Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 69

Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 69
til sín og í Taílandi er afar góður matur. Phuket-eyja er ákaflega vin- sæll staður að heimsækja. Phuket er stærsta eyja Taílands og býður upp á gríðarlega fallegar strendur og stórbrotið umhverfi. Jafnframt er upplifun að koma til Bangkok en þangað er tæplega tíu klukku- stunda flug frá til dæmis Helsinki. Víetnam er áhugaverður kostur. Þar liggur mikil saga og áhugavert að hlusta á þarlenda fararstjóra segja frá sinni hlið á sögunni. Meðalaldur í Víetnam er ekki hár þar sem stór hluti þjóðarinnar féll í stríðinu. Enn eru margir akrar í Víetnam eitraðir eftir þennan hörmulega tíma. Margt framandi er að sjá í Víetnam. Ha Long-flói er ótrúlegur staður og einstak- lega áhugavert að sigla þar um á milli fallegra kletta. Ha Long-flói hefur komið við sögu í mörgum bíómyndum, meðal annars James Bond. Ha Long er ekki langt frá Hanoí. Um Karíbahafið Karíbahafið er vissulega áhugavert. Þar eru margar fallegar eyjar til að heimsækja yfir vetrartímann. Barbados eða Bahamaeyjar. Eða Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Flestir Íslendingar fara til Tenerife eða Gran Kanarí yfir vetrartímann. Þar er eigin- lega alltaf sól og gott veður. Þótt Tenerife sé langvinsælasti staðurinn af Kanaríeyjunum þá væri alveg gaman að prófa nýjan stað. Hvað með Lanzarote eða Fuerteventura? Eða dvelja í borg á þessum eyjum, Las Palmas á Gran Kanarí eða Santa Cruz á Tenerife? Í janúar er meðal- hiti í þessum borgum 17 stig en heit sólin eykur hitann enn frekar. Það er þægilegt veðurfar til göngu- ferða og útiveru. Það tekur um það bil fimm og hálfa klukkustund að fljúga til Kanaríeyja frá Íslandi. Það má vel nefna Máritíus sem er gríðarlega falleg eyja ekki langt frá Madagaskar. Eyjan er í Ind- landshafi úti fyrir suðausturströnd Afríku. Grænhöfðaeyjar eru líka spennandi kostur fyrir þá sem vilja fara á nýjan stað og njóta sólar. Margt spennandi í boði Flórída er annar kostur. Þar er hlýtt og notalegt. Meðalhitinn í Miami í desember er 20,6 gráður en algengur hiti er 24,8 gráður. Það er hægt að velja um marga frábæra staði á Flórída til að heimsækja. Orlando þar sem hinn vinsæli ævintýragarður Disney World er. Margir fara til Tampa, St. Peters- borg eða Fort Lauderdale. Þægi- legast er að hafa bíl til umráða í Flórída. Það er rúmlega átta stunda flug til Flórída. Ástralía er sömuleiðis kostur. Þar er sumar og sól en sumarmán- uðir eru frá desember til febrúar. Meðalhiti getur farið upp í 25 gráður og jafnvel meira í janúar. Þann 26. janúar er þjóðhátíðar- dagur Ástrala og mikið um að vera alls staðar. Sydney hefur upp á margt skemmtilegt að bjóða. Ekki er beint flug frá borgum í Evrópu til Sydney en hægt að millilenda í Singapore sem er reyndar ákaflega skemmtileg borg að heimsækja. Taíland eða Víetnam Hvernig væri að finna sólina í Taílandi? Það er reyndar uppá- haldsstaður margra Íslendinga sem fara þangað ár eftir ár þrátt fyrir langt flug. Það er þurrkatímabil í Taílandi frá desember fram í apríl. Fallegar strendur draga marga Viltu finna sólina í vetur? Nú þegar einn lengsti mánuður ársins er genginn í garð eru væntanlega margir sem sakna hlýju, birtu og sólar. Vetrarfrí styttir biðina til sumarsins og það eru allmargir staðir að velja um. Phuket í Taílandi er uppáhalds- staður margra Íslendinga. Ha Long-flói í Víetnam er ein- stakur staður að heimsækja. Boðið er upp á siglingu um- hverfis kletta og smáeyjar. Margir velja að fara aftur og aftur til Tenerife yfir vetrartímann í stað þess að leggja í ævintýri í framandi löndum. Tenerife er góður staður fyrir afslöppun. heimsækja nokkrar eyjar í einni ferð með skemmtiferðaskipi. Þá er að vísu stutt stopp á hverjum stað. Mexíkó gæti líka verið ákaflega spennandi áfangastaður. Margir staðir koma til greina yfir vetrartímann þar sem sólina er að finna. Allt eftir því hvað fólk vill eyða miklum peningum í ferðina eða hverju það er að sækjast eftir. Brasilía væri örugglega áhuga- verður staður fyrir marga á meðan aðrir kjósa að fara alltaf á sama staðinn, til dæmis Tenerife. Ef maður er ekki að hugsa um sólina þá er hægt að skreppa í borgarferð og gera góð kaup á útsölum í janúar. Ofarlega á lista eru Barcelona, Berlín, Kaupmanna- höfn, París, London, New York eða Boston. Það er kalt í mörgum þessara borga yfir vetrartímann og þess vegna nauðsynlegt að klæða sig vel sé haldið þangað. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is VEGANÚAR Föstudaginn 11. janúar gefur Fréttablaðið út sérblaðið Veganúar. Markmið veganúar er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Arnar Magnússon Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins arnarm@frettabladid.is Sími: 550 5652 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.