Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 71
Nálægðin gerir
okkur kleift að
vera með ýmis sérkenni í
hverri verslun þó að í
grunninn séu þær allar
Penninn Eymundsson.
Erna Rut er verslunarstjóri Eymundsson á Skólavörðustíg þar sem áherslan
er á íslenskar bókmenntir og að sjálfsögðu gott kaffi.
Verslunin á Laugavegi er yngsta barnið í Miðborgarfjölskyldunni og þar er áherslan á hönnunarvörur.
Kaffihúsin í
Eymundson-
verslununum
bjóða alla helstu
kaffidrykki og
til meðlætis má
finna ýmislegt
fyrir líkama og
sál.
Á Skólavörðustígnum er mikil áhersla á að sýna og leiðbeina með barna-
bækurnar því þær eru að sjálfsögðu mikilvægur hluti jólabókaflóðsins.
Bókabúð hefur verið starfrækt í Austurstræti í 99 ár og þar er áhersla á
ljóðabækur enda eru þær í sérstöku uppáhaldi hjá Rúnari Loga.
verslun á mörgum hæðum og
við reynum að bjóða upp á breitt
vöruúrval, bækur og gjafavöru,
ritföng og myndlistarvöru, leik-
föng og spil. Hér ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi.
Elfar: Á Laugavegi 77 leggjum
við mikið upp úr upplifun við-
skiptavina. Undanfarið höfum við
verið að auka og breikka úrvalið
okkar af erlendum gjafabókum, og
má segja að þær séu svolítið í fókus
hjá okkur þessi jólin, ásamt hönn-
unarvöru frá Vitra. Það má samt
ekki skilja þannig að íslenskar
bækur fái eitthvað minna vægi, við
pössum okkur alltaf að eiga allt
það nýjasta sem gefið er út hverju
sinni, aftur á móti taka félagar
okkur í Austurstræti og á Skóla-
vörðustíg það að sér að eiga úrvalið
af eldri titlum fyrir miðborgina.
Erna: Einmitt! Hér á Skóla-
vörðustíg er mikil áhersla lögð
á íslenskar bókmenntir, bæði
sígildar og samtímabókmenntir.
Þessi jólin fá íslenskar skáldsögur
og ljóð að njóta sín í búðinni enda
er útgáfan í ár einstaklega spenn-
andi og fjölbreytt. Starfsfólkið í
búðinni hefur allt áhuga á bókum
og finnst einstaklega skemmtilegt
að leiðbeina fólki í bókakaupum.
Enginn þarf að vera hræddur við
að leita til okkar og nýta sér þá
þekkingu sem við höfum byggt
upp í gegnum árin.
Rúnar: Það er svo mikil þekking
sem hefur safnast saman í bóka-
búðinni og fólk hefur mismunandi
áhugamál og smekk. Þannig heyrir
maður af og kynnist bókum sem
maður hefði kannski aldrei lesið
sjálfur. Þessari þekkingu reynum
við að miðla áfram til okkar við-
skiptavina.
Erna: Við viljum að barnabæk-
urnar fái að njóta sín og við viljum
einnig gera okkar allra besta í að
leiðbeina með barnabækur því
þær eru mikilvægur partur af
bókaflóðinu.
Jólin skemmtilegur tími
Rúnar: Jólin eru alltaf skemmti-
legur tími í bókabúðinni, f lóðið
brestur á og öll borð svigna undan
bókum. Löng saga verslunar-
innar gerir okkur kannski dálítið
íhaldssöm, bókadeildirnar okkar
bjóða upp á allt úrvalið af nýjum
bókum og hillurnar eru fullar af
gömlu góðu klassíkinni. „Ljóðið
ratar til sinna,“ sagði skáldið og
þar kannski kemur þessi íhalds-
semi í ljós. Við erum mjög hrifin
af ljóðum og reynum að gefa þeim
pláss á borðum allt árið um kring.
Annars er útgáfan einstaklega
fjölbreytt og skemmtileg í ár, það
eru margar bækur komnar á nátt-
borðið hjá mér.
Elfar: Þar sem Laugavegurinn
er yngsta barnið í miðborgarfjöl-
skyldunni höfum við getað leyft
okkur meiri tilraunastarfsemi en
kannski gengur og gerist. Þessi
jól eru það erlendar bókaseríur
sem við leggjum mikið upp úr á
Laugavegi 77, hvort sem það eru
fræðibókaserían Great Ideas, smá-
bókaserían Modern and Black frá
Penguin sem er samansafn af rit-
gerðum og öðru lítt þekktu efni frá
frægum einstaklingum eða English
Library sem eru öll frægustu verk
enskra bókmennta.
Rúnar: Við gefum enskum
bókum einnig mikið vægi í Austur-
stræti og þar eru enskar bækur á
tveimur hæðum, mikið úrval af
skáldskap, fræðibókum, ferða-
handbókum og stærri gjafabókum.
Ef titillinn er ekki til bjóðum við
upp á að sérpanta fyrir viðskipta-
vininn.
Erna: Enskar bækur fá kannski
ekki tvær hæðir hjá okkur á Skóla-
vörðustígnum en þar eigum við
mikið úrval, svo hjálpar til að
búðirnar eru þrjár, ef bók er ekki
til á einum stað, þá er stutt að fara í
næstu búð.
Allt í göngufæri
Elfar: Þetta er það sem er svo frá-
bært við það að vera með þrjár
verslanir í göngufæri en það tekur
um sjö mínútur að labba á milli
Laugavegar 77 og Skólavörðustígs,
(ég hef tekið tímann persónulega)
og aðrar tíu frá Skólavörðustíg í
Austurstræti. Það er þessi nálægð
sem gerir okkur kleift að vera með
ýmis sérkenni í hverri verslun þó
svo að í grunninn séu þær allar
Penninn Eymundsson.
Erna: Hér á Skólavörðustíg er
fjölbreyttur hópur viðskiptavina
en einnig hefur skapast hér hópur
af fastakúnnum sem okkur þykir
mjög vænt um.
Elfar: Það er nokkuð augljóst að
áhugamál og áhugasvið starfs-
fólks smitast inn í úrvalið og
uppsetningu á vörunum, hvort
sem það eru tarot spil og bækur
um heilsu og andlega vellíðan eða
áhugi minn á hönnun og potta-
plöntum og allt sem við kemur
þeim. Við reynum að blanda þessu
öllu skemmtilega saman og búa
til notalegt andrúmsloft þar sem
viðskiptavinir okkar geta komið,
skoðað úrvalið og sest niður með
góðan kaffibolla sem kaffibar-
þjónarnir okkar útbúa af miklum
metnaði.
Erna: Það er einstaklega huggu-
legt að sitja í búðinni og fá sér
góðan kaffibolla og glugga í bækur
og blöð. Eða bara fylgjast með
fólkinu út um gluggann.
Elfar: Ég skal alveg viðurkenna
það að ég á það til að heimsækja
búðirnar okkar um helgar þrátt
fyrir að vera í fríi og næla mér í
einn cortado og jafnvel croissant
með. En á virkum dögum er kaffið
yfirleitt bara svart.
Lífið í miðborginni
Rúnar: Miðborgin iðar af lífi og
það er fátt skemmtilegra en að
rölta um í bænum og detta inn á
gott kaffihús. Kaffihúsin okkar
bjóða fólki að glugga í bók eða
tímarit meðan maður nýtur kaffi-
bollans sem kannski er kakóbolli
á þessum árstíma. Jólakötturinn
á Lækjartorgi vekur mikla lukku
og það hefur líklega aldrei verið
eins gaman að kíkja í bæinn eins
og seinustu ár, það sjáum við sem
búum og störfum hérna í hverf-
inu.
Elfar: Penninn Eymundsson er
staður þar sem allir ættu að geta
fundið sér eitthvað við hæfi. Ég
hvet alla til að heimsækja okkur
og jafnvel rölta á milli búðanna
okkar í miðborginni og sjá og upp-
lifa hvað hver staður hefur upp
á að bjóða, ef ekki til að versla,
þá bara til að næla sér í kaffi og
veitingar og skoða nýjustu tíma-
ritin.
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 MIÐBORGIN OKKAR
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-7
1
1
0
2
4
4
F
-6
F
D
4
2
4
4
F
-6
E
9
8
2
4
4
F
-6
D
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K