Fréttablaðið - 23.11.2019, Qupperneq 36
eða maki,“ segir Kleppestø. „Að
missa stjórn á hreyfingum okkar
getur verið tengt við að eldast eða
veikjast.“
„Við viljum ekki fá neikvæða
athygli og að fólk hlæi að okkur,“
segir Johanna Katarina Blomster,
annar doktorsnemi við sálfræði-
deild Óslóarháskóla, sem gerði
meistaraverkefnið sitt um þórðar-
gleði. „Við viljum heldur ekki
virðast berskjölduð eða þurfandi
gagnvart ókunnugum og erum
þess vegna f ljót að segja að það
sé allt í lagi, jafnvel þó að svo sé
ekki.“
Sum dýr upplifa það sama
Þessar tilfinningar stríða ekki
bara okkur mannfólkinu, heldur
virðast dýr sem hafa f lókna
félagshegðun líka finna fyrir
þessu, samkvæmt Petter Bøck-
man, dýrafræðingi og fyrirlesara
við náttúrusögusafn Óslóarhá-
skóla.
„Við vitum að nokkuð mörg dýr,
sérstaklega prímatar, sýna merki
um að finnast sumt vandræða-
legt. Þau líta niður eða hylja and-
litið með höndunum þegar þau
gerast sek um félagslegt klúður,“
segir Bøckman. „Stundum sjáum
við þau meira að segja roðna.“
Hundar og kettir sýna líka oft
merki um að fara hjá sér. En ætli
það sem við þekkjum sem merki
um að fara hjá sér sé tengt sömu
tilfinningum hjá þessum dýrum
eins og okkur, eða erum við að
eigna þeim mennskar tilfinn-
ingar?
„Að fara hjá sér er alltaf tengt
félagslegum aðstæðum og þess
vegna gerum við ráð fyrir að finna
þessa tilfinningu bara hjá dýrum
sem hafa háþróað og stigveldis-
bundið valdakerfi,“ segir Bøck-
man. „Það er ekki mjög stór hópur
en í honum eru apar, dýr sem
veiða í hópum
eins og
ljón og úlfar, sjávarspendýr og
mögulega líka félagslyndir fuglar
eins og krákur.
Það að fara hjá sér er frekar
sterk tilfinning, sem þýðir að
þetta sé hluti af félagslegri
eðlisávísun
okkar,“
segir
Bøck-
man.
„Þetta er ekki lært viðbragð,
heldur meðfætt.“
Bøckman segir líka að það sé
vel hægt að fara hjá sér fyrir hönd
annarra.
„Það tengist líklega spegil-
frumum í heilanum, sem eru
hannaðar til að bera kennsl á
tilfinningar annarra og herma
eftir þeim,“ segir hann. „Þetta er
eiginleiki sem er forsenda þess að
geta lifað í hóp, þú þarft að geta
skilið hvernig öðrum í hópnum
líður og það er auðvelt ef manni
líður eins.“
Það eru einmitt þessar spegil-
frumur sem bera ábyrgð á því að
það er stundum svona pínlegt að
horfa á sjónvarpsþætti eins og
Fleabag eða The Office.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
www.abelheilsuvorur.is
Flest höfum við upplifað það að detta og meiða okkur en hafa meiri áhyggjur af því
hvernig við lítum út en hvort við
höfum meitt okkur. Á vefsíðunni
Science Nordic var nýlega fjallað
um þetta fyrirbæri og nokkrir sér-
fræðingar fengnir til að hjálpa til
við að útskýra það.
Leif Edward Ottesen Kennair er
prófessor í sálfræði við norskan
háskóla. Hann segir að fólk sé
stöðugt að bera sig saman við og
keppa við aðra.
„Við veljum vini, maka og félaga
út frá áliti okkar á öðrum og þetta
mat byggir á persónuleika, útliti
og félagslegri stöðu einstaklinga,“
segir hann. „Flestir hafa áhyggjur
af því hvernig aðrir dæma þá
félagslega og þess vegna finnst
okkur vandræðalegt að sýna veik-
leikamerki eða skort á stjórn. Við
viljum ekki virðast klaufaleg eða
ósjálf bjarga eða brjóta félagslega
samþykkt viðmið.
Það sem fólki finnst vandræða-
legt eru hlutir sem allir gera. Allir
detta, allir prumpa, allir ropa og
allir roðna. En þetta er það sem
fólki finnst mest vandræðalegt,“
segir Kennair. „Ég held að mjög
mörgum finnist bara rosalega
vandræðalegt að vera mennskur.
Fólk sem er djúpt þenkjandi og
hefur of miklar áhyggjur af þessu
er líklegast til að þróa með sér
félagskvíða,“ segir Kennair.
Félagslegur sársauki sker
jafnvel dýpra en líkamlegur
Thomas Haarklau Kleppestø,
doktorsnemi í sálfræði við Ósló-
arháskóla, segir að ástæðan fyrir
því að við höfum meiri áhyggjur
af því hvort einhver hafi séð
okkur detta en hvort við höfum
meitt okkur sé að okkur finnist
oft mikilvægara að forðast félags-
legan sársauka en líkamlegan.
„Að skammast sín er ein tegund
af félagslegum sársauka og rann-
sóknir hafa sýnt að félagslegur
sársauki virkjar sömu heilastöðv-
ar og líkamlegur sársauki,“ segir
Kleppestø.
En hvers vegna skammast fólk
sín fyrir að detta? Kleppestø telur
að það gæti verið vegna þess að
við viljum virðast heilbrigð.
„Við viljum líta út fyrir að vera
við góða líkamlega og andlega
heilsu og sýna þannig að við
séum aðlaðandi kostur sem vinur
Verra að líta illa út en meiðast
Þegar fólk dettur og meiðir sig fyrir framan aðra óttast það oft frekar að líta asnalega út en að
meiðast. Þetta hefur að gera með ótta við félagslegan sársauka og hann stingur ekki bara fólk.
Við viljum ekki fá neikvæða athygli og að fólk hlægi að okkur. Við viljum
heldur ekki virðast berskjölduð eða þurfandi gagnvart ókunnugum.
Okkur finnst
vandræðalegt
að sýna veik-
leikamerki eða
skort á stjórn.
Þegar við dettum er fyrsta hugsun margra „sá þetta einhver?“ en ekki „ætli
ég hafi meitt mig?“. Kleppestø telur þetta heilbrigt. NORDICPHOTOS/GETTY
Dýr sem
hafa flókin
félagsmynstur
sýna líka stundum
merki um að fara
hjá sér.
„Ein besta bók um stangveiði
sem hefur komið út á Íslandi
fyrr og síðar.“
– Karl Lúðvíksson, visir.is
KOMDU OG FÁÐU
ÁRITAÐA BÓK!
Sigurður Héðinn áritar
bók sína á laugardag
kl. 13 -16 á bás Drápu.
JÓLAGJÖF
VEIÐI-
MANNS IN
S!
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-7
6
0
0
2
4
4
F
-7
4
C
4
2
4
4
F
-7
3
8
8
2
4
4
F
-7
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K