsetningu upp á
leið til að fá greitt fyrir þá vöru og
þannig ýta undir frekari kolefnis
afsetningu. Þeir aðilar eru svo
tengdir við þá sem vilja afsetja sig
og sína starfsemi, í gegnum kaup
höllina okkar.“
Þeir félagar eru afar ánægðir
með hvernig verkefnið hefur þró
ast. „Forritunarvinna fyrir mvp
(minimum viable product) útgáfu
kauphallarinnar er langt komin og
Snjallræði hefur hjálpað mikið við
að þróa lausnina og umgjörðina í
kringum hana. Verkefnið verður
klárlega að veruleika eftir þessa
vinnu. Við erum virkilega ánægðir
með Snjallræði og allt í kringum
hraðalinn.“
Verkefnið Rótin
Kristín I. Pálsdóttir, Katrín Guðný
Alfreðsdóttir, Guðrún Ebba Ólafs
dóttir og Guðrún Erna Hreiðars
dóttir hafa það markmið að setja
á fót stuðningssetur fyrir konur og
koma á samstarfi milli stofnana,
samtaka og annarra fagaðila sem
fást við vímuefnameðferð fyrir
konur, of beldi og úrvinnslu áfalla.
Kristín segir að Rótin sé félag um
málefni kvenna með áfengis og
fíknivanda og sinni hagsmuna
baráttu fyrir þann hóp. „Félagið
hefur verið mjög virkt í að krefja
hið opinbera um aukið gæðaeftirlit
og stefnumótun í málaflokknum,
skrifað umsagnir um frumvörp,
skrifað fjölda greina um vímu
efnavanda kvenna, staðið fyrir
reglulegum fyrirlestrum og haldið
tvær ráðstefnur í samstarfi við
fleiri aðila. Þá býður Rótin upp á
námskeið, leiðsagnarhópa, leiddan
sjálfshjálparhóp og fljótlega einnig
einstaklingsráðgjöf. Að auki var
félagið einn aðstandenda rann
sóknar á reynslu kvenna af fíkni
meðferð á Íslandi,“ útskýrir hún.
„Við höfum áhuga á því að koma
til móts við þörf kvenna með
áfalla og/eða vímuefnasögu fyrir
þjónustu sem byggir á sérþekkingu
á vanda kvenna og er í samræmi
við áherslur stofnana Sameinuðu
þjóðanna og leiðbeiningar um
bestu meðferð fyrir konur og nýj
ustu gagnreynda þekkingu. Verk
efni Rótarinnar felst í því að þróa
þjónustumiðstöð fyrir konur með
áfalla og/eða vímuefnasögu þar
sem boðið verður upp á fráhvarfs
meðferð í göngudeildarþjónustu
og einstaklingsmiðaða þjónustu
til að auka lífsgæði kvenna með
slíka sögu. Verkefninu er ætlað að
stuðla að nýrri nálgun í þjónustu
á sviði velferðar og heilbrigðis
og gera þjónustuna aðgengilegri.
Jafnframt því að svara kalli alþjóð
legrar stefnumótunar og rann
sókna, eins og heimsmarkmiða Sþ,
og auka jafnrétti í heilbrigðis og
velferðarþjónustu,“ segir Kristín og
bætir við að verkefnið hafi gengið
mjög vel.
„Við höfum lagt áherslu á að
hitta fagfólk í velferðar og heil
brigðisþjónustu til að bera saman
bækur og kanna samstarfsmögu
leika, meðfram dagskránni í Snjall
ræði, og höfum fengið mjög góðar
undirtektir. Verkefnið er í raun
hafið en þar sem það er að miklu
leyti háð fjármögnun hins opin
bera er spurning hversu langan
tíma tekur að koma því í fulla
virkni,“ segir hún.
Þegar Kristín er spurð hvort
þær séu ánægðar með aðstöðu og
þjálfun undanfarnar vikur stendur
ekki á svari. „Já, það hefur verið
ómetanlegt að fá þann stuðning
sem Snjallræði hefur veitt og hefur
fleytt verkefninu hratt áfram. Ekki
síst var mikilvægt að fá viku með
sérfræðingum frá MIT designX,
þeim Svöfu Grönfeldt, Kate og
Matthew.“
Verkefnið PLOGG-IN
Hulda Vigdísardóttir, Guolin
Fang og Magdalena Stelf standa
á bak við verkefnið PLOGGIN
sem er kerfi sem ætlað er til að
hjálpa plokkurum, útivistarfólki
og umhverfissinnum sem reglu
bundið tína upp sorp samhliða
hreyfingu, að skipuleggja starf sitt.
Hulda hefur starfað sem fyrir
sæta í rúm sjö ár auk þess að vera
texta og hugmyndasmiður
Kristín I. Pálsdóttir og Guðrún Erna Hreiðarsdóttir eru með verkefnið Rótin.
Ívar Kristinsson vinnur við verkefnið EyCo ásamt Sigurjóni Norberg.
Arnar og Viktoría vinna með verkefnið Innovation Platform.
Hulda Vigdísardóttir er með verkefnið PLOGG-IN ásamt Guolin og Magdalenu.
ásamt því að sinna ritstörfum og
þýðingum. „Ég lauk MAprófi í
íslenskri málfræði fyrir þremur
árum og byrjaði í haust í undir
búningsnámi fyrir talmeinafræði,“
segir hún. „Við Guolin, vinur minn
til tíu ára, höfum verið að vinna að
verkefninu saman í eitt og hálft ár.
Hann kynnti mig fyrir Snjallræði
og mér leist strax mjög vel á þetta
allt saman.
Við erum að þróa snjallforrit
sem kallast PLOGGIN en okkar
markmið er að nota upplýsinga
tækni til að þróa kort og auðvelda
þannig plokkurum og öðrum
umhverfissinnum lífið, gefa þeim
yfirsýn yfir svæði sem nú þegar
hafa verið hreinsuð og hvar vantar
upp á, auk þess sem við viljum
leikjavæða plokk,“ segir Hulda og
bætir við að verkefnið hafi gengið
vonum framar og eigi Snjallræði
stóran þátt í því. „Það er að mörgu
að huga en við í teyminu vinnum
yfirleitt vel saman. Við höfum
einsett okkur að koma verkefninu
á fót en ég hef alltaf haft mikla trú
á því og hugmyndavinnan í Snjall
ræði hefur aukið skilning okkar
á öllu heila ferlinu,“ segir Hulda
og segist afar þakklát fyrir það
einstaka tækifæri sem Snjallræði
hefur veitt þeim.
Verkefnið Innovation
Platform
Arnar Jónsson, Bala Kamall
akhran, Freyr Ketilsson og
Viktoría Leiva hjá Dattaca Labs
hyggjast skapa snjallkerfi þar sem
hægt verður að skrá áskoranir af
ýmsum toga í gagnagrunn í þeim
tilgangi að tengja saman einstakl
inga, fyrirtæki, stofnanir o.fl. við
rétta aðila sem líta á áskoranirnar
sem tækifæri til lausna. Þau eru
öll starfsmenn Dattaca Labs,
Arnar er verkefnastjóri, Freyr
framkvæmdastjóri og Viktoría
lögfræðingur.
Þau sóttu um í Snjallræði þar
sem þau vildu fá tækifæri til að
útvíkka hugmynd sem þau höfðu
haft og byggir á að auðvelda fyrir
tækjum og opinberri stjórnsýslu
aðgengi að nýsköpun og viðskipta
þróun.
„Verkefnið okkar felst í því að
leggja grunninn að snjallkerfi sem
parar saman vandamál og lausnir
með hjálp vélnáms og gervi
greindar. Lögaðilar myndu þar
lista upp áskorun sem þeir eru að
kljást við og yrðu sjálfvirkt paraðir
við lausnaveitendur. Grunnurinn
að þeirri hugmynd verður lausnar
mót eða „hackathon“ sem við erum
að vinna að með nýstárlegum
hætti. Þar geta lögaðilar tekið
þátt með áskorun og frumkvöðl
um/ háskólasamfélagi gefst kostur
á að virkja sköpunarkraftinn
með vísi að lausn á aðeins örfáum
dögum. Lögaðilar og sigurteymin
vinna svo áfram saman að endan
legri lausn með eftirfylgni af okkar
hálfu,“ segir Arnar og bætir við að
starfið hafi gengið mjög vel og að
fara í gegnum hraðalinn hafi verið
dýrmæt reynsla.“
Teymið stefnir á að lausnar
mótið verði tilbúið í maí 2020. „Þar
erum við að byggja mjög nauðsyn
legan og sterkan grunn sem leiðir
að notendahæfu og sjálfvirku
snjallkerfi í framtíðinni. Það er
lykilatriði að skilja notandann
og þar byrjum við,“ segir Arnar.
„Aðstaðan í Skapandi setri hefur
verið frábær og það hafa verið
forréttindi að fá að taka þátt í
Snjallræði. Kynnast öllu þessu
frábæra og hæfileikaríka fólki svo
ekki sé minnst á tækin og tólin frá
þjálfurum MIT designX, sem var
upp á tíu.“
Uppskeruhátíð
Snjallræðis fer
fram fimmtudaginn
28. nóvember í borgar-
stjórnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur klukkan
14.00 og eru allir vel-
komnir.
Teymin sem taka
þátt í Snjallræði
hafa undanfarnar vikur
unnið hörðum höndum
að því að finna lausnir á
mörgum af helstu áskor-
unum samtímans.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-6
2
4
0
2
4
4
F
-6
1
0
4
2
4
4
F
-5
F
C
8
2
4
4
F
-5
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K