Fréttablaðið - 23.11.2019, Qupperneq 98
Hát íða rba l let t inn f r á Pét u r sborg , S t . P e t e r s b u r g Festival Ballet, er staddur hér á landi. Í dag, laugardaginn
23. nóvember klukkan 14.00, verður
þriðja sýning ballettsins og Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands á Svana-
vatninu í Hörpu.
Ballettf lokkurinn, sem stofn-
aður var árið 2009, er á ferðlagi um
átta mánuði ári og var síðast í Lett-
landi og Lithaén og eftir sýningar
hér á landi liggur leiðin til Finn-
lands. „Við erum hrifin af Íslandi og
íslenskum áheyrendum, við höfum
fengið mjög hlýjar móttökur,“ segir
Irene Veres, framkvæmdastjóri
dansf lokksins. Þetta er í sjöunda
sinn sem dansflokkurinn kemur til
Íslands.
Vinsælasti ballettinn
H ljóm s veit a r st jór i n n Vad i m
Nikitin segir Svanavatnið við tón-
list Pjotr Tsjaíkovskíj vera vin-
sælasta ballett sögunnar. „Það felst
alltaf viss áhætta í því að segja á svið
Þyrnirós og Hnetubrjótinn en það
er engin áhætta samfara því að setja
Svanavatnið á svið því allir hrífast
af verkinu.“
„Sagan, sem er full af töfrum,
fjallar um ást og illsku. Hún er
mjög sterk og allir tengja við hana
og sömuleiðis hina dásamlegu tón-
list Tsjaíkovskíj, “ segir Irene. Sagan
segir af prinsessunni Odette sem
illur galdramaður breytir í svan.
Vitanlega kemur prins við sögu og
galdramaðurinn leggur einnig álög
á hann. Í lokin sameinast elskend-
urnir í dauðanum.
Dásamleg hljómsveit
Vadim og Irene eru spurð hvort
viðtökur áhorfenda séu eins um
allan heim eða ólíkar. „Þær eru
mjög ólíkar,“ segir Vadim. „Í Kína
situr fólk graf kyrrt og þögult og
þessi mikla þögn verður til þess að
maður heldur að því líki kannski
ekki sýningin, en í lokin klappa
áhorfendur og hrópa af ánægju. Í
Japan finnur maður mjög greinilega
að áhorfendur lifa sig inn í sýning-
una og vilja vera hluti af henni og
það sama á við um Ítali. Á Íslandi
skynjar maður hrifningu áhorfenda
þótt hér sé ekki balletthefð.“
Vadim ber mikið lof á Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. „Hljómsveitin er
alveg dásamleg. Ég er að koma hing-
að í þriðja sinn og hlakkaði til að
vinna með hljómsveitinni, því fylgir
sönn ánægja. Hljóðfæraleikararnir
eru vel undirbúnir og afar opnir. Þið
getið sannarlega verið stolt af Sin-
fóníuhljómsveitinni ykkar.“
Allir
hrífast
Hátíðarballettinn
frá Pétursborg
flytur hið fræga
Svanavatn í Hörpu. Irene framkvæmdastjóri og Vadim hljómsveitarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ballettinn á æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
BÆKUR
Ég er svikari
Sif Sigmarsdóttir
Þýðing: Halla Sverrisdóttir
Útgefandi: MM
Síður: 397
Sögur um geimverur sem hafa eitt-
hvað til jarðarinnar og jarðarbúa
að sækja hafa verið hluti af menn-
ingararfi Vesturlanda síðan 1898
þegar H.G. Wells skrifaði sögu sína
Innrásin frá Mars þar sem geim-
verur ráðast á London til að næra sig
á íbúum hennar. Innrásin frá Mars
er ein þekktasta bók sem skrifuð
hefur verið og út frá henni spratt
heil bókmenntagrein sem lifir góðu
lífi fram til dagsins í
dag. Ég er svikari
sækir ýmislegt til
þessa forvera síns
í i n n r á s a r b ók-
mennt ahefðinni
en hún fjallar um
Amy fjórtán ára
sem býr í norður-
hlut a Lundúna
í sa mt íma nu m
eða náinni fram-
tíð. Þegar sagan
hefst er ástand-
i ð e i n k e n n i -
legt, f ljúgandi
diskar sveima
y f ir borg inni
en enginn veit í
rauninni erindi
þ e i r r a . R a f -
magnið fer af
reglulega, vistir
eru af skornum
skammti af því að öll starfsemi
hefur lagst niður en fólk, og kannski
sérstaklega unglingar, reyna samt
að lifa lífi sínu eins og þeir best geta.
Þegar bróðir Amyar og besta vin-
kona eru numin á brott af hinum
óvelkomnu gestum í gegnum ein-
hvers konar risavaxna ryksugu-
arma ákveður hún að hafa frum-
kvæði, býður sig fram og gengur
geimverunum á hönd. Og þá upp-
hefst æsispennandi barátta fyrir
örlögum mannkynsins.
Ég er svikari er um margt
skemmtileg og lipurlega skrifuð
bók. Hún er svolítið lengi að fara
í gang og stundum eru skilin milli
dagbókar Amyar og þeirrar fyrstu
persónu sem er líka Amy sem segir
söguna ruglingsleg, til dæmis er
tímalínan oft óljós, hvað gerist hve-
nær og á undan eða á eftir hverju en
þegar sagan er komin almennilega
af stað verður söguþráðurinn mjög
spennandi og söguheimurinn vel
útfærður, einkum þó heimurinn
handan við ryksugubarka geimver-
anna sem er nöturlegur í meira lagi.
Persónurnar eru frekar dæmigerðar
fyrir unglingabók, Amy er nörd og
óánægð með útlit sitt, upptekin af
því að hafa aldrei upplifað að vera
kysst, Mathilda, besta vinkona
hennar er ofsasæt og heldur mikið
upptekin af því, sæti strákurinn er
góður í gegn þrátt fyrir að stundum
efist Amy um heilindi hans og ein-
eltisgerendurnir reynast vera svo
vondir að það er hreinlega genet-
ískt. Bókin fjallar einmitt öðrum
þræði um einelti og fordóma og því
kemur á óvart að rekast á niðrandi
holdafarslýsingu
í miðri bók sem
ek k i þjónaði
söguþræðinum
neitt og vann
eiginlega gegn
innri lógík sögu-
hei m si n s . E n
sög umaður inn
Amy er auðvitað
ekki fullkomin
frekar en aðrir
og þarna sýnir
höfundur hversu
stutt er í fordóma
hjá mannverum.
S i f S i g m a r s -
dóttir á að baki far-
sælan skriftaferil,
bæði sem höfundur
ungmennabóka og
skoðanapistla hér í
Fréttablaðinu. Hún
tvinnar hér saman
skemmtilega og spennandi frásögn
og vangaveltur um siðferði mann-
kyns og mikilvægi eða tilgangsleysi
tilfinninga, menningu unglinga og
fyrstu ástina, dregur upp umhugs-
unarverðar hliðstæður milli f lótta-
fólks á jörðu niðri og úr geimnum
og sýnir hvernig mannkynið hefur
brugðist sjálfu sér, löngu áður en
geimverurnar komu til.
Ég er svikari kom út á ensku árið
2017 en kemur nú út í íslenskri þýð-
ingu. Þýðing Höllu Sverrisdóttur er
einkar læsileg og vel útfærð.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og spenn-
andi saga um geimverur, mannverur,
siðferði og tilfinningar.
Af geimverum og tilfinningum
BAKARÍIÐ
Einar Bárðar og Svavar Örn
opna Bakaríið á laugardögum.
ALLA LAUGARDAGA MILLI 09:00 OG 12:00.
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
F
-1
3
4
0
2
4
4
F
-1
2
0
4
2
4
4
F
-1
0
C
8
2
4
4
F
-0
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K