Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 38
Brjótum ísinn er verkefni sem Rauði krossinn byrjaði með fyrir þremur árum. Markmið
verkefnisins er að rjúfa félagslega
einangrun og skapa félagslegt
tengslanet. Verkefnið felst í því
að íslenskar fjölskyldur eða ein-
staklingar bjóða innflytjendum
í matarboð. „Þetta er einfalt og
skemmtilegt verkefni þar sem
fjölskyldur á Íslandi bjóða inn-
flytjendum í mat eina kvöldstund,“
segir Kristína Erna Hallgrímsdóttir
verkefnastjóri. „Kosturinn við
þetta verkefni er að það skuld-
bindur þig ekki eins langt fram í
tímann eins og flest allt sjálfboða-
liðastarf hjá okkur.“
Oft myndast vinskapur
Þó að verkefnið krefjist ekki nema
einnar kvöldstundar þá segir
Kristína að oft myndist vinskapur
milli Íslendinganna og innflytj-
endanna, eða einhvers konar
félagslegur stuðningur. „Það er
í rauninni undir þátttakendum
komið að viðhalda tengslum, en
oft bjóða innflytjendurnir svo til
sín í mat eftir fyrsta matarboðið.
Í kjölfarið myndast stundum ein-
hver vinátta, en í öðrum tilvikum
er fólk að byggja upp ákveðið
tengslanet við fólk sem það getur
leitað til um upplýsingar. Þannig
myndast félagslegur stuðningur
í nýju landi.“ Kristína segir að
þótt Rauði krossinn fylgist ekki
sérstaklega með þátttakendum
eftir fyrsta matarboðið, fái hún oft
skilaboð frá þeim ef þeir ætla að
hittast aftur. „Ef fólk nær rosalega
vel saman þá fæ ég líka stundum
sendar myndir.“
Erfitt að ná til innflytjenda
Oft hefur það verið þannig að fleiri
Íslendingar sækja um að taka þátt í
verkefninu en innflytjendur. Krist-
ína segir það hafa verið erfitt að
ná til innflytjenda en nú sé dæmið
að snúast við. ,,Eins og staðan er
núna vantar okkur fjölskyldur
til að taka á móti innflytjendum.
Svona verkefni taka oft ákveðinn
tíma til að ná ákveðinni festu. Það
hefur líka verið erfitt að nálgast
innflytjendur á Íslandi. Fyrst þegar
verkefnið fór af stað fyrir þremur
árum þá var það bara auglýst á
íslensku, þannig að við fengum
fullt af umsóknum frá Íslendingum
en okkur vantaði umsóknir frá
innflytjendum.“
Til að bregðast við þessu fór
Kristína að auglýsa hjá innflytj-
endahópum á Facebook og nýtti
sér tengslanet við innflytjendur
sem hún hefur þróað.
„Annars hef ég ekki verið að
auglýsa verkefnið mikið því ég fæ
oft bara umsóknir frá Íslendingum.
En núna erum við komin með ágæt
tengsl við innflytjendur og fáum
fleiri umsóknir frá þeim, þannig
að það vantar Íslendinga á móti.
Margir Íslendingar hafa áhuga
á að kynnast innflytjend-
um og öfugt. Hins vegar
vantar vettvang til
þess að brúa bilið á
milli þessara hópa.
Þetta er dæmi um
einfalt verkefni
sem býður upp
á slíkan vett-
vang. Rauði
krossinn á
Íslandi leggur
áherslu á
gagnkvæma
aðlögun
þar sem
samfélagið
sem og
innflytj-
endur
þurfa að taka þátt í aðlögunar-
ferlinu.“
Vinahópurinn tók á móti
Hún segir að það vanti fyrst
og fremst ungt fólk til að
bjóða í mat, bæði unga
einstaklinga og fjöl-
skyldur. Það eru ekki
bara innflytjendafjöl-
skyldur sem sækja
um þátttöku heldur
líka einstaklingar.
,,Þannig að það er
ekkert verra að
fá einstaklinga
í heimsókn.
Til dæmis
var ung
stelpa
sem
bauð
í mat
og
bauð líka vinum sínum þannig að
vinahópurinn tók á móti inn-
flytjanda. Það er alveg hægt að gera
eitthvað þannig skemmtilegt úr
þessu, það þarf ekki alltaf að vera
kjarnafjölskyldan.“
Upp á síðkastið hafa margir
einstaklingar frá Venesúela
hlotið alþjóðlega vernd á Íslandi.
Kristína segir flesta þar tala
spænsku og önnur tungumál en
sjaldnast ensku. Hún segir því
vera tilvalið fyrir Íslendinga sem
kunna spænsku eða vilja æfa sig
í henni, að bjóða flóttamönnum
frá Venesúela í mat. „Þá fá þeir
kannski á móti að læra íslenskuna.“
Fyrir áhugasama um þetta verk-
efni er hægt að sækja um á vefsíðu
Rauða krossins, eða hægt að hafa
samband við Kópavogsdeild Rauða
krossins. Einnig er hægt að senda
fyrirspurnir á netfang Kristínu,
kristina.erna@redcross.is.
Óskað eftir íslenskum sjálfboðaliðum
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Fyrir þá sem hafa
lítinn tíma en
vilja leggja sitt af
mörkum í sjálf-
boðaliðastarfi þá
er Brjótum ísinn
tilvalið verkefni.
Kristína
Erna Hallgríms-
dóttir, verkefna-
stjóri hjá Rauða
krossinum.
Hlín, Guð-
björn og
David.
Svein-
björn og
Michal.
Jennifer
og Soffía.
Eva
María og
Inga.
VERTU BETRI
REEBOKFITNESS.ISstqf
LAMBHAGI
HOLTAGARÐAR
URÐARHVARF
FAXAFEN
TJARNAVELLIR
ÁSVALLALAUG
KÓPAVOGSLAUG
SALALAUG
FYRIR ALLA | ENGIN BINDING
BYRJAÐU
STRAX
Í DAG!
SPENNAN
DI
HÓPTÍMA
R
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-8
9
C
0
2
4
4
F
-8
8
8
4
2
4
4
F
-8
7
4
8
2
4
4
F
-8
6
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K