Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 74

Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 74
Jólin komu í Kaffitár þann 14. nóvember þegar kaffi­húsin fóru að bjóða upp á jóladrykki. Þá er tilvalið að grípa bolla með sér, rölta um bæinn og skoða jólaljósin. Um hátíðarnar má oft sjá starfsfólk Kaffitárs með jólasveinahúfur og slaufur. „Þetta er dásamlegur tími,“ segir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffihúsa Kaffitárs. „Það er svo sjarmerandi þegar það er aðeins farið að rökkva og jólaljósin eru komin upp.“ Þá er hægt að grípa með sér heitt súkkulaði í Kaffi­ tári, bæta jafnvel smá kanilsírópi út í og elta jólagjafirnar í mið­ bænum. Vinsælustu jóladrykkirnir í Kaffitári eru Aðventutár og Jóla­ áttan. Marta segir að Aðventu­ tár hefur yfirleitt selst best. „Að ventu tár er með möndlum, kanil og púðursykurkanilsírópi. Ótrúlega rómantískur drykkur. Svo erum við með Jólaáttuna sem er að ná Aðventutári í sölu. Það er svona „after eight“ fílingur í þeim drykk,“ en Jólaáttan er blönduð með piparmyntu og súkkulaði­ sósu. „Svo erum við með Jökul, frappuccino með piparkökusír­ ópi, rjóma, klaka og karamellu­ sósu.“ Jóladrykkur fyrir kaffinörda Fyrir þá sem vilja ekki of mikil sætindi, þá er fjórði jóladrykkur­ inn girnilegur kostur. ,,Hann er svona jólaaffogato, lítill espresso með ískúlu og biscotti mylsnu. Sannkallaður eftirréttur í glasi. Kaffifólk fílar þennan yfirleitt best.“ Eins og Marta orðar það þá má kalla þennan drykk kaffibolla fyrir kaffinörda. Fyrir utan jóladrykkina er mikið úrval af gjafakörfum og kaffi­ pokum til að eiga heima. Jólakaffið í ár ber nafnið Jólastjarna, blandað úr kaffitegundunum Selebes Raja Toraja, Kenía Karundu og Brasilía Sweet Collection. „Þetta eru allt bestu kaffitegundirnar sem við eigum í dag og við bjuggum til geggjaða blöndu úr þeim. Þetta er alvöru nammi sem er hægt að fá hér uppáhellt. Fyrir þá sem vilja bara venjulegt kaffi og engan sykur þá er þetta frábært. Ég mæli líka með að eiga þetta til að hella upp á heima og komast í jóla­ skapið.“ Kanillinn laðar fram jólaskap Vinsælasta kaffið í desember er þó alltaf Grýlukanillinn. „Það er bragðbætt með kanil og hesli­ hnetum. Ilmurinn sem kemur í húsið þegar maður hellir upp á það er yndislegur. Þá eru jólin komin. Kanillinn kemur manni einhvern veginn alltaf í jólaskap.“ Marta ráðleggur þeim sem vilja ekki of sætt bragð af kaffinu að blanda jólakaffinu við venjulegt kaffi, sem er auðvitað líka hægt að fá í Kaffi­ tári allan ársins hring. Í ár er svo hægt að kaupa jólagjafakörfur með til dæmis Grýlukanilnum, Jólastjörnu og ýmsum öðrum gómsætum vörum. Körfurnar kosta allt frá fjögur þús­ und krónum og upp í tíu þúsund krónur. „Fyrir fólk sem á allt þá er ótrúlega gott að fá svona upplifun í jólagjöf. Stærsta karfan inniheldur þrjár kaffitegundir, viskustykki, súkkulaði og danskan lakkrís. Í annarri körfunni er svo til dæmis gjafakort í kaffihúsið ásamt Jóla­ stjörnunni, Grýlukanilnum og súkkulaði.“ Ódýrustu gjafakörfurnar eru samsettar af kaffi og konfektkassa, eða kaffi og tei „Ef þú ert kannski að fara í matarboð og vilt grípa með þér eitthvað sætt þá geta tvennurnar hentað vel.“ Hægt að fylla á eigin ílát Marta er stolt af gjafakörfunum sem eru ekki bara með gómsætu innihaldi heldur líka í fallegum trékössum. Þó kössunum sé svo lokað með sellófanplasti, stefnir Kaffitár á að hætta plastnotkun alveg. „Við erum búin að minnka plastnotkun um meira en helming, við erum til dæmis ekki lengur með neina plastpoka. Umbúðirnar utan um kaffið eru umhverfis­ vænar og hægt að flokka með pappa.“ Marta minnir líka á að fólk getur komið með eigin ílát og fyllt þau með kaffibaunum. „Við erum alltaf að bæta okkur í umhverfismálunum, enda með Svansvottunina sem við ætlum að halda fast í. Umhverfismálin eru í forgrunni hjá okkur.“ Marta fagnar því að fleiri fyrirtæki í bænum séu farin að huga að umhverfismálum sem hafa alltaf skipað mikilvægan sess í rekstri Kaffitárs. „Það er geggjað að fleiri séu komnir með okkur í lið.“ Aðventutár yljar manni á bæjarröltinu Jólin eru byrjuð í Kaffitári í Banka­ stræti, en sívinsælu jóladrykkirnir og gjafakörfurnar eru komnar í sölu. Marta Rut með fallegar jólagjafir sem fást hjá Kaffitári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nýja línan er innblásin af gömlum kömbum. „Við byrjuðum að hanna drög að þessari línu í vor en þetta er lokaafurðin,” segir Fríða Jóns­ dóttir gullsmiður. Skartgripirnir í ár eru þó hluti af línunni Keltar og kóngar sem varð fyrst til fyrir tveimur árum og er innblásin af íslenskum fornminjum. „Ég er alltaf að bæta við þá línu og nota f leiri snið, svo hún verður sífellt fjölbreyttari.“ Línan Keltar og kóngar byggir á þessum tveimur þjóðf lokkum sem við Íslending­ ar erum komin af, Keltum sem komu hingað f lestir sem þrælar við landnám og norsku víking­ unum. Tákn fegurðar og hvunndags Kamburinn finnst Fríðu vera formfagur og valdi hún hann sem innblástur fyrir nýju línuna vegna þess að hann hafði nota­ gildi fyrir almenning til fegrunar og vellíðunar. „Mér finnst gaman Óður til fyrri tíma hjá Fríðu Dásamlega fal- legir skartgripir hjá Fríðu skart sem er með marga nýja og skemmtilega hluti í búðinni á Skólavörðustíg. Fríða skart kynnir nýja skartgripa­ línu sem nefnist „Kamburinn“. Opið hús verður í versluninni í dag á milli klukkan 14 og 18 að Skóla­ vörðustíg 18. að fara aftur í tímann þegar lítið var til og fólk nýtti sér bein, við og annað sem til féll í umhverfinu til afþreyingar, skrauts og nytja.“ Fríðu finnst gaman að sjá fyrir sér fólk á þessum tíma eiga stund með sjálfu sér, kemba hárið og láta sig dreyma. „Sagan segir að á ein­ hverju tímabili Íslandssögunnar gáfu vonbiðlar unnustum sínum kamba og lögðu alla sína kunnáttu í handverkið.“ Fyrir áhugasama um þessa línu er upplagt að mæta á opið hús í versluninni á Skólavörðustíg 18. Þar munu Fríða og eiginmaður hennar, Auðunn G. Árnason, taka á móti ykkur. Þau hafa rekið verslunina saman í 12 ár, fyrst í Hafnarfirði en hafa verið í miðbæ Reykjavíkur í fimm ár. Aðspurð hvernig þeim finnst mið­ bæjardvölin vera segjast þau alsæl. „Fjölbreytt mannlíf einkennir miðbæinn, endalausar verslanir og veitingastaðir og finnst okkur gaman að vera partur af blómlegu miðbæjarlífi.“ Það er hægt að skoða skartgripi Fríðu á Facebook, „Fríða skartgripa­ hönnuður“, Instagram @fridaj­ ewels og vefsíðunni fridaskart.is. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RMIÐBORGIN OKKAR 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 F -8 9 C 0 2 4 4 F -8 8 8 4 2 4 4 F -8 7 4 8 2 4 4 F -8 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.