Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 35

Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 35
Ég byrjaði að nota kollagen frá Feel Iceland rétt áður en ég hóf að leika í Vikings-sjón- varpsþáttunum. Það hreinlega bjargaði húðinni sem varð fljótt undir miklu álagi við tökur á Vik- ings og frábær árangurinn leyndi sér ekki,“ segir Ragga sem fann strax mikinn mun á húð sinni, hári og nöglum. „Eftir langan sundferil og dagleg- ar æfingar í klórvatni voru neglur mínar orðnar linar og mjúkar en með kollageni urðu þær aftur sterkar og fallegar. Húð mín hafði einnig orðið hrjúfari eftir að ég eignaðist son minn en varð fljótt slétt og fín áferðar. Því hvarflaði ekki að mér að hætta!“ segir Ragga broshýr og sæl af vellíðan. „Ég hef nú notað Feel Iceland- serum á andlitið í rúm tvö ár og er ótrúlega ánægð. Ég set það einnig á axlir og hnén ef ég fæ þurrkubletti. Ég fann líka mikinn mun í liðum eftir að ég fór að taka inn kollagen frá Feel Iceland, þótt ég hafi aldrei verið neitt sérstaklega stirð. Ég varð bara léttari á mér og þarf nú ekki að teygja eins lengi og áður.“ Tökudagar Vikings langir Röggu er annt um heilsu sína og lifir á því að líta sem best út. „Ég æfi á hverjum degi, drekk nóg af vatni og reyni að ná sem bestum nætursvefni. Ég syndi og stunda ræktina eins og ég get en í tökum á Vikings eru dagarnir mjög langir og ég hef varla tíma í annað en fáeinar magaæfingar og arm- beygjur á stofugólfinu,“ upplýsir Ragga sem tekur inn fæðubótarefni frá Feel Iceland til að hámarka árangur sinn í heilsuræktinni. „Ég tek inn fæðubótarefnin á hverjum degi og finnst það frábær kostur og algjör snilld að hrista þau saman við djúsa eða „boost“. Feel Iceland-vörurnar hafa í heildina mjög góð áhrif á mig og þótt ég finni mest fyrir áhrifum kollagens á áferð húðarinnar hafa þær sömuleiðis áhrif á almenna vellíðan. Því mæli ég hiklaust með fæðubótarefnunum fyrir alla sem vilja hugsa vel um heilsuna.“ Bardagakona að upplagi Ragga er margfaldur Íslandsmeist- ari í sundi og keppti með lands- liði Íslands á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004 og í Peking 2008. Hún var að undirbúa sig fyrir keppni á Ólympíuleikunum í Lundúnum 2012 þegar hún varð barnshafandi af Breka syni sínum sem fæddist í ársbyrjun 2013. „Ég hef alla mína ævi verið í sundi en var alltaf staðráðin í að verða leikkona þegar sundferlinum sleppti og fór í leiklistarnám til Los Angeles þegar Breki var ársgamall. Þar sá ég sjónvarpsþættina Vikings í fyrsta skipti og ákvað með það sama að verða mér úti um hlutverk í þeim. Fólk hló að mér þá, rétt eins og það hló að mér þegar ég sagðist ætla á Ólympíuleikana á sínum tíma, en ég hef alltaf haldið mínu striki og sé svo sannarlega ekki eftir því að láta engan draga úr þrótti mínum til að halda áfram að eltast við drauma mína,“ segir Ragga sem leikur víkingakvendið Gunnhildi í Vikings. Ævintýraleg þáttaröðin er margverðlaunuð, byggir á Íslendingasögunum og segir af víkingnum Ragnari Loð- brók. „Við Gunnhildur eigum ýmis- legt sameiginlegt,“ upplýsir Ragga. „Við erum báðar sterkar, ákveðnar og þrjóskar, og það er gert mikið úr hæð hennar í þáttunum en ég er 188 sentimetrar á hæð. Gunn- hildur er líka mikil bardagakona, slæst og berst og mér finnst ég líka hafa það innra með mér. Ekki að slást við fólk, en við markmið mín og það sem ég ætla mér; að æfa lát- Framhald af forsíðu ➛ Ragga blandar fæðubótarefni Feel Iceland út í djúsa og boost á hverjum degi og segist uppfull vellíðunar. Hún mælir hiklaust með því fyrir alla sem vilja hugsa um heilsuna. MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR Ég hef ekki enn gefið strákunum neitt en við vinkon- urnar úr leikararhóp Vikings áttum æðislegt stelpukvöld saman um daginn og settum á okkur Feel Iceland- maska til dekurs. Þær voru sérdeilis ánægðar með árangurinn. laust til að komast á Ólympíuleikana eins og Gunnhildur gerir til að vinna orr- ustur.“ Þessa dagana vinnur Ragga að nokkrum verkefnum sem enn má ekki ljóstra upp um. „Allt er það afar spennandi og leik- listarlífið er dásam- legt. Það er óskaplega gaman að lifa og hrær- ast í þessum bransa, með tökum hér og þar og ferðalögum um allan heim. Ég finn vel að fólk er farið að taka eftir mér úti um allt og fylgi mitt á Instagram hefur aukist mikið í kjölfar Vikings,“ segir Ragga. Meðleikararnir hrifnir Meðleikarar Röggu í Vikings hafa komist á snoðir um ágæti Feel Iceland. „Ég hef gefið vinkonum mínum úr leikarahópnum prufur en við áttum æðis- legt stelpukvöld saman um daginn, settum á okkur Feel Ice land-maska til dekurs og þær voru aldeilis ánægðar með árangurinn. Ég hef ekki enn gefið strákunum neitt en er viss um að þeir vildu gjarnan prófa jafn einstaka, hreina og rammíslenska náttúruafurð,“ segir Ragga, full af fítonskrafti með liðsinni Feel Iceland-varanna. „Leiklistin er erfið líkamlega sem andlega en ég er ákveðin, kann að setja mér markmið og hugsa vel um mig. Sundferillinn undirbjó mig vel undir þetta allt og ég er þakklát fyrir að hafa synt svo lengi því það hefur góð áhrif á það sem ég er að Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid. is, s. 550 5761 Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 Brynhildur Björnsdóttir, bryn- hildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 550 5769 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, gera í leiklistinni,“ segir Ragga sem keppir enn árlega í sundi, sér til gamans. „Galdurinn við að láta drauma sína rætast er að vera glaðsinna og njóta þess sem maður fæst við. Það þarf líka að halda út og má ekki gefast upp. Maður fer ekki á Ólympíuleikana á einni nóttu né fær hlutverk í stærstu sjónvarpsþáttum heims yfir nótt. Allt tekur það tíma og ég hef haldið ótrauð áfram. Númer eitt er að hafa gaman af því öllu því ef mér hefði ekki þótt gaman að synda hefði ég aldrei farið á Ólympíuleikana og hefði mér ekki þótt gaman að undir- búningsferli Vikings hefði ég aldrei náð hlutverki.“ Gleði uppskrift að hamingju Lífsmottó Röggu er að brosa. „Ef maður er glaður og fæst við það sem drífur mann áfram er hamingjan vís,“ segir hún og brosir, nýkomin heim frá Bahama-eyjum. „Þar upplifði ég fáránlega fallega hluti, snorklaði og naut dásamlegs dekurs.“ Ragga naut líka fegurðar og vellystinga jóla- hátíðarinnar. „Ég viðurkenni alveg að jólin taka sinn toll og ég æfi meira en vanalega yfir hátíðarnar en ég er dugleg að leyfa mér óholl- ustu jólanna og gleðinnar með fólkinu mínu, og vitaskuld ekkert slæmt við það. Það er bara hluti af þessum árstíma og ég á auðvelt með að koma mér aftur í reglubundna rútínu sem mér líður alltaf best í,“ segir Ragga sem passar upp á sjálfa sig í hvívetna. „Ég elska að fara í gott nudd og dekur, láta lakka neglurnar og vera ein með sjálfri mér. Ég er mikill lestrarhestur og gleymi mér yfir góðri bók eða hlusta á hljóðbækur í gönguferðum. Ég reyni líka alltaf að vera jákvæð og það hefur nýst mér best í afreksíþróttum sem og leiklistarlífinu. Ef mér líður illa eða er í neikvæðu skapi reyni ég að taka smá tíma fyrir sjálfa mig, safna kröftum og díla við áhyggjur á sem stystum tíma til að verða jákvæð á ný. Maður ætti líka að vera glaður með að gera hluti sem maður ákvað sjálfur að gera,“ segir Ragga og er meðvituð um að vera góð fyrirmynd. „Ég hef alltaf reynt að sýna ungu fólki gott fordæmi, sérstaklega stelpum. Að kenna þeim að vera samkvæmar og trúar sjálfum sér og gera það fyrir sig en ekki aðra. Ég fór ekki á Ólympíuleikana til að sýnast fyrir öðrum né tók ég hlut- verk í Vikings fyrir aðra, heldur sjálfa mig. Líka að vera glaður og kátur í lífinu og góður við allt og alla; jörðina okkar, dýr og menn. Það hjálpar til að hafa jákvætt við- horf til lífsins.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.