Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 2
Veður
Snýst í vestan 10-18 m/s, fyrst
vestan til á landinu með slyddu og
kólnar, en lengst af þurrt um landið
norðaustanvert. Úrkomulítið um
landið vestanvert. SJÁ SÍÐU 42
Kirkjugarður jólaandans
Þau hafa vafalaust, hvert á sinn hátt, fært fjölskyldum jólaanda og gleði yfir hátíðarnar. En hjá Sorpu hefur nú þegar safnast saman mikill haugur
jólatrjáa sem útskrifuð hafa verið af heimilum landsmanna. Talin hafa skilað sínu þetta árið. Jólaandinn endar í bláum gám. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Betri líðan í hálsi og baki undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Frábær aðstaða og góður tækjasalur á Bíldshöfða 9.
Upplýsingar og skráning á www.bakleikfimi.is
Bakleikfimi
Hefst
10. jan.
ALÞINGI „Ég datt í veikindi rétt fyrir
þingfrestun í byrjun desember og
var heima í einhverja daga. Þá bjó ég
bara til Þingspilið í einhverju hita
móki. Ég er búinn að gera nokkrar
prótótýpur og byrjaður að prófa
spilið,“ segir Jón Þór Ólafsson, þing
maður Pírata.
Jón Þór er búinn að gera 72 mis
munandi spil en þar á meðal eiga
allir átta flokksformennirnir á þingi
sitt eigið spil. Einnig er að finna spil
eins og hneykslismál, stefnumál til
að leggja fram og atvik eins og bús
áhaldabyltinguna eða að fá pólit
íska blóðgjöf.
„Ég vildi hafa þetta svona eins
og vinsælustu spilin eru í dag. Þú
verður bara að geta tekið spilið upp
og byrjað að spila þannig að allir
skilji það eins og skot. Þá má bara
taka svona korter til hálftíma að
hámarki. Um leið og ég var kominn
með formið þá rammaði það inn
alla möguleikana sem ég hafði.
Það er svo rosalega margt hægt að
gera. Ég er búinn að vera að leikja
væða Alþingi í hausnum á mér mjög
lengi.“
Hann ákvað að nota skopmyndir
Halldórs Baldurssonar í prótótýp
una. „Ég fór að skoða myndirnar
hans en hann er búinn að vera með
samfélagsgrín síðan 2005 og tók í
rauninni bara þessa stjórnmálasögu
sem hann er búinn að taka saman í
þessum myndum. Svo sá ég að ég gat
leikjavætt hverja myndina á fætur
annarri.“
Þannig varð til dæmis til spil sem
sýnir fjórflokkinn en þegar því spili
er spilað út tapa allir þeir flokkar
fylgi. Svo eru nýju framboðin með
sitt spil en þá eru helmingslíkur
á því að sá sem fær það detti út af
þingi.
„Ég var núna að klára ansi góða
útgáfu af prótótýpunni og sýndi
Halldóri. Honum fannst þetta bara
frábært og er með í þessu. Við erum
bara að skoða næstu skref.“
Jón Þór segir að spilið sé einfalt,
bara spilin en ekkert leikborð. „Sum
spilin krefjast reyndar hlutkestis og
þá var ég að hugsa um að hafa eina
íslenska krónu með hverju spili.“
Jón Þór viðurkennir að hafa
skemmt sér konunglega við gerð
spilsins. „Þetta var geggjað stuð.
Ég prófaði það svo fyrst með börn
unum mínum. Það gekk fínt hjá
stelpunni sem er að verða níu ára
en var aðeins erfiðara hjá stráknum
sem er sex ára.“
Aðspurður segist Jón Þór telja
að hægt verði að spila Þingspilið
í hliðar sölum Alþingis en varla í
sjálfum þingsalnum nema í algjöru
hljóði. „Ég sýndi öllum formönnun
um sín spil fyrir jólin og þeim fannst
þetta drepfyndið. Mig langar að gera
þetta þannig að þetta sé eitthvað
sem allir geti spilað. Það sé enginn
kvikindisháttur heldur bara verið að
hafa gaman af stjórnmálasögunni.“
sighvatur@frettabladid.is
Nýtti veikindaleyfi til
að búa til Þingspilið
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, notaði veikindaleyfi í desember til að búa
til Þingspilið. Hann segist lengi hafa verið að leikjavæða Alþingi í hausnum á sér
og hugar nú að framleiðslu ásamt Halldóri Baldurssyni skopmyndateiknara.
Jón Þór notaði tækifærið og sýndi forseta lýðveldisins Þingspilið í nýársmót-
töku á Bessastöðum. Að sögn Jóns Þórs leist Guðna vel á. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sum spilin krefjast
reyndar hlutkestis
og þá var ég að hugsa um að
hafa eina íslenska krónu
með hverju spili.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata
RÍKISÚTVARPIÐ Magnús Geir Þórð
arson verður áfram útvarpsstjóri
næstu fimm árin en hann hefur
gegnt starfinu síðan í mars 2014.
Þetta staðfestir Kári Jónasson,
stjórnarformaður Ríkisútvarpsins,
í samtali við Fréttablaðið. Kjarninn
greindi fyrst frá.
Ráðningartími útvarpsstjóra er
fimm ár en stjórn RÚV hefur heim
ild til að endurráða útvarpsstjóra til
fimm ára aftur, en þó aðeins einu
sinni. Það ákvæði hefur stjórnin
nýtt sér.
„Þetta er þannig að ef stjórnin vill
ekki framlengja við hann samning
inn þá þarf að segja honum upp með
tólf mánaða fyrirvara og hefði þurft
að gera það í apríl á síðasta ári,“ segir
Kári. Þar sem staðan var ekki aug
lýst þá framlengist ráðningin um
önnur fimm ár. Hann segir stjórnina
mjög ánægða með störf Magnúsar
Geirs sem útvarpsstjóra.
„Já, hann er öflugur og er að gera
marga góða hluti og það er margt í
pípunum í Efstaleiti sem kemur í ljós
á árinu.“
Aðspurður segir Kári að kaup og
kjör útvarpsstjóra séu þau sömu og
áður en laun hans voru hækkuð af
stjórninni síðast árið 2017 og eru um
1.800 þúsund krónur á mánuði. – smj
Magnús áfram
útvarpsstjóri
Magnús Geir Þórðarson, útvarps-
stjóri RÚV. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.
Kári Jónasson,
stjórnarfor-
maður RÚV.
ALMANNATRYGGINGAR Trygginga
stofnun ríkisins hefur hlunnfarið
stóran hóp öryrkja um milljarða
á undanförnum árum að sögn
Öryrkjabandalags Íslands. Þann
ig hafi stofnunin skert bætur yfir
þúsund einstaklinga á grundvelli
búsetu, sem standist ekki.
ÖBÍ segir bréf velferðarráðu
neytisins til velferðarnefndar
Alþingis fyrir jól staðfesta að TR
hafi samtals haft hálfan milljarð af
öryrkjum á hverju einasta ári í mörg
ár. ÖBÍ metur tjónið á 56 milljarða.
ÖBÍ segir að fjölmargir munu nú fá
greiddar vangoldnar bætur aftur í
tímann.
„Ríkið er að gæla við þá hugmynd
að greiða bara hluta til baka af því
sem haft var ólöglega af fólki. Ég
trúi því ekki að þetta endi þann
ig,“ segir Daníel Isebarn, lögmaður
Örykjabandalagsins.– smj
Öryrkjar urðu
af milljörðum
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð