Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 76
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
Trönuber eru meðal fárra berja og ávaxta sem eru uppruna-lega sjálfsprottin í Norður-
Ameríku og draga nafn sitt af útliti
berjanna með stilkum og blómum
sem þýskir og hollenskir land-
nemar töldu að líktust fuglinum
trönu. Trönuber og skyld ber vaxa
þó víðar en í Bandaríkjunum,
til dæmis í Bretlandi og jafnvel á
Norðurlöndunum en þó eru trönu-
berin ekki eins milli heimsálfa. Í
Bretlandi eru skyld ber stundum
kölluð fenjaber. Trönuberjarunnar
eru sígrænir og lágvaxnir, þeir
geta teygt úr sér yfir tveggja metra
svæði en ná sjaldnast meira en 20
sentimetra hæð. Berin eru þroskuð
á haustin, jafnvel fram í nóvem-
ber svo það er ekki skrýtið að þau
séu nýtt á þessum árstíma. Fersk
trönuber eru sætbeisk á bragðið og
því er algengara að þau séu notuð
í sósur, sultur og safa auk þess sem
þurrkuð trönuber eru hreinasta
lostæti. Talið er að Narrangasett
indíánar á því svæði Bandaríkj-
anna sem nú er Nýja-England hafi
um aldir nýtt trönuber sem fæðu
og sem litarefni. Norðuramerískir
sjómenn tóku gjarna trönuber
með sér á sjó sem C-vítamíngjafa
Sætbeiskar C-vítamínsprengjur
Trönuberjasósa er ómissandi hluti af hinni bandarísku þakkargjörðarhátíð enda þykir mörgum
þar kalkúnn og trönuberjasósa eiga saman eins og pönnukökur og rabarbarasulta.
Trönuberjasósa er ómissandi á borðum þar sem kalkúnn er fyrir.
Þurrkuð trönuber
eru bragðgóð ein og sé en
líka góð í kökur og brauð.
Hollusta trönu-
berja er ekki
óumdeild en
rannsóknir
standa yfir á
fjölmörgum
meintum
og reyndum
jákvæðum
áhrifum þeirra á
heilsufar.
og það er kannski hluti af þeim
tilfinningatengslum sem eru milli
Bandaríkjamanna og trönuberja.
Trönuberjaafurðir eru taldar
hafa ýmis góð áhrif á heilsufar, til
dæmis er trönuberjasafi talinn
vinna gegn þvagfærasýkingum
þó litlar sem engar rannsóknir
staðfesti það. Einnig er talað um
að trönuberjaneysla geti unnið
gegn hjartasjúkdómum. Unnið er
að rannsóknum á áhrifum virkra
efna í trönuberjum á myndun
nýrnasteina og sem verndandi efni
fyrir glerung tanna.
Trönuberjasósa hefur verið hluti
af þakkargjörðarhátíðahöldum
Bandaríkjamanna frá upphafi því
sagan segir að trönuber hafi verið
á boðstólum í málsverðinum sem
indíánar færðu fyrstu landnem-
unum á 17. öld þegar vetur gekk í
garð, sýndu þeim ætilegar gjafir
náttúrunnar og björguðu þannig
lífi þeirra og þakkargjörðarhátíðin
dregur nafn sitt af. Hún þykir
ómissandi með kalkúni og því
einnig vinsæl á jólaborðum og í
afleiddum mat svo sem samlokum
og kássum. Þurrkuð trönuber
eru notuð í bakstur á
svipaðan hátt
og rúsínur
og mikið
notaðar í
múffur, sandkökur
og sætt brauð. Trönu-
berjasafi er einnig vinsæll
til drykkjar og í ýmsar blöndur, til
dæmis er hann eitt innihaldsefnið
í hinu fræga hanastéli Cosmopol-
itan sem var uppáhaldsdrykkur
vinkvennanna knáu í sjónvarps-
þáttunum Sex and the City.
Íslendingar eiga ekki trönu-
berjahefð en með hnattvæðingu
mataræðis er hægt að fá frosin og
þurrkuð trönuber í f lestum versl-
unum og einnig sósur, sultur og
safa. Hér á eftir fylgir uppskrift að
trönuberjasósu sem gerir kalkún
enn ljúffengari.
Trönuberjasósa
500 g frosin trönuber
Safinn úr tveimur appelsínum og
rifinn börkur af einni
30 g eða ein msk. dökkur púður-
sykur
Kanelstöng
Blandið öllum innihaldsefnum
saman í pott og látið sjóða þar til
trönuberin springa sem tekur um
það bil 15 mínútur.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
F
-8
4
D
0
2
4
4
F
-8
3
9
4
2
4
4
F
-8
2
5
8
2
4
4
F
-8
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K