Fréttablaðið - 05.01.2019, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
jeep.is
RENEGADE
2.0 DÍSEL, 170 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR,
HÁTT OG LÁGT DRIF.
COMPASS
2.0 DÍSEL, 140/170 HÖ.
2.0 BENSÍN, 170 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR.
CHEROKEE
2.2 DÍSEL, 185 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR.
GRAND CHEROKEE
3.0 DÍSEL, 250 HÖ,
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF.
JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
Sigrún Jónas-
dóttir
rannsóknarlög-
reglumaður
telur að aukin
umræða hafi
valdið viðhorfs
breytingu til heimilis
ofbeldis en ákærum og dómum í
heimilisofbeldismálum hefur fjölgað
mikið. Nágrannar líti nú síður í hina
áttina og aðkoma félagsþjónust
unnar hafi miklu breytt.
Guðni Th. Jóhannesson
forseti Íslands
sagði í nýárs
ávarpi sínu að
fátæktar og
misréttis gætti
hér á landi og að
varast þurfi goð
sagnir um annað.
„Hugsum til þeirra
sem mættu mótbyr á árinu, þeirra
sem búa við sorg og missi, þeirra sem
þurfa stuðning okkar.“
Berglind Soffía Blöndal
doktorsnemi í nær-
ingarfræði
sagði það svaka
legt að fólk á
aldrinum 77
til 93 ára sem
útskrifast af
öldrunardeild
Landspítala léttist um
eitt kíló á viku eftir útskrift. Berglind
fylgdi 13 einstaklingum eftir í
nokkrar vikur eftir útskrift.
Þrjú í fréttum
Umræða, ávarp
og aldraðir.
TÖLUR VIKUNNAR 09.12.2018 TIL 15.12.2018
dómar féllu í heim
ilisofbeldismálum
árið 2018. Tveir
voru sýknaðir.
350
málum þarf
lögreglan á
höfuðborgar
svæðinu
að sinna á
hverjum
sólarhring að
meðaltali.
44.984
34%
fjölgun varð á tilkynntum
nauðgunum í fyrra miðað
við árið 2017.
73,4
míkrógrömm
af svifryki á
rúmmetra
mældust á
gamlárskvöld.
Heilsu
verndarmörk
eru 50 mikró
grömm.
1 kíló
er þyngdin
sem fólk á
aldrinum 77 til
93 ára léttist
um á viku
eftir útskrift af
öldrunardeild
Landspítalans.
umferðarlaga
brot voru skráð
árið 2018.
22
SJÁVARÚTVEGUR Fiskistofa hefur
svipt togarann Kleifaberg RE70
veiðileyfi í tólf vikur vegna brott
kasts. Leyfissviptingin tekur gildi
4. febrúar næstkomandi.
„Þetta er niðurstaða sem liggur
fyrir í framhaldi af rannsókn sem fór
af stað í kjölfar upplýsinga sem komu
meðal annars fram í fréttaskýringa
þættinum Kveik á RÚV,“ segir Eyþór
Björnsson fiskistofustjóri.
Það var fyrrverandi skipverji á
Kleifabergi sem kom myndskeiðun
um til Fiskistofu og fréttaskýringa
þáttarins þar sem hann var í viðtali
og gerði grein fyrir brottkastinu.
Um er að ræða myndskeið frá
árunum 2008, 2010 og 2016 sem
virðast sýna brottkast á fiski sem
komið hefur um borð með veiðar
færum Kleifabergs. Í úrskurði Fiski
stofu er útgerðin talin hafa haft fjár
hagslegan ávinning af því að kasta
fiski fyrir borð sem annars yrði til að
tefja vinnslu um borð eða sem full
nægði ekki kröfum útgerðarinnar.
Einnig megi ganga út frá því, eins og
atvikum er lýst, að um ásetningsbrot
hafi verið að ræða. Fyrir brotin fær
útgerðin þyngstu viðurlög sem lög
leyfa; sviptingu veiðileyfis í 12 vikur.
Um viðurlögin segir í úrskurðinum
að hvorki útgerðin, áhöfn né aðrir
sem starfi í þágu útgerðarinnar hafi
orðið uppvísir að sambærilegum
brotum áður en vegna fjölda atvik
anna, hve mikill aflinn var og vegna
augljóss ásetnings telji stofnunin rétt
að hafa veiðileyfissviptinguna eins
langa og lög leyfa.
Í yfirlýsingu frá Útgerðarfélagi
Reykjavíkur sem barst Fréttablaðinu
í gærkvöldi segir að úrskurðurinn
verði kærður til atvinnuvegaráðu
neytisins. Félagið telji sig ekki hafa
fengið réttláta málsmeðferð hjá
Fiskistofu sem hafi bæði rannsakað
meint brot og fellt úrskurð.
„Við erum alveg miður okkar yfir
þessari ákvörðun og teljum hana
ranga,“ segir Runólfur Viðar Guð
mundsson, framkvæmdastjóri hjá
ÚR. Hann segir ekki hafa verið tekið
tillit til sjónarmiða og röksemda
félagsins við rannsókn málsins.
Málatilbúnaður Fiskistofu og for
sendur úrskurðarins eru gagnrýndar
í fyrrgreindri yfirlýsingu félagsins.
Úrskurðurinn byggi á lýsingu eins
manns og myndskeiðum sem auð
velt sé að eiga við og bjaga eins og
bent hafi verið á í andmælum til
Fiskistofu. Þá hafi eitt myndskeið
anna verið kært til lögreglu enda
sé það falsað að mati sérfræðinga
útgerðarinnar. Að þessu atriði er
vikið í úrskurði Fiskistofu en vísað
til annarra atriða sem styðji frásögn
uppljóstrarans, þar á meðal færslna
í afladagbók skipsins, gagna Fiski
stofu og vitnisburðar annars skip
verja sem var í einni af umræddum
veiðiferðum.
Aðspurður segir Runólfur að hefði
ekki komið til leyfissviptingarinnar
hefði skipið farið til veiða í Barents
hafi. „Það er fiskgengd í Barentshafi
á vorin þannig að ef þessu verður
ekki hrundið þá verður þetta gríðar
legt tjón fyrir skipið, áhöfnina, fjöl
skyldur hennar og útgerðina.“
Kæra til ráðuneytisins frestar ekki
áhrifum úrskurðarins og að óbreyttu
heldur skipið því ekki til veiða í Bar
entshafi þótt úrskurðurinn verði
kærður. Sviptingin mun því, sam
kvæmt tilkynningu frá útgerðinni,
rýra tekjur félagsins um allt að millj
arð króna og auk þess valda henni
varanlegum skaða þar sem óvíst er
hvort skipið muni halda aftur til
veiða. Yfir fimmtíu manns vinni við
skipið og þriggja mánaða stopp geti
þýtt að vinnustaðurinn verði lagður
niður enda allar líkur á að sjómenn
á Kleifabergi fái vinnu á öðrum skip
um. adalheidur@frettabladid.is
Fiskistofa svipti Kleifaberg RE
veiðileyfinu vegna brottkasts
Löndun úr skipinu Kleifabergi sem liggja mun við bryggju næstu mánuði að óbreyttu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Togarinn Kleifaberg
RE hefur verið sviptur
veiðileyfi í 12 vikur
vegna brottkasts. Fiski-
stofa telur brottkastið
ásetningsbrot og beitir
þyngstu viðurlögum
sem lög leyfa. Útgerðin
er miður sín og mun
kæra til ráðuneytis.
Eyþór Björnsson
Fiskistofustjóri.
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð