Fréttablaðið - 23.11.2019, Síða 106
Á f immtudaginn var stór áfangi í lífi Jóns Mýrdal. Þá var ár liðið síðan heilaæxli á stærð við sítrónu var fjarlægt úr höfði
hans. Það var blessunarlega góð-
kynja. Hann lýsir ástandi sínu miss-
erin áður en heilaæxlið kom í ljós á
þá leið að hann hafi verið orðinn
algjörlega gufuruglaður. Ásgeir
Guðmundsson, vinur hans og koll-
egi úr veitingabransanum, segir að
ef laust hafi æxlið uppgötvast svo
seint vegna þess að Jón hefur alltaf
verið uppátækjasamur, hvatvís og
skemmtilegur.
Þakklátur lífgjöfinni og opnar
nýjan stað með félögum sínum
EF ÉG HEFÐI
VERIÐ Í ÞESSU
VIÐTALI FYRIR
ÁRI ÞÁ HEFÐI
ÉG ALGJÖRLEGA
VERIÐ Í RUGL-
INU. ÉG MAN
EKKI NEITT FRÁ
ÞESSUM TÍMA.
Ásgeir, Jón, Steinþór og Snorri hafa allir verið kanónur í íslensku skemmtanalífi síðustu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Jón segist afar
þakklátur fyrir
að hafa átt góða
fjölskyldu að og
trausta vini þegar
hann veiktist.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Jón Mýrdal opnar
nýjan stað á Hverfis-
götunni ásamt fé-
lögum sínum, þeim
Ásgeiri Guðmunds-
syni, Steinþóri Helga
Arnsteinssyni og
Snorra Helgasyni.
Jón kveðst sjálfur ekkert muna
eftir vikunum fyrir aðgerðina. Það
varð honum til happs að eiginkona
náins vinar áttaði sig á að ekki var
allt með felldu. Þar kom reynsla
hennar úr heilbrigðisgeiranum að
góðum notum, en hún er við nám í
hjúkrunarfræði.
Ríkir af reynslu
Þeir eru fjórir vinirnir sem hafa
tekið sig til og opnað barinn Rönt-
gen í húsinu sem hýsti áður Nafn-
lausa pizzastaðinn; þetta eru þeir
Jón Mýrdal, Ásgeir Guðmundsson,
Steinþór Helgi Arnsteinsson og
Snorri Helgason. Hafa þeir allir ríka
reynslu af rekstri skemmtistaða og
í viðburðarstjórnun, en þeir Jón og
Ásgeir ræddu við Fréttablaðið um
nýja staðinn og þörfina fyrir að
skemmta fólki.
„Já, við komum inn á helvíti hent-
ugum tíma. Gatan hefur aldrei litið
betur út,“ segir Ásgeir, einn þeirra
fjögurra sem standa að þessu nýja
öldurhúsi við Hverfisgötuna. „Það
er mjög skemmtilegt að koma inn
núna en auðvitað ber maður harm
í brjósti vegna þeirra rekstraraðila
sem hafa lent í erfiðleikum þarna
síðustu mánuði. Við erum hins
vegar nokkuð brattir og bjartsýnir
og gatan öll er að lifna við.“
„Svo viljum við ekkert að kúnn-
arnir okkar séu á bíl,“ bætir Jón við,
og þeir hlæja.
En hvaðan kom nafnið?
„Eftir miklar hugleiðingar fórum
við að skoða sögu hússins, en hún er
löng og merkileg. Við komumst að
því að árið 1914 f lutti Gunnlaugur
Claessen fyrsta röntgentækið til
landsins, og hefjast þá röntgen-
rannsóknir hérlendis í fyrsta sinn.
Smá skemmtileg saga að það var
ekki neitt rafmagn í húsinu á þess-
um tíma. Þeir þurftu að fara á tré-
smíðaverkstæðið Völund sem var
við hliðina til að fá rafmagn. Alltaf
þegar átti að taka röntgenmynd
þurftu þeir að stökkva yfir og biðja
þá um að slökkva á öllum sínum
græjum. Þú getur rétt ímyndað þér
hversu frumstætt samfélagið var,“
segir Ásgeir og heldur svo áfram:
„En það hefur margt verið í þessu
húsi. Skrifstofur, Kvennaathvarfið
og nú síðast Nafnlausi pizzastaður-
inn, Mikeller, Systir og Dill.“
Nýr veitingastaður
Jón rak áður skemmtistaðinn
Húrra, sem naut mikilla vinsælda,
sér í lagi meðal tónlistarfólks og
unnenda, enda voru aðstæður til
tónleikahalds þar góðar miðað við
hvað gengur og gerist í miðbænum.
Ásgeir og Jón vilja þó ekki ganga
svo langt að kalla nýja staðinn
skemmtistað, heldur sé það ætlunin
að þarna ríki meiri barstemning.
„Þetta er bar með skemmti-
staðaívafi. Það er opið til klukkan
03.00 á föstudögum og laugar-
dögum. Þannig að það ætti svona
í það minnsta alveg að vera hægt
að skemmta sér. Það verður heldur
Steingerður Sonja
Þórisdóttir
steingerdur@frettabladid.is
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
F
-4
9
9
0
2
4
4
F
-4
8
5
4
2
4
4
F
-4
7
1
8
2
4
4
F
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K