Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 107

Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 107
Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 P R E N T U N .IS Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl. JÓLIN ERU HJÁ OKKUR... .................................................... www.bjornsbakari.is SVO SPILAR AUÐVITAÐ INN Í AÐ JÓN ER AÐ EÐLISFARI MJÖG HVATVÍS OG SKEMMTILEGUR MAÐUR, SEM ÚTSKÝRIR EFLAUST HVERNIG ÞETTA FÓR FRAM HJÁ OKKUR VINUM HANS AÐ EINHVERJU LEYTI. Vinahópurinn er sterkur og samrýndur, allir hjálpast að við að koma staðnum á laggirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ekkert sérstakt þema. Því verður þetta ekki bjórbar, vínbar eða kok- teilabar. Allt er þó hægt að fá. Við stöndum nú í því að breyta húsnæð- inu úr því að vera veitingastaður í að vera bar,“ segir Ásgeir. Hann bætir við að það verði þó boðið upp á einhvers konar barsnarl. Á efri hæð staðarins er nú verið að setja upp tónleikasvið, en stefnan er að nýta húsið á fjöl- breyttan hátt. „Svo er náttúrulega annað í þessu dæmi líka. Við verðum í samstarfi við tvo rosalega öf luga veitinga- menn í gamla Dill-rýminu. Við getum ekki opinberað það strax nákvæmlega hvernig veitingastað- ur þetta verður, en getum sagt frá því að þeir Stefán Melsted á Snaps og Gústi bakari úr Brauð og co. sjá um hann. Þeir eru með mjög góðar og ferskar hugmyndir, við leyfum þeim auðvitað bara að tilkynna það á sínum forsendum. Þeir munu opna á sama tíma og við,“ segir Jón. „Það er mjög spennandi að fá þá inn. Þetta eru reynslumiklir menn sem hafa sýnt það og sannað að þeir gera þetta vel. Þetta verður ekki á sama verðbili og Dill, þetta verður aðeins aðgengilegra en alveg jafn gott,“ segir Ásgeir. Seldi Messann Jón hefur líka reynslu í veitinga- bransanum en hann stofnaði veit- ingastaðinn Messann við Lækjar- götu, og síðar útibú hans úti á Granda. Staðurinn var rómaður fyrir góða fiskrétti en Jón starfaði á sínum tíma í Tjöruhúsinu vestur á Ísafirði þar sem hann lærði hjá Magga frænda sínum að elda góðan fisk. Tjöruhúsið þykir einn allra besti fiskiveitingastaður landsins, og þótt víðar væri leitað. „Ég hef ekki rætt það opinber- lega að ég er búinn að selja Mess- ann. Meðeigandi minn keypti mig út þannig að ég hætti þar fyrir nokkrum mánuðum. Þann 21. nóv- ember er svo komið ár síðan að ég fór í bráðauppskurð á Landspítal- anum eftir að í ljós kom að ég var með stærðarinnar heilaæxli. Ef ég hefði verið í þessu viðtali fyrir ári þá hefði ég algjörlega verið í rugl- inu. Ég man ekki neitt frá þessum tíma,“ segir Jón. Hélt þetta væri kulnun Eftir því sem veikindin ágerðust varð hann ólíkari sjálfum sér og átti við mikil veikindi stríða áður en kom í ljós hversu alvarleg ástand hans var. Hann skrifaði bæði líðan og hegðun á kulnun. „Ég hélt að þetta væri mögu- lega bara vöðvabólga. Þrír læknar sögðu við mig að þetta væri einmitt líklegast vöðvabólga. En svo var á endanum gripið í taumana, ég var orðinn mjög ruglaður á þessum tímapunkti. Þá greip Nína, konan hans Gumma vinar míns, mig og fór með mig upp á spítala, en hún er að læra hjúkrunarfræði. Þarna vorum við konan mín með eins mánaðar gamlan dreng og hún eðli- lega í brjóstaþoku og sjálf að reyna að halda sönsum, með nóg á sinni könnu,“ segir Jón. „Svo spilar auðvitað inn í að Jón er að eðlisfari mjög hvatvís og skemmtilegur maður, sem útskýrir ef laust hvernig þetta fór fram hjá okkur vinum hans að einhverju leyti. Breytingin á honum saman- borið við þá breytingu sem æxlið hefði valdið hjá venjulegum manni er kannski ekki jafn mikil,“ segir Ásgeir og þeir hlæja saman. „Stund- um hugsaði ég samt: „Mikið er hann Jón orðinn ruglaður!“ en svo kemur auðvitað í ljós að hann er með heila- æxli á stærð við sítrónu.“ „En sem betur fer var þetta góð- kynja æxli og það var fjarlægt sam- dægurs í bráðaheilauppskurði. Þar sem ég man í raun ekkert eftir þessum tíma þá var mesta álagið á fólkinu í kringum mig,“ segir Jón og bætir við hve gífurlega þakklátur hann sé góðri fjölskyldu sinni og traustum vinum. „Ég var reyndar bara átta daga á spítalanum, sem er rosalegt miðað við hvað þetta var stór aðgerð. Hauskúpan var söguð og opnuð og æxlið fjarlægt en það lá ofan á heil- anum og þrýsti á hann.“ Þakka fyrir lífið Í kjölfarið neyddist Jón til að fara reglulega í segulómun og röntgen, sem gerir nafn nýja staðarins enn þá táknrænna. Fyrir stuttu fékk hann þær fréttir að allt liti vel út og hann þyrfti því einungis að mæta árlega í röntgen. Það má því í raun segja að hann fari úr því að fara í röntgen yfir í að fara á Röntgen. „Ég þarf bara að mæta árlega því aðgerðin gekk mjög vel, engar bólgur og ekkert að sjá. Annars vil ég líka segja: Lífið er núna, mig langar persónulega til að gera eitt- hvað skemmtilegt og þetta er alveg frábært verkefni. Ég er náttúrulega mjög hvatvís og með ADHD, þann- ig að ég hef verið að vasast í mörgu. En skemmtistaðir eru svo frábærir og það er gefandi að reka þá, því maður er auðvitað að skemmta fólki. Það er þá í raun vinnan manns að gera eitthvað fallegt og skemmtilegt fyrir fólk,“ segir Jón. Stefnan er að opna staðinn nú á fimmtudaginn, en þeir félagar standa í miklum framkvæmdum í húsnæðinu sem þeir vona að þeir nái að ljúka fyrir þann tíma. „Staðurinn opnar vonandi þá, á þakkargjörðardaginn. Við erum að þakka fyrir lífið,“ segir Jón. „Eins og hann segir, þetta er nátt- úrulega hugmyndin hans Jóns. Hann fær svo okkur, vini sína, með í þetta. Mig, Steinþór Helga og Snorra. Þó maður segi sjálfur frá þá eru þetta smá kanónur í þessum bransa, íslensku skemmt- analífi og veitingabransanum. Jón náttúrulega stofnaði Húrra, Bravó og Messann, ég var í Bryggjunni alveg frá upphafi ásamt því að vera framkvæmdastjóri Sónar í tvö ár og Innipúkans síðustu sex árin. Snorri stýrði viðburðum við góðan orðstír á tónleikastaðnum Húrra. Steinþór Helgi var viðburðastjóri CCP sem er náttúrulega f lennistórt fyrir- tæki. Þannig að auk þess að vera góðir vinir sem vilja skemmta fólki og skapa góðan stað, þá höfum við líka reynsluna sem þarf til að láta þetta ganga,“ segir Ásgeir. „Svo höfum við líka ólíkan bak- grunn. Miðað við þessa viku sem við höfum verið að vinna í þessu þá er þetta ótrúlega gott teymi,“ segir Jón og bætir við: „Við erum góðir vinir, en ég er um áratug eldri en þeir.“ „En þú ert samt svo ungur í anda,“ svarar Ásgeir. „Já, ég líka þroskaðist ekki neitt þar til ég varð 33 ára,“ segir Jón. „Við eigum nú eftir að sjá það gerast. Mætti segja að þú sért betri maður í dag?“ spyr Ásgeir vin sinn Jón. „Er það?“ svarar Jón og þeir skella báðir upp úr. L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 59L A U G A R D A G U R 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 F -3 A C 0 2 4 4 F -3 9 8 4 2 4 4 F -3 8 4 8 2 4 4 F -3 7 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.