Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 12
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum
og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi
í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.
l Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til
að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja
l Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi
og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein
l Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns
undir leiðsögn ábyrgðarmanna
l Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna
l Úthlutun mun liggja fyrir í mars 2019
Hverjir geta sótt um?
l Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
l Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema
í sumarvinnu við rannsóknir
Umsóknir eru rafrænar og skal sækja um á www.rannis.is.
Þar er jafnframt að finna reglur og leiðbeiningar varðandi sjóðinn.
Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Bjargmundsdóttir,
kolbrun.bjargmundsdottir@rannis.is,
sími 515 5814.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Nýsköpunarsjóður námsmanna
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2019 kl.16.00
Sumarvinna við
sjálfstæðar rannsóknir
VINDORKA OG RAMMAÁÆTLUN
Í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið
býður verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar
til opins fundar um vindorku
miðvikudaginn 9. janúar 2019 kl. 13-17.
Fundurinn verður haldinn í sal Þjóðminjasafnsins.
Beint streymi verður frá fundinum.
Nánari upplýsingar og dagskrá málþingsins
er að finna á www.ramma.is
ÞÝSKALAND Persónulegar upplýsing-
ar og gögn hundraða þýskra stjórn-
málamanna urðu sýnileg öllum á
internetinu í síðasta mánuði. Þetta
kom fram á blaðamannafundi í
Þýskalandi í gær. Ekki er vitað hvað-
an upplýsingarnar voru fengnar eða
hver ber ábyrgð á birtingu þeirra
en gögnin birtust í skömmtum frá
byrjun desember og fram að jólum
í eins konar jóladagatali á Twitter.
Meðal gagna sem urðu aðgengileg á
netinu voru kreditkortaupplýsingar
og einkasamtöl, en þrátt fyrir að svo
virðist sem ekki sé um neinar pól-
itískar bombur sé að ræða er litið
mjög alvarlegum augum á málið í
ljósi þess gagnamagns sem um er
að ræða.
Á blaðamannafundinum kom
fram að lekinn hefði bitnað á
stjórnmálamönnum allra flokka
þýska þingsins og einnig þýskum
þingmönnum Evrópuþingsins og
fjölmargra ríkisþinga. Samkvæmt
þýskum miðlum náði lekinn einnig
til persónuupplýsinga fjölda blaða-
manna og annarra opinberra per-
sóna.
Lekinn virðist þó hvorki hafa náð
til æðstu stofnana framkvæmdar-
valdsins né til hersins. Málið er nú
í rannsókn en Twitter-síðunni sem
gögnin birtust á hefur verið lokað.
Síðan hafði yfir 1.700 fylgjendur og
virðist hafa verið stofnuð í Ham-
borg. adalheidur@frettabladid.is
Upplýsingaleki
um þingmenn
Þýsk stjórnvöld rannsaka alvarlegan leka á persónu-
upplýsingum mörg hundruð stjórnmálamanna þar
í landi. Upplýsingarnar voru birtar á Twitter.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er meðal þolenda upplýsingalekans.
Hundruð stjórnmála-
manna urðu fyrir barðinu á
upplýsingalekanum.
TAÍLAND Hitabeltisstormurinn
Pabuk kom á land við strendur Taí-
lands í gær en búist var við að hann
næði hámarki í nótt. Ferðamanna-
eyjarnar Koh Koh Samui, Koh Tao
og Koh Phangan urðu verst úti vegna
mikils storms og rigningar. Fjöl-
margir Íslendingar voru á svæðinu
en ekki er vitað til að nokkurn þeirra
hafi sakað.
Einn þeirra, bardagakappinn Ívar
Orri Ómarsson sem staddur er á Koh
Phangan við æfingar, sagði á mynd-
skeiði sem hann deildi með Frétta-
blaðinu í gær að tré væru að rifna
upp með rótum í bálviðrinu. Hann
og samferðafólk hans héldi sig þó
inni uns veðrinu slotaði.
Veðurstofa Taílands varaði við
flóðbylgjum sem gætu náð allt að
fimm metra hæð við austurströnd
Taílandsflóa og allt að tveggja til
þriggja metra háum flóðbylgjum
í Andamanhafi við vesturströnd
Taílands. Þá var einnig varað við
miklum vindi og öll skip kölluð til
lands og eiga að vera í höfn þar til að
minnsta kosti í dag, laugardag. – la
Versti stormur í 30 ár
Þúsundir urðu að flýja heimili sín vegna bálviðrisins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð