Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 82

Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 82
Sigurður segir að fólk hafi mismikinn hæfileika til að dáleiða og vera dáleitt. Hann líkir þessu við söng. Allir geta sungið, æft sig og orðið betri en aðeins sumir séu með náttúrulega hæfileika. Ba r n a t a n n l æ k n i r -inn Sigurður Rúnar Sæmundsson hef u r notað dáleiðslu í störf-um sínum í um átta ár og segir hana gefa mjög góða raun. „Dáleiðsla gagnast á þann hátt að börnin verða sáttari og líður betur í tannlækningasamhenginu. Ég sé stundum litlu börnin fara í leiðslu og byrja að taka tillögum mínum fúslega um hvað skuli gerast næst. Það er akkúrat það sem þarf að gerast til að hjálpa barni á alúðlegan og fallegan hátt í gegn um reynsluna af því að fara til tannlæknis,“ segir hann. Hlaut að vera eitthvað sniðugt Sigurður Rúnar er búsettur í Banda- ríkjunum og hefur kennt barna- tannlækningar við Háskólann í Norður-Karólínu í rúm þrjú ár. Hann hefur einnig rekið tannlæknastofu á Íslandi síðan 1996. Í dag ber hún nafnið Hlýja og er til húsa í Glæsibæ. Auk þess hefur hann verið yfir barnatannlækningadeild Háskóla Íslands og starfað innan Tannlækna- félags Íslands. „Þegar ég var 16 eða 17 ára rakst ég á bók í safni foreldra minna um sjálfsdáleiðslu og hún fangaði áhuga minn á dáleiðslu,“ segir Sigurður Rúnar. „Löngu seinna, þegar ég var orðinn tannlæknir, sá ég að ríkis- tannlæknar í Svíþjóð voru styrktir til að mennta sig í dáleiðslu. Ég taldi að þetta hlyti að vera eitthvað snið- ugt.“ Sigurður Rúnar sá tækifæri þegar bandarískur sérfræðingur kom til Íslands og hélt endurmennt- unarnámskeið. Fjölmargt fólk í heilbrigðisstéttum hefur nýtt sér aðferðir dáleiðslunnar, sérstaklega sálfræðingar en einnig hjúkrunar- fræðingar og læknar. Margt fólk úr þessum stéttum kom á námskeiðið til þess að nýta í sínu starfi. „Á þessu námskeiði opnaðist þessi heimur fyrir mér en ég sá að ég var þegar byrjaður að nota aðferðir dáleiðsl- unnar í störfum mínum sem tann- læknir.“ Þrenging athyglinnar Enska orðið mesmerism vísar til þýska læknisins Franz Mesmer sem notaði dáleiðslu á átjándu og nítjándu öld. En dáleiðsla hefur að öllum líkindum fylgt mannkyninu í einhverju formi frá upphafi. Sig- urður Rúnar segir að til séu textar frá fornum siðmenningum sem vísi augljóslega til dáleiðslu. Undir lok nítjándu aldar var dáleiðsla mjög útbreidd í lækningum, til dæmis til deyfinga, en vék hins vegar á þeirri tuttugustu þegar lyf fóru að verða algengari. Sigurður Rúnar segir að hægt sé að deyfa fólk með dáleiðslu en lyfin sem til séu í dag séu svo góð að það þurfi ekki. Einnig sé hægt að slá á kvíða eða hræðslu við að fara til tannlæknis. Hann telur hins vegar að það ætti ekki að vera hlutverk tannlæknisins sjálfs frekar en flug- mannsins að lækna f lughræðslu. Hans takmark sem tannlæknir er að nota dáleiðslufræðin til að gera upplifunina betri og auðveldari fyrir þann sem verið er að hjálpa. „Dáleiðsla er ástand hugans með aukinni einbeitingu á það sem dáleiðslan fjallar um og takmarkaða eða enga athygli á utanaðkomandi þætti. Þetta er þá eins konar þreng- ing athyglinnar eða aukinn fókus á eitthvað. Síðan fylgir þessu hugar- ástandi aukinn hæfileiki til að taka leiðbeiningu eða tillögum,“ segir Sigurður Rúnar og bendir á að þetta sé hugarástand sem sé algerlega eðli- legt manninum. Segir hann alla hafa einhvern tímann upplifað dáleiðsluástand eða hugarástand mjög líkt því. Til dæmis þegar starað er inn í arineld eða út í brimið við ströndina. „Þú gleymir öllu sem er að gerast í kringum þig. Sumir upplifa þetta þegar þeir eru að keyra heim eftir vinnudag og vita varla af sér fyrr en þeir eru á bíla- stæðinu heima.“ Límmiðar á handarbaki „Ég hef aldrei notað dáleiðslu á þann hátt sem fólk venjulega hugsar sér dáleiðslu þar sem: Við setjumst niður og ég dáleiði þig. Ég er dáleiðandinn og þú verður dáleiddur. Ég hef notað aðferðir dáleiðslunnar á annan hátt. En ég hef notað dáleiðslufræði nokk- urn veginn stanslaust í öllum sam- skiptum mínum við börn í langan tíma,“ segir hann. En hvernig er dáleiðslan fram- kvæmd? Í störfum sínum segist Sigurður Rúnar nota bæði tal og sýningu til að leiða börn inn í ástand skylt dáleiðslu. Hann sýni börnunum til dæmis litríka og flotta límmiða. Þeir séu vel til þess fallnir að grípa athygli barnanna og hann eigi auð- veldara með að ná til þeirra. Þó hann starfi nær eingöngu með börnum þekkir hann vel inn á dáleiðslu fullorðinna og segir að töluverður munur sé þar á. Dáleiðsl- an tekur mið af hugarheimi, þroska og fyrri upplifunum. „Dáleiðslan er ekki eitthvað sem gert er á einum tímapunkti, heldur er ég að nota aðferðir dáleiðslufræðanna allan tímann,“ segir hann. „Til dæmis með orðalagi og með því að fá fólk til að halda athyglinni á einhverju ákveðnu, sem er síendurtekið.“ Börnin fá f leiri og f leiri límmiða sem hann setur á handarbök þeirra, límmiðarnir mynda munstur og börnin sökkva sér ofan þá. Allir geta dáleitt og verið dáleiddir ef þeir vilja Sigurður Rúnar segir að allir geti dáleitt og einnig að allir geti komist í dáleiðsluástand. Fólk hafi hins vegar mismikinn hæfileika til þess. „Ég hef líkt þessu við söng, allir geta sungið. Sumir virðast fæðast sem snillingar í því eða geta að minnsta kosti orðið feikna góðir söngvarar, en allir geta æft sig og orðið þokka- legir.“ Þá verður viljinn einnig að vera til staðar hjá þeim sem dáleiða á. Ef einhver vill ekki verða dáleidd- ur skiptir snilli dáleiðandans engu máli. „Sumir detta inn og út úr þessu ástandi. Ef bæði dáleiðandinn er góður og viðtakandinn einnig getur þetta varað eins lengi og báðir vilja.“ Aðspurður um hvort allir hafi trú á að dáleiðsla virki segir Sigurður Rúnar að þeir sem hafi kynnt sér þetta sjái það fljótlega. „Þetta bara virkar, það er svo einfalt,“ segir hann. „En margt fólk þekkir þetta ekki og heldur að öll dáleiðsla sé eins og sviðsdáleiðsla. Sviðsdá- leiðslu sjáum við oft í myndböndum á netinu og á skemmtunum eins og hjá dávaldinum Sailesh sem hefur komið til Íslands, en þetta er mjög skökk mynd af dáleiðslu.“ Dáleiðsla hefur ekki enn náð mik- illi fótfestu í íslenskri tannlækna- stétt en Sigurður Rúnar veit um tvo aðra sem hafa menntað sig í henni og notað í starfi. Af hinum vestrænu þjóðum telur hann Svía vera hvað fremsta á þessu sviði. Hann telur þó að margir íslenskir tannlæknar sem séu lagnir við fólk séu trúlega óafvitandi að nota þessar aðferðir til að hjálpa fólki. Slær á kvíða í tannlæknastólnum með dáleiðslu Sigurður Rúnar Sæmundsson notar dáleiðslu í tannlækningum til að gera upplifunina betri og auðveldari. Hann segir alla hafa ein- hvern tímann upplifað dáleiðsluástand eða hugarástand mjög líkt því og segir frá aðferðum sínum og hvernig þær gagnast. Sigurður notar litríka og flotta lím- miða til að dáleiða yngri börnin. Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur@frettabladid.is EN ÉG HEF NOTAÐ DÁ- LEIÐSLUFRÆÐI NOKKURN VEGINN STANSLAUST Í ÖLLUM SAMSKIPTUM MÍN- UM VIÐ BÖRN Í LANGAN TÍMA. 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 F -1 D 2 0 2 4 4 F -1 B E 4 2 4 4 F -1 A A 8 2 4 4 F -1 9 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.