Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 82
Sigurður segir að fólk hafi mismikinn hæfileika til að dáleiða og vera dáleitt. Hann líkir þessu við söng. Allir geta sungið, æft sig og orðið betri en aðeins sumir séu með náttúrulega hæfileika.
Ba r n a t a n n l æ k n i r -inn Sigurður Rúnar Sæmundsson hef u r notað dáleiðslu í störf-um sínum í um átta ár og segir hana gefa mjög
góða raun. „Dáleiðsla gagnast á þann
hátt að börnin verða sáttari og líður
betur í tannlækningasamhenginu.
Ég sé stundum litlu börnin fara í
leiðslu og byrja að taka tillögum
mínum fúslega um hvað skuli gerast
næst. Það er akkúrat það sem þarf að
gerast til að hjálpa barni á alúðlegan
og fallegan hátt í gegn um reynsluna
af því að fara til tannlæknis,“ segir
hann.
Hlaut að vera eitthvað sniðugt
Sigurður Rúnar er búsettur í Banda-
ríkjunum og hefur kennt barna-
tannlækningar við Háskólann í
Norður-Karólínu í rúm þrjú ár. Hann
hefur einnig rekið tannlæknastofu
á Íslandi síðan 1996. Í dag ber hún
nafnið Hlýja og er til húsa í Glæsibæ.
Auk þess hefur hann verið yfir
barnatannlækningadeild Háskóla
Íslands og starfað innan Tannlækna-
félags Íslands.
„Þegar ég var 16 eða 17 ára rakst
ég á bók í safni foreldra minna um
sjálfsdáleiðslu og hún fangaði áhuga
minn á dáleiðslu,“ segir Sigurður
Rúnar. „Löngu seinna, þegar ég var
orðinn tannlæknir, sá ég að ríkis-
tannlæknar í Svíþjóð voru styrktir
til að mennta sig í dáleiðslu. Ég taldi
að þetta hlyti að vera eitthvað snið-
ugt.“
Sigurður Rúnar sá tækifæri þegar
bandarískur sérfræðingur kom
til Íslands og hélt endurmennt-
unarnámskeið. Fjölmargt fólk í
heilbrigðisstéttum hefur nýtt sér
aðferðir dáleiðslunnar, sérstaklega
sálfræðingar en einnig hjúkrunar-
fræðingar og læknar. Margt fólk úr
þessum stéttum kom á námskeiðið
til þess að nýta í sínu starfi. „Á þessu
námskeiði opnaðist þessi heimur
fyrir mér en ég sá að ég var þegar
byrjaður að nota aðferðir dáleiðsl-
unnar í störfum mínum sem tann-
læknir.“
Þrenging athyglinnar
Enska orðið mesmerism vísar til
þýska læknisins Franz Mesmer
sem notaði dáleiðslu á átjándu og
nítjándu öld. En dáleiðsla hefur að
öllum líkindum fylgt mannkyninu
í einhverju formi frá upphafi. Sig-
urður Rúnar segir að til séu textar
frá fornum siðmenningum sem vísi
augljóslega til dáleiðslu. Undir lok
nítjándu aldar var dáleiðsla mjög
útbreidd í lækningum, til dæmis til
deyfinga, en vék hins vegar á þeirri
tuttugustu þegar lyf fóru að verða
algengari.
Sigurður Rúnar segir að hægt sé
að deyfa fólk með dáleiðslu en lyfin
sem til séu í dag séu svo góð að það
þurfi ekki. Einnig sé hægt að slá á
kvíða eða hræðslu við að fara til
tannlæknis. Hann telur hins vegar
að það ætti ekki að vera hlutverk
tannlæknisins sjálfs frekar en flug-
mannsins að lækna f lughræðslu.
Hans takmark sem tannlæknir er
að nota dáleiðslufræðin til að gera
upplifunina betri og auðveldari fyrir
þann sem verið er að hjálpa.
„Dáleiðsla er ástand hugans með
aukinni einbeitingu á það sem
dáleiðslan fjallar um og takmarkaða
eða enga athygli á utanaðkomandi
þætti. Þetta er þá eins konar þreng-
ing athyglinnar eða aukinn fókus á
eitthvað. Síðan fylgir þessu hugar-
ástandi aukinn hæfileiki til að taka
leiðbeiningu eða tillögum,“ segir
Sigurður Rúnar og bendir á að þetta
sé hugarástand sem sé algerlega eðli-
legt manninum.
Segir hann alla hafa einhvern
tímann upplifað dáleiðsluástand eða
hugarástand mjög líkt því. Til dæmis
þegar starað er inn í arineld eða út í
brimið við ströndina. „Þú gleymir
öllu sem er að gerast í kringum þig.
Sumir upplifa þetta þegar þeir eru
að keyra heim eftir vinnudag og
vita varla af sér fyrr en þeir eru á bíla-
stæðinu heima.“
Límmiðar á handarbaki
„Ég hef aldrei notað dáleiðslu á þann
hátt sem fólk venjulega hugsar sér
dáleiðslu þar sem: Við setjumst niður
og ég dáleiði þig. Ég er dáleiðandinn
og þú verður dáleiddur. Ég hef notað
aðferðir dáleiðslunnar á annan hátt.
En ég hef notað dáleiðslufræði nokk-
urn veginn stanslaust í öllum sam-
skiptum mínum við börn í langan
tíma,“ segir hann.
En hvernig er dáleiðslan fram-
kvæmd?
Í störfum sínum segist Sigurður
Rúnar nota bæði tal og sýningu
til að leiða börn inn í ástand skylt
dáleiðslu. Hann sýni börnunum
til dæmis litríka og flotta límmiða.
Þeir séu vel til þess fallnir að grípa
athygli barnanna og hann eigi auð-
veldara með að ná til þeirra.
Þó hann starfi nær eingöngu
með börnum þekkir hann vel inn
á dáleiðslu fullorðinna og segir að
töluverður munur sé þar á. Dáleiðsl-
an tekur mið af hugarheimi, þroska
og fyrri upplifunum. „Dáleiðslan er
ekki eitthvað sem gert er á einum
tímapunkti, heldur er ég að nota
aðferðir dáleiðslufræðanna allan
tímann,“ segir hann. „Til dæmis
með orðalagi og með því að fá fólk
til að halda athyglinni á einhverju
ákveðnu, sem er síendurtekið.“
Börnin fá f leiri og f leiri límmiða
sem hann setur á handarbök þeirra,
límmiðarnir mynda munstur og
börnin sökkva sér ofan þá.
Allir geta dáleitt og verið
dáleiddir ef þeir vilja
Sigurður Rúnar segir að allir geti
dáleitt og einnig að allir geti komist
í dáleiðsluástand. Fólk hafi hins
vegar mismikinn hæfileika til þess.
„Ég hef líkt þessu við söng, allir geta
sungið. Sumir virðast fæðast sem
snillingar í því eða geta að minnsta
kosti orðið feikna góðir söngvarar,
en allir geta æft sig og orðið þokka-
legir.“ Þá verður viljinn einnig að
vera til staðar hjá þeim sem dáleiða
á. Ef einhver vill ekki verða dáleidd-
ur skiptir snilli dáleiðandans engu
máli.
„Sumir detta inn og út úr þessu
ástandi. Ef bæði dáleiðandinn er
góður og viðtakandinn einnig getur
þetta varað eins lengi og báðir vilja.“
Aðspurður um hvort allir hafi trú
á að dáleiðsla virki segir Sigurður
Rúnar að þeir sem hafi kynnt sér
þetta sjái það fljótlega. „Þetta bara
virkar, það er svo einfalt,“ segir
hann. „En margt fólk þekkir þetta
ekki og heldur að öll dáleiðsla sé
eins og sviðsdáleiðsla. Sviðsdá-
leiðslu sjáum við oft í myndböndum
á netinu og á skemmtunum eins og
hjá dávaldinum Sailesh sem hefur
komið til Íslands, en þetta er mjög
skökk mynd af dáleiðslu.“
Dáleiðsla hefur ekki enn náð mik-
illi fótfestu í íslenskri tannlækna-
stétt en Sigurður Rúnar veit um tvo
aðra sem hafa menntað sig í henni
og notað í starfi. Af hinum vestrænu
þjóðum telur hann Svía vera hvað
fremsta á þessu sviði. Hann telur
þó að margir íslenskir tannlæknar
sem séu lagnir við fólk séu trúlega
óafvitandi að nota þessar aðferðir
til að hjálpa fólki.
Slær á kvíða í
tannlæknastólnum
með dáleiðslu
Sigurður Rúnar Sæmundsson notar dáleiðslu í tannlækningum til
að gera upplifunina betri og auðveldari. Hann segir alla hafa ein-
hvern tímann upplifað dáleiðsluástand eða hugarástand mjög líkt
því og segir frá aðferðum sínum og hvernig þær gagnast.
Sigurður notar litríka og flotta lím-
miða til að dáleiða yngri börnin.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur@frettabladid.is
EN ÉG HEF NOTAÐ DÁ-
LEIÐSLUFRÆÐI NOKKURN
VEGINN STANSLAUST Í
ÖLLUM SAMSKIPTUM MÍN-
UM VIÐ BÖRN Í LANGAN
TÍMA.
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
F
-1
D
2
0
2
4
4
F
-1
B
E
4
2
4
4
F
-1
A
A
8
2
4
4
F
-1
9
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K