Fréttablaðið - 05.01.2019, Síða 33
Stjórnendur fyrirtækja eru í vaxandi mæli að átta sig á að það að fjárfesta í góðum
starfsanda er ávísun á betri starfs-
mann. Sáttur starfsmaður er
betri starfsmaður og gleði starfs-
fólksins leynir sér ekki á slíkum
viðburðum. Ýmis fyrirtæki efna til
hvataferða nokkrum sinnum á ári
því það þjappar mannskapnum
saman, eykur samkennd innan
fyrirtækisins og starfsfólkinu
finnst það metið að verðleikum
þegar það er verðlaunað með
slíkum hætti fyrir vel unnin störf,“
segir Gunnar Traustason, eigandi
g-events en þar starfa sérfræðingar
í að skipuleggja viðburði sem
henta öllum starfsmönnum fyrir-
tækja, burtséð frá aldri, þannig að
allir geti tekið þátt og verið með.
„Stjórnendur fyrirtækja líta svo á
að allt komi þetta ríkulega til baka
og við höfum unnið með fyrirtækj-
um þar sem starfsaldur er mjög hár
vegna þess hve mórallinn er góður.
Slíkt heldur fólki á vinnustaðnum
og því líður vel þegar vel er hugsað
um það og fyrirtækjaviðburðir eru
liður í því,“ upplýsir Gunnar.
„Við erum mjög sterk í því að
hugsa út fyrir boxið en líka í hefð-
bundnum viðburðum eins og árs-
hátíðum og ráðstefnum og útbúum
spennandi ævintýri og viðburði
fyrir allar tegundir fyrirtækja, óháð
því hver þau eru.“
Íslendingar góðir gestgjafar
Dæmi um nýlegan fyrirtækjavið-
burð g-events er Bragðlaukadekur
fyrir 170 manns.
„Þá vorum við með smakk á
lúxus kjötmeti, hágæða konfekti
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Íslenskt tónlistarfólk er á faralds-fæti allt árið um kring og kemur fram á fjölda tónleika, tónlistar-
hátíða og annarra viðburða víða
um heim. Ein þeirra sveita sem
ferðuðust um langan veg á síðasta
ári var rokksveitin We Made God
en meðlimum hennar bauðst
óvænt tækifæri í lok síðasta árs til
að koma fram á þrettán tónleikum
á jafnmörgum dögum í Kína.
Magnús Bjarni Gröndal, söngv-
ari og gítarleikari sveitarinnar,
segir kínverskan tónleikahaldara
hafa haft samband við þá félaga
og boðið þeim þennan túr. „Þetta
var mikil keyrsla, þrettán tón-
leikar á þrettán dögum sem urðu
um leið partur af tónleikaferðalagi
til að kynna plötu sem við gáfum
út á síðasta ári. Það kom okkur
verulega á óvart hvað kínversku
tónleikastaðirnir voru flottir.
Salirnir voru stórir og með öllum
nýjustu græjunum. Kínverskir
áhorfendur minna að vissu leyti á
íslenska áhorfendur, þeir eru mjög
hlédrægir meðan á tónleikum
stendur, og eru ekki mikið fyrir að
hreyfa sig mikið með tónlistinni.
Viðbrögðin voru samt æðisleg,
til dæmis tíðkast það í Kína að
hljómsveitir sitji við borð eftir tón-
leikana og áriti boli og geisladiska.
Þá fyrst sá maður áhuga áhorfenda
sem voru gjörsamlega í skýjunum
með að fá að hitta okkur og taka
myndir af sér með okkur.“
Frumburðurinn fékk athygli
Hljómsveitin We Made God var
stofnuð fyrir um fimmtán árum
og segir Magnús þá félaga hafa
spilað í hverju einasta skúmaskoti
á Íslandi og það örugglega oftar en
tvisvar. „Við tókum þátt í Músík-
tilraunum árið 2006 og lentum í
þriðja sæti. Tveimur árum síðar
gáfum við út okkar fyrstu plötu, As
We Sleep, og þá fór þetta á flug.“
Frumburðurinn fékk mikla athygli
frá erlendu tónlistarpressunni,
sérstaklega þeirri bresku, en platan
fékk mjög góða dóma hjá tón-
listartímaritunum Q og Kerrang!.
„Í kjölfarið fórum við í fyrsta tón-
leikaferðalagið okkar til Bretlands
og í dag höfum við gefið út þrjár
breiðskífur og eina stuttskífu. Við
spilum það sem kallast post-metal,
þó megi alveg rökræða tónlistar-
stefnur fram og til baka.“
Aðrir meðlimir sveitarinnar eru
Birkir Freyr Helgason, Steingrímur
Sigurðarson og Rúnar Sveinsson.
Fagmenn á ferð
Það sem einkenndi tónleikaferð
þeirra í Kína að sögn Magnúsar
var fyrst og fremst hvað allt var
fagmannlegt. „Hljóðmenn og
sviðsmenn gerðu allt alveg eftir
bókinni sem tíðkast ekki hér eða
annars staðar í Evrópu. Einnig
má nefna gífurlega nákvæmni í
hljóðprufum, kannski aðeins of
mikla miðað við hvað við erum
vanir. Einnig var gaman að sjá
hvað tónleikastaðirnir voru flottir
og við fundum fyrir því að það er
stór neðanjarðarmenning fyrir alls
kyns rokktónlist í Kína.“
Á árinu ætla sveitarmeðlimir að
einbeita sér að nýju efni. „Eftir að
hafa gefið út plötuna Beyond the
Pale snemma ársins 2018 ætlum
við að einbeita okkur að því að
semja nýtt efni og vonandi ná að
gefa eitthvað út síðar á árinu.“
Óvænt ævintýri í Kína
Rokksveitinni We Made God bauðst óvænt að spila á þrettán tónleikum í Kína árið 2018. Viðburð-
irnir voru mjög vel skipulagðir og starfsmenn tónleikastaða fagmenn fram í fingurgóma.
Félagarnir í We Made God við styttu af Qin Shi Huang, fyrsta keisara Kína.
Hljóðmenn og
sviðsmenn gerðu
allt alveg eftir bókinni
sem tíðkast ekki hér eða
annars staðar í Evrópu.
Einnig má nefna gífurlega
nákvæmni í hljóðpruf-
um, kannski aðeins of
mikla miðað við hvað við
erum vanir.
Skapa ævintýri út fyrir boxið
Ógleymanlegar upplifanir og ævintýri út fyrir boxið eru aðalsmerki viðburðafyrirtækisins
g-events, en líka hefðbundnir viðburðir fyrir fyrirtæki sem vilja verðlauna starfsfólk sitt.
Þau Íris Friðmey Sturludóttir, Gunnar Traustason og Úlfhildur Elín Þorláksdóttir eru viðburðateymi g-events.
Það er ógleymanleg upplifun að sitja
í veislu með stórhvelum Íslands.
g-events kann svo sannarlega að skapa einstaka umgjörð um viðburði sína.
og dýrindis bjór og sendum alla í
kokteilakennslu. Mæting var með
eindæmum góð enda gat allur
hópurinn tekið þátt og haft gaman
af. Við leggjum okkur fram um að
skapa viðburði sem mæta öllum og
ef skemmtunin snýst um hreyfingu
veljum við hreyfingu á allra færi,“
segir Gunnar sem nýtur þess að
skipuleggja fjölbreytta viðburði
fyrir viðskiptavini g-events.
„Við þurfum að vera frjó þegar
kemur að nýjungum í upplif-
unum því oft vinnum við fyrir
sömu fyrirtækin aftur og aftur.
Útlendir viðskiptavinir eru jafnan
undrandi á því hversu mikið er í
boði í svo litlu landi; flottir salir,
mikið af skemmtilegri afþreyingu
og Íslendingar fara alla leið í öllu
því sem þeir gera. Við þykjum því
ansi frambærileg í þessu og ef fólk
fær skyndihugdettu göngum við
í málið og látum hana verða að
veruleika,“ segir Gunnar.
Galdurinn við að halda góða
ráðstefnu sé þó ekki bara gott
utanumhald um ráðstefnuna sjálfa
heldur einnig fjölbreyttir hliðar-
viðburðir utan ráðstefnutímans.
„Það er umfangsmikill hluti af
skipulagningu ráðstefna og geta
verið ferðir eða dekur ráðstefnu-
gesta og það er í sumum tilvikum
jafn mikill hluti af dagskránni og
ráðstefnan sjálf,“ útskýrir Gunnar,
sæll í starfi viðburðastjórans.
„Íslendingar þykja góðir gest-
gjafar því boðleiðirnar eru stuttar
og við getum látið marga drauma
rætast sem væri útilokað í stærri
löndum þar sem boðleiðirnar eru
lengri. Það eru svo einstök forrétt-
indi að starfa með fólki á gleði-
stundum lífsins og þegar maður
sér mánaða langan undirbúning
blómstra og verða að veruleika er
það eins og að sjá barn manns vaxa
úr grasi.“
g-events er í Skútuvogi 1G. Sími 527
0777. Sjá nánar á g-events.is.
4 KYNNINGARBLAÐ 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR